Morgunblaðið - 24.11.2015, Side 2

Morgunblaðið - 24.11.2015, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ágæt viðbrögð hafa verið við auglýs- ingu Vinnumálastofnunar eftir starfstækifærum fyrir flóttamenn. Auglýsingin birtist mánudaginn 16. nóvember og er fyrst í stað leitað að störfum á höfuðborgarsvæðinu og Eyjafjarðarsvæðinu. Fram kom í Morgunblaðinu síðast- liðinn laugardag að samtals um 140 kvótaflóttamenn og hælisleitendur hefðu fengið dvalarleyfi á Íslandi í ár. Það er meiri fjöldi en nokkru sinni. Telur Rauði krossinn á Íslandi allar líkur á að margir leiti hælis á Íslandi á næsta ári. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu- málastofnunar, segir að hingað hafi komið stór hópur einstaklinga sem flóttamenn og von sé á fleirum. Þetta fólk hafi margs konar menntun og starfsreynslu. Ágætt framboð af störfum „Við erum þegar komin með sex til sjö störf sem við getum miðlað til flóttamanna. Tvö eru á Eyjafjarðar- svæðinu en hin hér á höfuðborgar- svæðinu,“ segir Gissur sem telur ágætt framboð af störfum fyrir flótta- menn á Íslandi. Atvinnuástandið sé gott. „Ef fyrir hendi er ríkur vilji til að taka störf sem eru í boði og ef fólk er sæmilega mælandi á ensku eru góðar líkur á að það fái vinnu og geti bjarg- að sér. Aðrir eru ekki almennilega mælandi á ensku og þurfa aðstoð. Þá er fólkið væntanlega misjafn- lega markað af reynslu sinni. Þess eru dæmi að menn þurfi býsna góðan tíma til þess að jafna sig og aðlagast nýjum aðstæðum. Það er auðvitað hluti af þeim stuðningi sem er veittur í gegnum okkur, heilbrigðiskerfið og fleiri aðila. Við leggjum ríka áherslu á að þátttaka á vinnumarkaði sé lykil- atriði í aðlögun flóttafólks að íslensku samfélagi. Því fyrr sem fólk getur fengið störf þeim mun betra er það fyrir alla.“ Gissur segir fjóra til fimm starfs- menn Vinnumálastofnunar sinna verkefnum sem tengjast flóttamönn- um. Það geri þeir samhliða öðrum verkefnum hjá stofnuninni. Fyrirtæki bjóða flóttafólki störf  Forstjóri Vinnumálastofnunar er ánægður með viðbrögð við auglýsingu Á göngu um Elliðaárdalinn ber ævinlega eitthvað nýtt fyrir augu. Gróðurfarið er fjölbreytt og gott skjól af trjánum þar. Ef rigning er og kalt í veðri er ekki annað að gera en klæða sig í samræmi við veðráttuna. Þessir félagar voru á ferðinni í dalnum í gær og sá yngri hafði gaman af pollunum á og við göngustíginn. Morgunblaðið/Styrmir Kári Síbreytilegur Elliðaárdalur Klæddir í samræmi við veðráttuna Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Mjög hefur dregið úr því að fólk reyni að koma fölsuðum peningaseðlum í umferð, að sögn Hafliða Þórðarsonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu. Engu að síður var reynt að greiða fyrir vöru í fyrradag með fölsuðum fimm þúsund króna peningaseðli. Hafliði segir að algengast sé að reynt sé að koma fölsuðum fimm þús- und króna seðlum í umferð. „Þetta er hverfandi vandamál. Segja má að helst hafi borið á þessu fyrst eftir að betri prentarar og skannar komu fram en þetta er afar lítið nú orðið,“ segir Hafliði. Að sögn nemur andvirði falsaðra seðla sem lagt er hald á einungis nokkrum tugum þúsunda á ári. „Stundum er fólk gripið sem er að nota slíka seðla, en það er langoftast þannig að fólk sé óafvitandi að fram- vísa fölsuðum seðli og hefur kannski fengið hann til baka í einhverri versl- un,“ segir Hafliði. Hann segir að ís- lensku seðlarnir séu ágætlega gerðir og erfitt að falsa þá. Viðurlög við peningafölsun eru allt að tólf ára fangelsi en svo þungir dómar hafa ekki fallið hér á landi. Hlutfall seðla og myntar í umferð miðað við landsframleiðslu var meðal þess lægsta sem þekkist í heiminum, eða rúm 2%, ef miðað er við tölur Seðlabanka heims árið 2012. Til sam- anburðar var seðlanotkun mest í Jap- an eða tæp 17%. Mjög hefur dregið úr peningafölsunum  Reyndi að borga með fölsuðum fimm þúsund króna seðli Morgunblaðið/Golli Peningar Mjög hefur dregið úr föls- un peningaseðla á Íslandi. Lengi vel var seðlanotkun 1% af landsframleiðslu á Íslandi eða í áratugi framundir fall bank- anna, að sögn Stefáns Jóhanns Stefánssonar, upplýsingafull- trúa Seðlabanka Íslands. Síðan þá hefur seðlanotkun verið um 2%. Á vefsíðu Seðlabankans má finna upplýsingar um það hvernig þekkja megi falsaða seðla. Ólík öryggisatriði eru á seðlunum en í heild er um 14 at- riði að ræða, m.a. sjálflýsandi áritun og númer, vatnsmerki með andlitsmynd, blindraletur og öryggisþráð. Notkun seðla um 2% hér 14 ÖRYGGISATRIÐI Á ÍSLENSKUM SEÐLUM Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Sigmundur Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra sagði í fyrirspurnar- tíma á Alþingi í gær að hann gengi svo sannarlega ekki í takt við skipu- lagsmál Reykjavíkurborgar og kall- aði þá stefnu sem borgin hefði inn- leitt græðgisvæðingu, líka þeirri sem rekin var fyrir efnahagshrunið. Heiða Kristín Helgadóttir, þing- maður Bjartrar framtíðar, spurði Sigmund Davíð hvernig hann sæi fyrir sér byggðarþróun í Reykjavík ef hún ætti ekki að fara fram sam- kvæmt aðalskipulagi á svæðinu þar sem flugvöllurinn er. „Ég held að sýn hans skipti máli, ég persónulega er full efa um að forsætisráðherra gangi í takt við þá stefnu og strauma sem borgin fylgir,“ sagði þingmað- urinn. Loft gengur kaupum og sölum Sigmundur svaraði því að hann væri ánægður að geta staðfest að hann gengi á móti straumum og stefnu borgarinnar í skipulagsmál- um. „Ég get svo sannarlega staðfest það að ég geng ekki í takt við þá stefnu sem borgin hefur innleitt,“ sagði Sigmundur. „Menn hafa mikið notað orðið græðgisvæðing í þjóð- málaumræðu er varðar aðdraganda efnahagshrunsins. Hvað er annað hægt að kalla það en græðgisvæð- ingu þegar borgaryfirvöld reka stefnu sem beinlínis ýtir undir þenslu á mjög afmörkuðum hluta borgarinnar. Ýtir undir að hið gamla og hið smáa víki og í staðinn komi sem flestir og sem ódýrastir fer- metrar þar sem loftið gengur kaup- um og sölum fram og til baka og stöðugt er lagt ofan á það hærra og hærra gjald. Vonast þannig eftir fleiri fermetrum. Á endanum er borgin að útdeila gríðarlegum verð- mætum til þeirra sem eru reiðubúnir að ganga mest á byggðina sem fyrir er. Það er stefna sem ég mun ekki ganga í takt við þannig að það er ánægjulegt að árétta það hér.“ Tugir milljarða í súginn Heiða Kristín spurði Sigmund Davíð einnig um frumvarp hans um verndarsvæði í byggð og einkum 10. grein frumvarpsins. Spurði hún sér- staklega um byggð í Vatnsmýri. Sigmundur svaraði því að frum- varpið hefði verið lengi í vinnslu og unnið á grundvelli ábendinga þeirra sem störfuðu við minjavörslu. „Ég tel að ákvæðið eða greinin sem spurt er um snúist um mat ýmissa sem starfa í minjavörslu því það hefur komið upp tilvik þar sem illa hefur verið farið með merkar menningar- minjar, jafnvel sem ríkið hefur sett verulegt fjármagn í. Dæmi eru um að ríkið hafi sett tugi milljarða í að gera upp og vernda slíkar minjar, sem eru í rauninni þjóðareign. Svo hafa komið upp álitamál um eignar- hald og fjárfesting ríkisins í menn- ingunni farið forgörðum,“ sagði for- sætisráðherra. Borgin rekur stefnu sem ýtir undir þenslu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Heiða Kristín Helgadóttir  Græðgisvæðing í skipulagsmálum í borginni, segir forsætisráðherra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.