Morgunblaðið - 05.11.2015, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.11.2015, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2015 Rauði krossinn á Íslandi hóf um síð- ustu helgi átak sitt, „3 dagar: Við- námsþróttur almennings á Íslandi við náttúruhamförum“. Samkvæmt upplýsingum Rauða krossins geng- ur verkefnið út á það að fræða al- menning um mikilvægi þess að vera við öllu búin þegar kemur að ham- förum á Íslandi og að geta verið sjálfum sér næg í að minnsta kosti þrjá daga berist björgun ekki strax. Verkefnið er samstarfsverkefni Rauða krossins á Íslandi, Land Ro- ver-verksmiðjunnar og BL, um- boðsaðila Land Rover á Íslandi sem koma að verkefninu með styrkveit- ingu en útvega einnig ökutæki. Fræðslan mun fara fram á 25 stöðum á Íslandi og hver fræðsla mun taka um tvær klukkustundir. Einnig munu fara fram stærri æf- ingar með þátttöku almennings. Námskeiðin munu hefjast í upphafi næsta árs og verða nánar auglýst á hverjum stað fyrir sig og verða þau öllum að kostnaðarlausu. Vera við öllu búin Ljósmynd//Geirix Stuðningur Rauði krossinn fær af- henta Land Rover bifreið frá B&L. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, og Dorrit Moussaieff hófu í gær þriggja daga opinbera heim- sókn til Víetnams og í kjölfarið heimsækir forsetinn Kóreu og Singapúr. Segir forsetaembættið að með heimsóknunum verði lagður grunnur að víðtækari tengslum Ís- lands við Asíu. Í upphafi heimsóknarinnar í gær lagði Ólafur Ragnar blómsveig að minnisvarða um hetjur og fórnar- lömb frelsisstríðanna og jafnframt við grafhýsi Ho Chi Minh í Hanoi. Þaðan var haldið að forsetahöllinni þar sem Truong Tan Sang, forseti Víetnams, tók á móti gestunum. Gunnar Bragi Sveinsson, utan- ríkisráðherra, tekur þátt í heim- sókninni og með í för eru embætt- ismenn og forstjóri Hafrann- sóknastofnunar, forstjóri Orkustofnunar og rektor Háskól- ans í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá for- setaembættinu verður einkum lögð áhersla á það, í heimsókninni í Víet- nam, að efla samvinnu landanna á sviði sjávarútvegs og fiskvinnslu, en Víetnamar leggi nú mikla áherslu á aukna tæknivæðingu í fiskirækt og vinnslu. Þá verði jafnframt gengið frá samkomulagi um aukna samvinnu á sviði jarðhitanýtingar. Einnig munu Þjóðarháskóli Víetnams og HR ganga frá samkomulagi um aukna samvinnu. Í heimsóknunum til Kóreu og Singapúr stendur til að ræða um samvinnu þjóðanna á norður- slóðum. Í heimsókn í Víetnam Heiðursvörður Forsetar Íslands og Víetnams skoða heiðursvörð í Hanoi.  Grunnur lagður að víðtækari tengslum Íslands við Asíu Alþjóðlega leið- togaráðstefnan, Global Lead- ership Summit, verður haldin í sjöunda sinn á Ís- landi 6.-7. nóv- ember nk. í Há- skólabíói í Reykjavík. Ráðstefnan er að mestu á svokölluðu videocast- formi en það felur í sér að fyr- irlestrar frá ráðstefnu Global Lead- ership Summit í Chicago í ágúst sl. eru sýndir á breiðtjaldi. Er efnið allt með íslenskum skjátexta. Síðari ráðstefnudaginn flytja landsliðsþjálfararnir Lars Lager- bäck og Heimir Hallgrímsson fyrir- lestur um leiðina til árangurs. Nán- ari upplýsingar um ráðstefnuna eru á vefnum www.gls.is. Halda alþjóð- lega ráðstefnu í Háskólabíói Lars Lagerbäck Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033 Frímúrarar – Oddfellowar Flott ir í fötum Vönduðu þýsku kjólfötin komin aftur Verð: 76.900,- með svörtu vesti Rangt nafn í undirskrift Þau leiðu mistök urðu í undirskrift í minningargrein um Björn Jónasson í blaðinu í gær að tengdasonur Björns var sagður heita Þórður, en hann heitir Þórir. Beðist er velvirð- ingar á þessu. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.