Morgunblaðið - 30.11.2015, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2015
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
Segja má að jólaundirbúningur
landans hafi byrjað formlega nú um
helgina, en í gær var fyrsti sunnu-
dagur í aðventu. Víða var kveikt á
ljósum jólatrjáa sem eru í mið-
bæjum flestra kaupstaða landsins.
Þetta er jafnan hátíðleg stund og
skemmtileg, því nú eru fyrstu jóla-
sveinarnir á stjákli þó formlega
komi þeir ekki til byggða fyrr en
þrettán dögum fyrir hátíðina. Þetta
kætir börnin, sem flykkjast á svæð-
ið með foreldrum sínum.
Morgunblaðið/Eggert
Grafarvogskirkja Fermingarbörn komu fram á aðventusamkomu í gærkvöldi og spádómskertið var tendrað.
Jólaljós um land allt
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Hérað Á Óbyggðasetrinu á Egilsstöðum í Fljótsdal. Tvíburasysturnar Snæ-
dís og Friðný skottuðust spenntar í umstanginu við undirbúning jólanna.
Kópavogur Krakkarnir skemmtu sér vel þegar dansað var í kringum
jólatré á aðventuhátíð við menningarhús bæjarins á Borgarholtinu.
Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
Húsavík Jólatréð í miðbænum þykir vera staðarprýði. Það er fagurlega
skreytt og er fengið úr garði íbúðarhúss sem stendur við götuna Álfhól.
Ljósmynd /Ágústa Friðriksdóttir
Akranes Högna og Laila Þórodds-
dætur kveiktu ljósin á jólatrénu.