Morgunblaðið - 05.11.2015, Side 17

Morgunblaðið - 05.11.2015, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2015 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Innanríkisráðherrar Evrópusam- bandsins ákváðu í september að skipta 160.000 flóttamönnum á milli ESB-ríkja á tveimur árum til að létta byrðinni af Ítalíu og Grikklandi en aðeins 116 þeirra hafa verið fluttir þaðan samkvæmt flóttamannakvót- unum. 86 flóttamenn frá Erítreu og Sýrlandi hafa verið fluttir frá Ítalíu til Svíþjóðar og Finnlands og í gær voru fyrstu 30 flóttamennirnir send- ir frá Grikklandi til Lúxemborgar. Forsætisráðherra Grikklands, Alex- is Tsipras, sagði að þetta framlag ESB-ríkja væri aðeins „dropi í hafið“ í ljósi þess að alls hafa 800.000 flótta- menn og aðrir farandmenn farið til aðildarlanda Evrópusambandsins það sem af er árinu. Fjórar fjölskyldur frá Sýrlandi og tvær frá Írak, þar af alls 16 börn, voru fluttar frá Grikklandi. „Þau fá nú tækifæri til að halda í ferð til von- ar, til betra lífs,“ sagði Tsipras þegar hann kvaddi flóttafólkið. „Þetta er dropi í hafið, en við vonum að drop- inn verði að straumi og síðan fljóti mannúðar.“ Flóttamannakvótarnir voru sam- þykktir þrátt fyrir harða andstöðu fjögurra landa – Rúmeníu, Slóvakíu, Tékklands og Ungverjalands. Af þeim ríkjum sem samþykktu kvót- ana hafa fjórtán boðist til að taka við alls 1.418 flóttamönnum á næstunni, að því er fram kemur í frétt The Guardian. Eitt þessara ríkja er Svíþjóð sem tók við fleiri flóttamönnum í fyrra en nokkurt annað ESB-ríki miðað við íbúafjölda. Þeir voru þá um 81.000 en nú er gert ráð fyrir því að hælisum- sóknirnar í Svíþjóð í ár verði allt að 190.000. Um 10.000 hælisleitendur hafa farið til landsins á viku hverri að undanförnu og sænsk yfirvöld hafa átt í miklum erfiðleikum með að sjá fólkinu fyrir bráðabirgðahúsnæði. Stefan Löfven, forsætisráðherra landsins, skýrði frá því í gær að vegna þessa mikla fjölda hefði stjórn hans sent framkvæmdastjórn Evr- ópusambandsins beiðni um að önnur ESB-ríki tækju við sumum af þeim hælisleitendum sem væru í Svíþjóð en nefndi enga tölu í því sambandi. „Svíþjóð hefur lengi tekið á sig meiri byrðar en sanngjarnt er í saman- burði við önnur lönd ESB og við er- um núna í mjög þröngri stöðu,“ sagði Löfven í fréttatilkynningu. „Nú er kominn tími til að önnur lönd axli ábyrgð.“ Umdeilt frumvarp í Austurríki Gert er ráð fyrir því að hælisum- sóknirnar í Þýskalandi verði a.m.k. 800.000 eða allt að 1,5 milljónir í ár og varnarmálaráðherra landsins, Ursula von der Leyen, tilkynnti í gær að yfir 6.000 hermenn hefðu ver- ið kallaðir út til að hafa stjórn á flóttamannastraumnum til landsins. Ennfremur var skýrt frá því að nær 600 lögreglumenn í þremur sam- bandslöndum hefðu tekið þátt í áhlaupum og húsleitum í híbýlum manna sem taldir væru viðriðnir smygl á flóttafólki til landsins. Nokkur ríki í austanverðri álfunni hafa lokað landamærum sínum fyrir farandfólki sem hyggst sækja um hæli í Evrópulöndum. Þingmenn í Austurríki hafa lagt fram frumvarp um að hælisleitendur fái dvalarleyfi til þriggja ára, umsóknir þeirra verði endurmetnar að þeim tíma liðnum og þeir verði fluttir til heimalands síns ef það telst vera „öruggt ríki“. Werner Faymann, kanslari Austur- ríkis, sagði að markmiðið með frum- varpinu væri að letja farandmenn frá því að fara til landsins í því skyni að óska eftir hæli. Mannréttindasamtök hafa gagnrýnt frumvarpið og sagt að það torveldi hælisleitendum að sam- lagast austurríska samfélaginu. Óttast enn fleiri dauðsföll Ekkert lát hefur verið á flótta- mannastraumnum yfir Eyjahafið frá Tyrklandi til Grikklands. Að minnsta kosti 80 manns, þeirra á meðal mörg börn, hafa drukknað í hafinu síðustu sjö daga. „Stöðva verður mannfórn- irnar sem eru evrópskri siðmenn- ingu til skammar,“ sagði Tsipras og skírskotaði til frétta um að þúsundir farandmanna hefðu drukknað á leið- inni yfir Miðjarðarhafið og Eyjahaf til Evrópu, þar af 450 við strendur Grikklands. Daniel Esdras, fulltrúi Alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar (IOM), óttast að enn fleiri farist á leiðinni yf- ir Eyjahaf nú þegar vetur gengur í garð. „Mesta vandamálið er vindur- inn,“ hefur fréttavefur norska dag- blaðsins Aftenposten eftir honum. „Farandfólkið er flutt með mjög slæmum bátum og við óttumst að dauðsföllunum fjölgi á næstunni.“ Esdras segir að smyglarar hafi stórgrætt á því að selja farandfólki far með gúmmíbátum yfir Eyjahafið í sumar og haust og þeir haldi því áfram þrátt fyrir versnandi veður. Hann telur ólíklegt að flóttamanna- straumurinn yfir Eyjahafið stöðvist í vetur. „Smygl á fólki er starfsemi sem er háð lögmálum framboðs og eftirspurnar,“ segir Esdras. „Þegar eftirspurnin minnkar, til dæmis vegna slæms sjóveðurs, lækka smyglararnir verðið.“ Framlagið „aðeins dropi í hafið“  Aðeins 116 flóttamenn hafa verið fluttir milli ESB-ríkja samkvæmt 160.000 manna kvóta þeirra  Svíar vilja að önnur lönd taki við hælisleitendum sem eru í Svíþjóð  Hætta á að enn fleiri drukkni AFP Lagt í hættuför Farandmenn í tyrkneska héraðinu Izmir bíða eftir því að komast með báti til Grikklands. Norðmönnum refsað? » Norska dagblaðið Aften- posten lætur í ljós áhyggjur af straumi flóttamanna til Noregs frá Rússlandi í forystugrein í gær og telur að málið geti dregið dilk á eftir sér. » Blaðið segir að rúmlega 2.000 flóttamenn hafi farið yf- ir landamærin og því fari fjarri að þeir séu allir frá Sýrlandi. „Nú eru það aðallega Afganar sem koma og fregnir frá landa- mærunum herma að margir þeirra tali góða rússnesku.“ » Aftenposten telur að Rússar hafi greitt fyrir för flóttafólks- ins. „Margir hafa bent á að þetta geti verið refsiaðgerð af hálfu Rússa, e.t.v. vegna refsi- aðgerða Norðmanna gegn Rússlandi og NATO-samstarfs- ins. Það styrkir þessa kenn- ingu að næstum engir flótta- menn fara frá Rússlandi til Finnlands.“ Forsætisráð- herra Rúmeníu, Victor Ponta, sagði af sér í gær, daginn eftir að rúmlega 20.000 manns tóku þátt í mótmælum í Búk- arest til að krefj- ast þess að hann segði af sér vegna ásakana um spillingu. Ponta tilkynnti afsögnina í sjónvarps- ávarpi og sagði að æðstu embættis- menn landsins þyrftu að axla ábyrgð á miklu manntjóni sem varð í elds- voða í næturklúbbi í Búkarest á föstudagskvöld þegar hljómsveit sem þar lék kveikti á flugeldum. 32 menn létu lífið og 200 fengu bruna- sár, þar af eru 100 manns enn á sjúkrahúsi með alvarleg sár. Ponta hefur þegar verið ákærður fyrir spillingu. Í september hófust réttarhöld í máli þar sem hann er m.a. ákærður fyrir fjársvik, skatt- svik og peningaþvætti. Hann neitar sök. Fréttaskýrendur segja að Ponta hafi verið að leita að leið til að láta af embætti því að ríkisstjórn hans hafi verið að falli komin vegna ákær- unnar og reiðin vegna eldsvoðans hafi kynt undir óánægjunni með stjórnina. RÚMENÍA Sagði af sér vegna ásakana um spillingu Victor Ponta Ef drög að frum- varpi til laga um eftirlitsheimildir yfirvalda í Bret- landi verða að veruleika verður lögreglu og eftir- litsstofnunum gert kleift að fylgjast með net- notkun almennra borgara án dómsúrskurðar. Net- og símafyrirtæki verða skylduð til að geyma upplýsingar um hvaða vef- síður notendur heimsækja í tólf mánuði. Theresa May, innanríkisráðherra Bretlands, segir frumvarpið fela í sér gagngera endurskoðun á eldri löggjöf. Í því er m.a. fjallað um um- fangsmikla gagnasöfnun öryggis- stofnananna MI5, MI6 og GCHQ, og heimild þeirra til að njósna um tölv- ur og síma um allan heim í þágu þjóðaröryggis, vegna alvarlegra glæpa og til að tryggja efnahags- lega velferð. „Það ættu engir afkimar netsins að vera athvarf fyrir þá sem vilja valda okkur skaða; til að leggja á ráðin, eitra huga og breiða út hatur eftirlitslaust,“ sagði May. BRETLAND Vill leyfa neteftirlit án dómsúrskurðar Theresa May Kringlunni 4-12 - 103 Reykjavík - Sími 578 8989 - www.myrinstore.is Miðnæturopnun 20% afsláttur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.