Morgunblaðið - 24.11.2015, Síða 33

Morgunblaðið - 24.11.2015, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2015 Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Samtök eldri sjálfstæðismanna, SES Hádegisfundur SES Eldri sjálfstæðismenn hittast á morgun, miðvikudaginn 25. nóvember, kl. 12:00, í stóra salnum í Valhöll. Húsið verður opnað kl. 11:30. Boðið verður upp á súpu gegn vægu gjaldi, 750 krónur. Gestur fundarins: Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, fjallar um hryðjuverkin í París og öryggi Íslands Allir velkomnir. Stjórnin. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, gönguhópur I kl. 10.15 og vatns- leikfimi í Vesturbæjarlaug kl. 10.50. Eftir hádegi er tálgað í tré og postu- línsmálun kl. 13. Jóga kl. 17, skráning hjá Signýju í síma 894 0383. Árskógar 4 Smíðar, útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Leikfimi með Maríu kl. 9.20-10. Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16. MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Áskirkja Spilað verður í NEÐRI SAL kirkjunnar kl 20. Allir velkomnir. Boðinn Handavinna kl. 9, botsía kl. 10.30, handavinna, brids og kan- asta kl. 13, pennasaumur kl. 13. Bólstaðarhlíð 43 Leikfimi kl. 10.40, útskurður kl. 13, dans kl. 13.30 og leshópur kl. 13. Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14. Dalbraut 27 Handavinnustofa kl. 8, bænastund kl. 9.30, samveru- stund kl. 14. Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð í safnaðar- salnum eftir stundina. Dagskráin í dag er Jólabingó. Spilum, prjónum og syngjum saman. Notarleg og góð samvera. Framhaldssagan og fyrirbænastund í lokin. Hlökkum til að sjá ykkur. Furugerði 1 Handavinna með leiðbeinanda frá kl. 8-16, harðangur og klaustur, perlusaumur, kortagerð og almenn handavinna. Morgun- matur kl. 8.10-9.10. Leikfimi kl. 9.45-10.15. Hádegismatur kl. 11.30- 12.30. Botsía kl. 14. Kaffi kl. 14.30-15.30. Framhaldssögulestur kl. 16.30-17.30. Kvöldmatur kl. 18-19. Nánari upplýsingar í síma 411-2740. Garðabær Qi gong í Sjálandi kl. 9.40. vatnsleikfimi í Sjálandi kl. 7.30 og 15. bútasaumur kl. 13. Opið hús í kirkjunni kl. 13. Bónusrúta frá Jónshúsi kl. 14.45. trésmíði í Kirkjuhvoli kl. 9 og 13. Gerðuberg Handavinnustofa kl. 9-16. Keramikmálun kl. 9-12. Perlu- saumur kl. 9-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10, Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Starf Félags heyrnarlausra kl. 11.30-15.30. Glervinna tyffanys með leiðbeinanda kl. 12.30-16. Gjábakki Handavinna kl. 9, tréskurður kl. 9, stólaleikfimi kl. 9.10, silf- ursmíði kl. 9.30, jóga kl. 10.50, handavinna kl. 13, alkort kl. 13.30, jafn- vægisþjálfun kl. 14, létt hreyfing kl. 15, línudans kl. 18 og samkvæmis- dans kl. 19. Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13.15 hefst með samsöng við undirleik organista. Helgistund, handavinna, spilað og spjallað. Kaffiveitingar. Allir velkomnir. Grensáskirkja Kyrrðarstund kl. 12. Gullsmári Myndlist kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10, kanasta og tré- skurður kl. 13, jóga kl. 17.15. Hallgrímskirkja Liðug á líkama og sál, starf eldri borgara í Hall- grímskirkju þriðjudaga og föstudaga kl. 11-13. Leikfimi, súpa og spjall. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, blöðin og púsl liggja frammi, jóga kl. 8.30, 9.30, 10.30 og 11.30, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30, baðþjónusta fyrir hádegi. Helgistund kl. 14, séra Ólafur Jóhannsson, kaffi kl. 14.30, stólaleikfimi kl. 15. Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, myndlistarnámskeið kl. 9, kennari er Margrét Zóphóníasdóttir, thai chi kl. 9, leikfimi kl. 10, Bónusbíll kl. 12.40, brids kl. 13, Kríur myndlistarhópur kl. 13, bókabíll kl. 14.15, síðdegiskaffi kl. 14,30, enska og spænska falla niður í dag. U3A kl. 17. Allir velkomnir í Hæðargarð, nánar í síma 411-2790. Íþróttafélagið Glóð Línudans í Kópavogsskóla framhaldsstig 3 (2x í viku) kl. 16, kl. 17 framhaldsstig 2 (2x í viku), kl. 18 framhaldsstig 4 (lengst komnir). Uppl. í síma 698-5857 og á www.glod.is Korpúlfar Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9:30, helgistund kl. 10:30 og Qigong kl. 11:00 í BORGUM. Laugarból Nýtt í Ármanni: Leikfimi fyrir 50+ og eldri borgara. Leik- fimi kl. 11 mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga. Fjöl- breyttar æfingar. Allir velkomnir. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja, listasmiðja kl. 9-12, morgunleikfimi í borðsal kl. 9.45, upplestur kl. 11, opin listasmiðja með leiðbeinanda kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl. 14, botsía, spil og leikir kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760. Selið Morgunkaffi og spjall kl. 8.30, framhaldssaga kl. 10, hádegismatur kl. 11.30, Bónusbíll kl. 12.40, handavinnuhópur kl. 13, bókabíll kl. 13.15 og síðdegiskaffi kl. 14.30. Seljakirkja Menningarvaka eldri borgara verður í Seljakirkju í kvöld kl. 18. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra flytur erindi og Páll Rósinkranz sér um dagskrána. Vinsamlegst tilkynnið þátttöku í síma 567 0110. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi sundlaug kl. 7.15. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Helgistund og hádegisverður í kirkjunni kl. 11. Karlakaffi í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 14. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Qi-gong námskeið kl. 10.30, leið- beinandi Inga Björk Sveinsdóttir. Skák kl. 13. Enskunámskeið kl. 15. Vitatorg Bútasaumur og glerbræðsla kl. 9, upplestur framhaldssögu kl. 12.30, handavinna kl. 13 til 15. Félagsvist kl. 13.30. Handavinna og spjall kl. 10 til 12. Bingó kl. 13.30. Jóla- og aðventu-hátíð verður hald- in föstudaginn 4. desember kl. 18. Boðið verður uppá glæsilegt jóla- hlaðborð að hætti hússins, skemmtiatriði, söngur, dans, upplestur, jólahugvekja, happdrætti og dans með Vitatorgsbandinu. Allir vel- komnir og takið með ykkur gesti. Miðaverð er 5.500 kr., skráning fer fram í afgreiðslu og í símum 411-9450 og 822-3028. Félagslíf  Hlín 6015241119 IV/V  FJÖLNIR 6015112419 I EDDA 6015112419 III Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn FASTEIGNA- VIÐHALD Við þjónustum þig með lítil sem stór verk. Tímavinna eða tilboð. johann@jaidnadarmenn.is S. 544-4444/777-3600 www.jáiðnaðarmenn.is Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Hjólbarðar Ódýru dekkin 185/65x14 kr. 10.990,- 185/65x15 kr. 11.990.- 205/55x16 kr. 13.900,- 215/65X16 kr. 17.900,- Hágæða sterk dekk. Allar stærðir. Sendum hvert á land sem er. Bílastofan, Njarðarbraut 11, sími 421 1251 WWW.MBL.IS/MOGGINN/IPAD GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ! ✝ BjörgvinHjaltason, Venni, fæddist í Reykjavík 4. nóv- ember 1932. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 14. nóv- ember 2015. Foreldrar Björg- vins voru Þóra Guð- mundsdóttir og Hjalti Benónýsson, sem bæði eru látin. Eiginkona Björgvins var Daisy Karlsdóttir, f. 26. ágúst 1932, en þau skildu. Börn þeirra eru: 1)Björgvin Karl Björgvins- son, f. 1957, maki Kristbjörg Traustadóttir, f. 1957. 2) Þórir Björgvinsson, f. 1959, maki Þór- ey Ingvarsdóttir, f. 1970. 3) Frið- rik Smári Björgvinsson, f. 1961, maki Guðný Helga Guðmunds- dóttir, f. 1968. 4) Heimir, f. 1965, maki Guðlaug Sig- ríksdóttir, f. 1969. 5) Þorkell Helgi, f. 1967, maki Hrefna Björnsdóttir, f. 1976. Stjúpdóttir Björgvins er Ragn- heiður Anna Þeng- ilsdóttir, f. 1950, maki Halldór Ólafs- son, f. 1948. Björgvin átti fjögur hálfsystk- ini, Guðmund Hjaltason, Guðjón Inga Elías Hjaltason, Jón Berg- þór Hjaltason og Guðbjörgu Hjaltadóttur. f. 1943, sem er ein eftirlifandi. Björgvin verður jarðsunginn frá Akraneskirkju í dag, 24. nóv- ember 2015, og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku Venni. Ekki óraði mig fyrir því að þú værir að fara að kveðja þessa jarðvist. Mig langar að minnast þín með fáeinum orð- um. Ekki vissi ég að þú hefðir verið svona veikur. En núna ertu kominn á góðan stað þar sem ekki eru til veikindi og þjáningar. Ég man þegar þú stóðst fyrir utan Fjöliðjuna og reyktir pípuna þína hvernig sem veðrið var, þeg- ar ég kom hjólandi í vinnuna, og spjallaðir alltaf smá við mig. Ég man þegar ég var nýbúin að vera veik og og fór að keppa í frjálsum, ég kom og sýndi þér öll verðlaunin sem ég vann. Þú stóðst bara þar sem þú varst kominn og góndir á mig með alla verðlaunapeningana hangandi um hálsinn og ég brosandi út að eyrum. Ég man líka grínið með það að þú vildir fá hestinn minn í tunnuna, en það fékkstu sko ekki. Ég man þegar við vorum að grín- ast og öll leikritin sem við lékum saman í, sem ég samdi þegar við vorum með árshátíð Fjöliðjunn- ar. Í eitt skiptið átti ég að skamma þig fyrir að þykjast vera með vín og ég gat ekki leikið því að ég hló svo mikið. Hláturinn kraumaði í mér allan tímann og leikritið fór öðruvísi en ég hafði ætlað. Ég man líka þegar þú sást mig þegar ég var úti að hjóla og þú varst að keyra og flautaðir á mig og geiflaðir þig framan í mig. Það var svo skemmtilegt. Þú sýndir öllu sem ég tók mér fyrir hendur áhuga, perlusaumnum, teikningunum mínum, hesta- mennskunni og fleiru. Ég man líka þegar þú sast í bílnum þínum fyrir utan Bónus og ef ég sá þig ef ég var að fara í hesthúsið, þá var það fyrsta sem ég gerði að hjóla upp að bílnum svo að við gætum tekið smá spjall. Við vorum ekki alltaf sammála um hlutina, en ég fékk að segja mína skoðun og þú sagðir þína skoðun. Elsku Venni, það verður skrýtið að sjá þig ekki rúntandi um göturnar á Akranesi. Ég man líka eftir þeim fallega sið sem þú hafðir, að kíkja alltaf í kaffi í Fjöl- iðjuna á föstudögum á meðan þú hafðir heilsu til þess. Sast alltaf og spjallaðir í góðan tíma. En svona er nú bara lífið, Venni minn. Takk fyrir allt og allt, elsku Venni, og allt skemmtilega grínið þitt. Þangað til næst. Þín vinkona og fyrrverandi vinnufélagi, Áslaug Þorsteinsdóttir. Kveðja frá Fjöliðjunni „Tilvera okkar er undarlegt ferðalag,“ segir í kvæði Tómasar, því „einir fara og aðrir koma í dag“. Þannig endurnýjar lífið sig í sífellu og þeir sem gengið hafa götuna á enda hverfa okkur sjón- um. Það er Vennadagur í dag hljómaði hjá starfsmönnum Fjöl- iðjunnar á föstudögum til fjölda ára. Það var alltaf tilhlökkun þeg- ar von var á Björgvini Hjaltasyni í heimsókn. Venni, eins og Skaga- menn kölluðu hann, hafði þann fallega sið að eftir að hann lét af störfum vegna aldurs sem leið- beinandi við Fjöliðjuna, leit alltaf inn á sínum gamla vinnustað á föstudögum. Það brást aldrei. Síðustu vikur fór heilsu hans að hraka hratt og sú staðreynd að þessi góði og hlýi vinnufélagi hverfi okkur sjónum er okkur öll- um mjög erfið. Hin ljúfa minning um vin sem hafði góða nærveru mun lifa í huga okkar. Brosið og glettnin í augum hans í samtölum við alla vinnufélaga gerði það að verkum að það birti yfir vinnu- stað okkar, Fjöliðjunni, og gerði að betri stað. Sú mikla vinátta og traust sem hann ávallt sýndi okkur er hér að leiðarlokum þökkuð sérstaklega. Í dag kveðjum við starfsmenn Fjöliðjunnar þennan góða vin okkar. Hans er og verður sárt saknað og sendum við fjölskyldu Venna okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Fyrir hönd allra starfsmanna Fjöliðjunnar, Guðmundur Páll Jónsson. Björgvin Hjaltason Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horn- inu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.