Morgunblaðið - 05.11.2015, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2015
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Full búð
af nýjum
vörum
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 - fös: 12-16.
Ný skartgripalína frá Danmörku
Laugavegi 47, sími 552 9122 Laugavegi 47, sími 551 7575
30% afsláttur
Fimmtudag, föstudag og langan laugardag
Buxna,- úlpu- og
leðurjakkasprengja
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
MIÐNÆTUR
OPNUN
Það verður opið
hjá okkur í kvöld til
miðnættis
Fylgist með okkur á faceboock
Full búð af
glæsilegum
kvennfatnaði
& fylgihlutum
Páll Biering, dósent í geðhjúkrun
við Háskóla Íslands, hefur haldið til
Grikklands í sex vikna sendiför á
vegum Rauða krossins á Íslandi.
Hann hóf störf í flóttamannabúðum
Rauða krossins í Noregi 20. október
og verður þar við störf til 6. desem-
ber.
Búðirnar eru í bænum Idomeni
nærri landamærunum við Make-
dóníu og verður helsta verkefni
Páls að veita fólki sem á leið um
búðirnar sálfélagslegan stuðning
auk þess að þjálfa sjálfboðaliða
gríska Rauða krossins í því en slík
þjónusta er sögð ómetanleg fólki
sem glímir við streitu eftir alvarleg
áföll. Páll hefur áður sinnt slíkri að-
stoð fyrir starfsfólk og sjálf-
boðaliða Rauða krossins, bæði í
Nígeríu og Djibouti.
Gríðarlegt álag er sagt vera á
búðum Rauða krossins við landa-
mæri Grikklands og Makedóníu síð-
ustu vikur þar sem þúsundir flótta-
manna hafa leitað á náðir
samtakanna.
Þetta er í fyrsta sinn síðan í stríð-
inu á Balkanskaga sem íslenskur
sendifulltrúi er sendur til lands inn-
an Evrópu en alþjóðasamtök Rauða
krossins hafa kallað eftir aðstoð á
svæðinu.
Íslenskur sendifulltrúi Rauða krossins að störfum í Grikklandi
Ljósmynd/Rauði krossinn
Hjáparstarf Páll Biering er að
störfum fyrir Rauða krossinn.
Tæplega fimmtugur karlmaður,
Unnar Sigurður Hansen, var í gær
dæmdur í þriggja ára fangelsi í Hér-
aðsdómi Reykjaness. Þetta var
þriðji dómurinn sem hann hlaut á
þessu ári. Hann á langan sakaferil
að baki og telst vera vanaafbrota-
maður.
Fram kemur í dómnum að saka-
ferill hans hafi byrjað 1985 og síðan
þá hafði honum verið gerð refsing 38
sinnum fyrir ýmis afbrot. Hann
hafði samtals verið dæmdur í fang-
elsi í rúmlega 25 ár frá árinu 1985.
Nú var hann sakfelldur fyrir
þjófnað og tilraun til þjófnaðar í sjö
skipti, að aka sviptur ökuréttindum í
fimm skipti, akstur undir áhrifum
ávana- og fíkniefna í fjögur skipti og
einu sinni fyrir vörslur fíkniefna.
Maðurinn var meðal annars
ákærður fyrir að hafa brotist inn í
apótekið Lyfju og stolið þaðan lyfj-
um. Að hafa brotist inn á veitinga-
staðinn Serrano og stolið þaðan pen-
ingaskúffu úr sjóðsvél og að hafa
brotist inn í Flóamarkaðinn á Ný-
býlavegi 8 í Kópavogi og stolið þaðan
meðal annars áttavita, smásjá,
kveikjara, styttu af svartri hendi,
hrosshúð og fleiru.
Maðurinn játaði brot sín skýlaust
fyrir dóminum og var það metið hon-
um til refsilækkunar. Refsingin var
ekki skilorðsbundin. gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Héraðsdómur Reykjaness Sá
dæmdi á 30 ára afbrotaferil að baki.
Dæmdur
í 39. skipti