Morgunblaðið - 30.11.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2015
Gefðu góðar
minningar í jólagjöf!
Kauptu 5.000 kr. gjafabréf
og þú færð andvirði
7.000 kr.
Kauptu 10.000 kr. gjafabréf
og þú færð andvirði
15.000 kr.
Kauptu 20.000 kr. gjafabréf
og þú færð andvirði
30.000 kr.
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Alls hafa 1.278 hross verið flutt til
18 landa það sem af er ári en allt
árið 2014 voru 1.236 hross flutt út.
Árið stefnir í að vera yfir meðal-
tali síðustu tíu ára. Þetta kemur
fram í tölum frá bændasamtök-
unum.
Langflest hross hafa farið til
Þýskalands eða 478 en fara þarf
fara aftur til ársins 1998 til að
finna álíka tölur. Svíar hafa keypt
næstmest af íslenskum hestum
eða 219 og Danir hafa keypt 152
íslenska hesta. Tvö íslensk hross
hafa verið flutt út til Kanada, eitt
til Lúxemborgar, 15 til Færeyja,
10 til Grænlands og 31 til Banda-
ríkjanna. Stefnt er að því að fara
með hross til Bandaríkjanna fyrir
jól.
Bandaríkjamarkaður
að lifna við á ný
„Markaðurinn í Bandaríkjunum
gengur rólega en hann mallar í ró-
legheitum. Við vorum að vona fyr-
ir tíu til fimmtán árum að hann
gæti orðið stór en hann hefur ver-
ið daufur undanfarin ár. Það eru,
finnst mér, merki þess að hann sé
að vakna á ný,“ segir Hulda Gúst-
afsdóttir hjá Hestviti sem staðið
hefur í útflutningi hrossa síðan
1989.
Netið hefur breytt
kauphegðun fólks
Hún segir að salan hafi verið
mest í dýrum keppnishestum og
að markaðurinn hafi breyst tölu-
vert undanfarin ár.
„Í kringum 1990 komu kaup-
menn og keyptu 30-40 hesta í
einni ferð. Þá hafði maður varla
undan. En þá var markaðurinn
allt öðruvísi, þá komu heildsalar
en núna eru hestarnir keyptir yfir
netið og fólk er mikið að gera
þetta sjálft. Netið hefur breytt
kauphegðun fólks mikið í þessum
geira sem öðrum.“
Mest hefur ver-
ið selt af dýrum
keppnishestum
Útflutningur á íslenska hestinum
gengur vel Flestir til Þýskalands
Útflutningur hrossa
* Fyrstu 11 mánuðir ársins
2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015
Stóðhestar 212 208 168 165 208 189 217
Hryssur 873 791 553 547 672 621 602
Geldingar 691 588 437 424 453 426 450
Samtals 1.776 1.587 1.158 1.136 1.333 1.236 1.269 1.278*
Með flugi Góður undirbúningur
fyrir ferðalagið gerir það auðveld-
ara að sögn Huldu Gústafsdóttur.
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Línubátar hafa verið mun lengur á
miðum fyrir Norðurlandi en venjan
er og landa margir þeirra afla á Siglu-
firði. Fjölmargir bátar frá Suðurnesj-
um og Snæfellsnesi róa á Norður-
landsmið og koma yfirleitt með
mikinn afla í land. Aflanum er síðan
skutlað upp í bíl og hann keyrður á
Suðurnes og Snæfellsnes.
„Það er búið að vera ævintýri hér í
mörg ár. Bátar hafa alltaf komið á
þessar slóðir á haustin en ekki verið
svona lengi,“ segir Steingrímur Óli
Hákonarson hjá Fiskmarkaði Siglu-
fjarðar sem sér um alla löndun á
Siglufirði. Línubátar frá Þorbirni í
Grindavík, þrír bátar Stakkavíkur,
auk heimabáta og báta víðs vegar að
hafa landað miklum verðmætum á
Siglufirði.
„Það er búið að landa um 23-24
þúsund tonnum af bolfiski það sem af
er ári sem er mjög gott. Þó að fisk-
verð sé lægra núna en í fyrra þá selst
fiskur áfram vel. Við seljum aðallega
á Suðurnesin. Lifrarverð hefur hækk-
að undanfarin ár og fiskkaupendur
vilja kaupa innmatinn líka,“ segir
Steingrímur. Hann segir að hafnar-
bryggjan sé orðin gömul og lúin og
fagnar áformum Fjallabyggðar að
ráðast í framkvæmdir. „Það verður
byrjað í febrúar, þá verður rekið nið-
ur nýtt þil og allt stækkað. Þetta eru
framkvæmdir sem verða búnar 2017.
Elsta hafnarbryggjan, sem er mest
notuð, var orðin gömul og lúin,“ segir
Steingrímur.
Gullhólmi frá Stykkishólmi hefur
verið á miðunum fyrir norðan frá því
að hann var afhentur í október en
skipið er smíðað á Akureyri. Gull-
hólmi er 30 brúttótonn að stærð, um
13,7 metra langur og 5,7 metra breið-
ur og er ríkulega búinn vélum og
tækjum. Íbúðir eru fyrir 8 skipverja í
4 tveggja manna klefum, ásamt setu-
stofu, borðsal, eldhúsi, baðherbergi
og þvottahúsi.
Skipið er snilld
Báturinn hefur ekki enn komið til
heimahafnar, en mikil ánægja er með
nýjan Gullhólma: „Skipið hefur
reynst frábærlega það sem af er,“
segir Pétur Erlingsson skipstjóri á
Gullhólma. „Það er bara eitt orð yfir
þetta skip, snilld,“ segir hann glaður.
Fimm eru um borð í einu og er hver
áhöfn um borð í tvær vikur, en þá er
skipt um áhöfn. Pétur segir að öll
þjónusta á Siglufirði sé góð og ákaf-
lega gott er að landa þar. „Það er
mjög gott. Það er hugsað fyrir öllu,
það er meira að segja pöbb á bryggj-
unni.“
Steingrímur, segir að flestir skip-
verjar séu ánægðir með þjónustustig-
ið sem veitt er á Siglufirði.
„Það er allur pakkinn hérna, tvö
öflug verkstæði, bílaleiga og kafari
sem línubátarnir hafa verið duglegir
að nota. Bakaríið er yfirleitt fullt og
bílaleigan sem við erum með er vel
nýtt. Það er oft öflugri þjónusta úti á
landi en í borginni, þó að menn haldi
oft annað.“
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Heim úr róðri Sigurborg SH 12 kemur til hafnar í Siglufirði í roki, en bátar víða að hafa landað þar í haust.
Líflegt á bryggjunni
á Siglufirði í haust
Byrjað að byggja nýja bryggju í febrúar Hátt þjónustustig
Ljósmynd/Guðmundur Gauti Sveinsson
Gullhólmi Hefur landað grimmt á
Siglufirði frá að báturinn hóf róðra.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Rúmlega 20 þúsund heilsdagsígildi
voru í leikskólum á Íslandi árið 2014.
Hafði börnum á leikskóla þá fjölgað
um 2% frá því árið á undan. Þetta er
meðal þess sem fram kemur í Tíð-
indum, tímariti Sambands sveitarfé-
laga á Íslandi, sem kom út í nóv-
ember.
Í tölfræðiupplýsingum sem þar
eru framsettar má sjá ýmsar tölur
um rekstrarkostnað leikskóla í land-
inu. Fram kemur að heildarrekstr-
arkostnaður var 31,6 milljarðar
króna þegar ekki er tekið tillit til
innri leigu. Launakostnaður í leik-
skólum sveitarfélaga nam um 77% af
heildarrekstrarkostnaði þeirra.
Tekjur fyrir veitta þjónustu í leik-
skólunum voru rúmir fimm millj-
arðar kr. á árinu, þannig að nettó-
kostnaður við rekstur leikskólanna
var rúmir 26 milljarðar kr. Það eru
um 13% af skatttekjum sveitarfélag-
anna. Eins kemur fram að fjöldi
stöðugilda í leikskólum var 4.883
sem er eitt stöðugildi á hver fjögur
börn.
Rúmlega 20 þúsund
leikskólabörn árið 2014
Nettókostnaður við rekstur leikskóla um 26 milljarðar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Leikskólabörn Restrarkostnaður leikskóla var 31,6 milljarðar króna árið
2014. Eitt stöðugildi er fyrir hver fjögur börn á leikskóla að meðaltali.