Morgunblaðið - 05.11.2015, Síða 13

Morgunblaðið - 05.11.2015, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2015 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Fram kemur í pistli Reimars Péturs- sonar, formanns Lögmannafélags Íslands, í síðasta tölublaði Lög- mannablaðsins að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi heimilað síma- hlustun hjá lögmanni við rannsókn á almenningshlutafélagi árið 2010. Þá segir að einnig hafi lögreglu ver- ið heimilað „að hlusta og hljóð- rita með leynd samtöl og önnur hljóð innan veggja lögmanns- stofu.“ Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir um á hvaða lög- mannsstofu hler- unarbúnaður hafi verið settur upp og vildi Reimar ekki tjá sig um málin þegar eftir því var leitað. Hins vegar segir í lokaritgerð Odds Ástráðssonar í MA-námi í lög- fræði í HÍ síðastliðið vor, um síma- hlustanir, að hlerunarheimild í til- vikinu þar sem sími lögmanns var hleraður hafi verið gefin út 2010. Úrskurðir um hlerunarheimildir eru bundnir trúnaði og því tiltekur Oddur ekki um hvaða mál sé að ræða. Í ritgerðinni kemur þó fram að málið hafi verið til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara og að þetta sé eitt þeirra mála sem ekki séu lengur til rannsóknar. Beindist rannsókn að meintum brotum fimm manna, frömdum í störfum fyrir al- menningshlutafélag seint á árinu 2008, eða meira en ári áður en heim- ildar til símahlustana var óskað. Ekkert vikið að trúnaði Í ritgerðinni segir að einn hlust- unarþola hafi verið lögmaður „úti í bæ“ sem hafði með höndum umboðs- störf fyrir félagið. „Þau einu rök sem færð voru að því í kröfu sérstaks saksóknara um hvaða rannsókn- arhagsmunir væru í húfi voruað til stæði að kalla þessa menn til yf- irheyrslu og að í kjölfarið væri lík- legt að sú atburðarás færi af stað að þeir myndu ræða saman um málin og þá gætu komið fram upplýsingar sem hugsanlega gætu skipt máli fyr- ir rannsóknina,“ segir í ritgerðinni. Er heimildin ekki síst athygl- isverð fyrir þær sakir að fram hefur komið gagnrýni á það þegar trún- aðarsamtöl sakborninga og lög- manna hafa orðið hluti af gögnum lögreglu. „Þá vekur athygli í fram- angreindu máli að ekki er fjallað með neinu móti um það sérstaklega að verið sé að leyfa símahlustun hjá lögmanni sem átti aðkomu að málum sem slíkur og sem starfa sinna vegna á reglulega í trúnaðarsamskiptum við umbjóðendur sína,“ segir Oddur í ritgerðinni um hlerunarúrskurð héraðsdóms. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, vildi ekki tjá sig um mál- ið en segir þó að lögmenn geti líkt og aðrir haft réttarstöðu sakbornings þó að réttarstaða manna geti breyst á rannsóknartímabili. Hlerun óháð réttarstöðu Jafnframt bendir hann á að ekkert í lögum banni það að símar fólks séu hleraðir þó að viðkomandi hafi ekki stöðu grunaðs manns, ef upplýs- ingar sem fást við hlustun geta haft mikið að segja um framvindu máls. Spurður um það hvort hleranir sem framkvæmdar voru rúmu ári eftir að meint efnahagsbrot, og þá flest í aðdraganda bankahrunsins, hafi skilað einhverjum upplýsingum þá telur Ólafur svo vera í nokkrum tilvikum. „Það gerði það að ein- hverju marki. Í einhverjum tilvikum hafa símtöl verið spiluð undir máls- meðferðinni. Svo er hins vegar mis- jafnt hvað dómurinn tekur upp af þessu. Auðvitað var líka talsvert af símtölum sem ekkert hafa með málið að gera. Í heild var töluvert mikil vinna sem fór í að greina þessi gögn,“ segir Ólafur. Nokkur gagn- rýni hefur m.a. komið fram um þær aðferðir rannsakenda að hlera síma manna löngu eftir að meint brot hafa átt sér stað. Spurður hvort hann teldi ráðlagt að grípa til hlerana hér eftir við rannsókn mála þar sem langt er síðan brot voru framin, seg- ir Ólafur að aðstæður verði að ráða því. „Það verður að skýrast af efni máls og aðstæðum,“ segir Ólafur. Sími lögmanns var hleraður  Sími lögmanns var hleraður í tengslum við rannsókn á almenningshlutafélagi árið 2010  Hlerunarbúnaður settur upp á lögmannsstofu  Símahlustanir skiluðu árangri segir Ólafur Þór Morgunblaðið/Júlíus Símhleranir Formaður Lögmannafélags Íslands segir síma lögmanns hafa verið hleraðan og að hlerunarbúnaður hafi verið settur á lögmannsstofu. Reimar Pétursson Jón Steinar Gunn- laugsson, fyrrverandi hæstaréttar- dómari, hef- ur gagnrýnt framkvæmd hlerana. „Ég fæ ekki betur séð en að rannsóknar- heimildin til hlerana hafi verið misnotuð. Sérstaklega er það ámælisvert þegar heimild er veitt í sömu andrá og mönnum er sleppt úr gæsluvarðhaldi. Það getur ekki staðist að slíkt sé heimilt. Þegar menn hafa verið yfirheyrðir í gæslu- varðhaldi, þá hafa menn notið réttar til að neita að svara spurningum. Það kemur ekki til greina að það megi njósna um þá með hlerun eftir að þeim er sleppt. Eingöngu til að athuga hvort það veiti upplýsingar um atriði sem þeir neituðu að gefa svör um í gæsluvarðhaldinu,“ segir Jón Steinar. Misnotuð heimild JÓN STEINAR Jón Steinar Gunnlaugsson MÁ BJÓÐA ÞÉR Í SJÓNMÆLINGU? — Með öllum gleraugum fylgir annað par af glerjum í sama styrk frítt með Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.