Morgunblaðið - 30.11.2015, Side 19

Morgunblaðið - 30.11.2015, Side 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2015 ✝ Jóna Þorvalds-dóttir fæddist 23. júlí 1935 á Fá- skrúðsfirði. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Hömrum 16. nóv- ember 2015. Foreldrar henn- ar voru Þorvaldur Sveinsson, f. 1898, og Guðrún Sig- urborg Vilbergs- dóttir, f. 1906. Systkini Jónu: Guðrún, Hreinn, Ragnar, Magnús og fóst- urbróðir, Sveinn Rafn Ingason. Ragnar, Magnús og Sveinn Rafn lifa hana. Maki Jónu: Eiríkur Grétar Sigurjónsson, f. 24. mars 1935 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Sigurjón Eiríksson, f. 1899, og Una Lilja Pálsdóttir, f. 1906. Börn Jónu og Eiríks eru Sig- urjón, kvæntur Helgu Ein- arsdóttur, þeirra börn Einar, Arnar og Kristrún. Þorvaldur kvæntur Sólveigu Garð- arsdóttur, þeirra synir Arnar og Jóhann. Una Lilja gift Ævari Sigdórssyni, þeirra börn Hildur og Grétar Þór, Helgi Þór kvænt- ur Önnu Níelsdóttur, þeirra börn Níels og Steinunn, Sigrún, maki Vilhjálmur Matthíasson, þeirra dætur Íris, Tinna og Lísa. Barna- börnin eru 11 tals- ins. Jóna stundaði nám á Eiðum og lauk þaðan prófi. Flutti til Reykjavík- ur 18 ára og bjó þar til 1964, er þau fluttu í Mosfellsbæ, nánar á Skólabraut 1, og bjuggu þau þar til 2001 er þau fluttu í Spóahöfða 18, í sambýli við Sig- rúnu dóttur þeirra. Jóna veiktist 2013 og flutti þá á hjúkr- unarheimilið Hamra í Mos- fellsbæ, þar sem hún lést. Jóna vann ýmis störf, á Ála- fossi, í Kjörval og fleira. Hún var mikil félagsvera, elskaði ferða- lög, hannyrðir og fjölskylduna. Hafði yndi af að ferðast um land- ið og var mikil fróðleiksnáma um menn, málefni og staðhætti. Hún fór nokkrar ferðir til út- landa, og varð henni oft tíðrætt um þær ferðir. Foreldrar henn- ar og tengdafaðir voru til heim- ilis hjá henni á sínu ævikvöldi. Útför Jónu verður gerð frá Lágafellskirkju í dag, 30. nóv- ember 2015, kl. 15. Mig langar að minnast í örfáum orðum tengdamóður minnar, Jónu Þorvaldsdóttur. Okkar fyrstu kynni voru eftir- minnileg, hún bauð mig velkominn í fjölskylduna á sinn rólega hátt, ekkert var eðlilegra en að ég flytti inn á Skólabrautina og bættist þar með í þann hóp sem þar var fyrir. Þá bjuggu þar hún og Grétar, fimm börn og foreldrar Jónu. Eftir þetta átti eftir að fjölga, við urðum 11 í heimili og oft var fjör. Ég get varla sagt að ég hafi séð tengdamóður mína skipta skapi. Hún var róleg og umhyggjusöm, leyfði unglingunum hæfilegt frjáls- ræði, var þó ákveðin er á þurfti að halda. Mér tók hún vel frá fyrstu tíð. Hún rakti ættir okkar saman til Fossársdals í Berufirði, hún var stolt af austfirskum uppruna, „Fossárdalsþrjóskan“ var gæða- stimpill, merki ákveðni og þraut- seigju. Jóna var fróð um Ísland, ættir og sögu. Fátt fannst þeim hjónum skemmtilegra en ferðalög, fyrst með tjald, seinna var smíðaður öfl- ugur húsbíll. Helst þurftu allir að vera með, börn og barnabörn. Í þeim hópi var tengdamamma hrókur alls fagnaðar, tengdapabbi hitaði kaffi á sinn rólega hátt, greinilegt var þó að þetta var hon- um að skapi. Minnisstæðar eru komur Jónu til okkar Unu Lilju í Hornbjargsvita. Henni fannst það lítið mál að ferðast fyrst 400 km í bíl, síðan í þrjá tíma í bát og vera svo ferjuð í land í gúmmítuðru. Hún kom tvisvar til okkar og naut hverrar mínútu, eins og við gerð- um líka, því við skynjuðum gleði hennar yfir ævintýrinu. Jóna og Grétar fluttu í Mosfells- sveitina 1963, á Skólabraut 1. Öll börn þeirra búa enn í Mosfellsbæ, það lýsir best samheldni fjölskyld- unnar, þessari samheldni sem Jóna og Grétar skópu. Þessi sam- heldni hefur haldið og flest barna- börnin búa einnig í Mosfellsbæ, hér er okkar staður. Síðan veikist Jóna fyrir tveimur árum og þurfti að leggjast inn á hjúkrunarheimili. Það var þó lán að hún fékk inni á nýju hjúkrunar- heimili, Hömrum í Mosfellsbæ, í námunda við ástvini sína. Þar naut hún góðrar umönnun- ar og atlætis, Grétar heimsótti hana daglega og börnin komu reglulega. Henni leið vel á Hömr- um eftir aðstæðum, smátt og smátt dró þó af henni, stundum var hún veik, en hresstist ótrúlega þess á milli. Ég og Una hittum hana skömmu fyrir andlátið, hún leit vel út og ég sagði er við kvöddum „sjáumst fljótt aftur“ og hún svar- aði „já, í næstu heimsókn“. Hún lést að kvöldi 16. nóvember sl. Jóna skilur bara eftir sig góðar minningar, minningar um góða móður, eiginkonu, ömmu og lang- ömmu. Hrókur alls fagnaðar er fólk kom saman. Hún hætti ekki að bjóða til nýársfagnaðar fyrr en íbúðin rúmaði ekki fleiri afkom- endur. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég þessa sómakonu, sem af- sannaði allar sögur um tengda- mömmur, hún var yndisleg og við munum öll sakna hennar, takk fyr- ir allt. Ævar og fjölskylda. Elsku amma okkar. Nú þegar þú ert farin, streyma minningarnar fram hjá okkur systkinunum og þær eru ekki fáar. Þú varst yndisleg amma sem alltaf varst tilbúin til að hlusta, alltaf í góðu skapi og innilegi hláturinn þar sem tárin trilluðu niður kinn- arnar fær okkur enn í dag til að brosa, en einnig til að sakna. Það eru forréttindi að hafa átt þig sem ömmu. Öll ferðalögin, hvort sem það var til Þýskalands, í Þjórsár- dalinn, á Malarrif eða í Horn- bjargsvita, alltaf varst þú hrókur alls fagnaðar og hinn besti félags- skapur. Við erum svo heppin að vera hluti af þeirri samheldnu fjöl- skyldu sem þú og afi sköpuðuð. Öll börnin ykkar og stór hluti barna- barnanna búa enn í Mosfellsbæn- um og tilhlökkunin er alltaf jafn mikil fyrir hvert einasta fjölskyldu- boð. Fjölskyldan er það mesta sem skiptir máli og það vissir þú. Við heiðrum minningu þína með því að halda áfram að huga að fjöl- skyldunni, við skulum einnig gera okkar besta í að passa að afi svindli ekki þegar hann leggur kapal. Við látum fylgja með eitt erindi úr lag- inu Rósin, sem á svo vel við þig. Elsku afi, Sigurjón, Þorvaldur, mamma, Helgi Þór og Sigrún, við vottum ykkur okkar dýpstu sam- úð, en við vitum að það er gott fólk þarna hinumegin sem tekur á móti henni og þau hafa sjálfsagt nóg að tala um. … Finna hjá þér ást og munað yndislega rósin mín. Eitt er það sem aldrei gleymist, aldrei það er minning þín. (Guðmundur G. Halldórsson.) Hildur og Grétar. Jóna Þorvaldsdóttir  Fleiri minningargreinar um Jónu Þorvaldsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Örlygur Ívarssonfæddist í Ólafsvík 2. apríl 1931. Hann lést 19. nóvember 2015. Foreldrar Örlygs voru Ívar Þórðarson frá Ólafsvík, síðar bóndi í Arney á Breiðafirði, f. 4.1. 1904, d. 5.5. 1983, og kona hans, Sigrún Hólmfríður Guð- björnsdóttir frá Sveinsstöðum í Neshreppi á Snæ- fellsnesi, f. 4.2. 1900, d. 3.3. 1999. Systkini Örlygs eru Björg Ív- arsdóttir, f. 25.8. 1928, Helga Ív- arsdóttir, f. 7.2. 1930, Brynjar Ívarsson, f. 8.7. 1933, d. 25.10. 2003; Leifur Ívarsson, f. 23.1. 1935, Svala Ívarsdóttir, f. 10.11. 1937, d. 19.7. 2009. Örlygur kvæntist 24.12. 1961 Bryndísi Ármann Þorvaldsdóttur, f. 17.4. 1940, íþróttakennara. Hún er dóttir Þorvalds Jóns- ertsdóttur og dóttir þeirra er Ísa- bella, f. 16.12. 2001. 3) Harpa María, f. 9.7. 1972, gift Andra Stefánssyni, f. 20.10. 1972, og börn þeirra eru Viktor Örlygur, f. 5.2. 2000, og Arney María, f. 21.1. 2004. Örlygur ólst upp á Hellissandi og í Reykjavik en var auk þess í Arney á Breiðafirði öll unglings- árin. Hann var búsettur í Kanada í tvö ár við ýmis störf, bjó á náms- árunum á Akranesi í þrjú ár, var við nám og störf í Danmörku á ár- unum 1962-1970, var síðan tækni- fræðingur í Borgarnesi en hefur síðan verið búsettur á Akureyri. Örlygur lauk vélstjórnarprófi 1953, lauk prófum sem vélvirki 1961, lauk rekstrartæknifræði- prófi frá Danmörku 1968. Örlyg- ur stundaði sjómennsku í tíu ár. Hann var tæknifræðingur í Borg- arnesi í tvö ár og síðan á Ak- ureyri tíu ár en auk þess var hann kennari við Verkmenntaskólann á Akureyri í tuttugu og átta ár. Útför hans fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag, 30. nóv- ember 2015, kl. 13.30. sonar, f. 11.10. 1918, d. 19.06. 2003, og Maríu Stefánsdóttur, f. 20.2. 1920, d. 17.4. 2003. Börn Örlygs og Bryndísar eru: 1) Ormarr, f. 24.11. 1962, kvæntur Valgerði Önnu Vilhelms- dóttur, f. 25.7. 1964, og eru börn þeirra a) Erla, f. 26.6. 1983, sam- býlismaður hennar er Andri Hjörvar Albertsson, f. 13.8. 1980, börn þeirra eru Karlotta Björk, f. 7.7. 2007, og Heiðmar Tumi, f. 15.6. 2009. b) Almarr, f. 25.2. 1988, sambýliskona hans er Ás- gerður Stefanía Baldursdóttir, f. 5.1. 1987. c) Vala, f. 28.4. 1996, kærasti hennar Aron Gauti Magnússon, f. 4.7. 1997. d) Arna, f. 6.6. 1998. 2) Þorvaldur, f. 2.8. 1966, kvæntur Ólöfu Mjöll Ell- Elsku pabbi. Það er ekki hægt að segja að þessi kveðjustund komi óvænt. Það þýðir þó ekki að það sé á neinn hátt léttbærara eða að maður sé undir það búinn þegar svo að því kemur að skilja. Veik- indin höfðu herjað á í langan tíma og síðustu fjögur ár verið erfið fyrir þig. Ekki síst sú staðreynd að hreyfanleikinn minnkaði og meira og meira þurfti að reiða sig á aðra til að komast um. Þá kom sér reyndar vel þessi þrautseigja og kannski þrjóska, t.d. var ekki gefið eftir að fara það sem þú ætlaðir að fara og vera viðstaddur. Ég ímynda mér að þetta mótist að einhverju leyti af því umhverfi sem þú kemur úr. Sjálfur hef ég ekki þreyst á að segja frá því þegar afi og amma, foreldrar þínir, ákváðu eftir að hafa baslað á Hell- issandi og síðar í Reykjavík, að flytja með allan skarann út í Arney á Breiðafirði. Þetta gerðist á miðju stríði, uppgangstíma í Reykjavík, þá ákvað afi að gerast óðalsbóndi, tók börnin úr skóla þar án frekari formála. Samt barðist þú áfram, hélst áfram að læra, kláraðir vél- virkjun og tókst þig svo loksins til og skelltir þér í nám til Danmerkur 30 að aldri. Ég held að það hljóti að hafa verið einsdæmi. Það þvældist ekki fyrir þér að kvænast á þessum sama tíma og stofna fjölskyldu, út skyldi farið. Þegar ég lít yfir þann tíma sem við áttum saman minnist ég stuðn- ings við hvaðeina sem við systkinin tókum okkur fyrir hendur. Þó að íþróttir skipi þar hugsanlega stærstan sess var margt annað sem kom þar inn. Þá tókst þú skíðabakteríuna þannig að það var ekkert gefið eftir að skella sér í fjallið hvernig sem viðraði. Eftir á að hyggja þá er það líka dæmi um seigluna að til að fylgja okkur hefur þú sennilega byrjað þína skíðaiðk- un kominn yfir fertugt. Að sjálf- sögðu var svo fótboltaáhuginn mest smitandi og þar fólst stuðn- ingurinn ekki síst í því að þú starf- aðir með KA í knattspyrnudeild- inni í fjölda ára sem stjórnarmaður og formaður deildarinnar. Þó held ég að þú hafir náð toppnum þegar barnabörnin fóru að koma, þá varstu í essinu þínu. Það sem ekki var brasað eða þurfti að gera. Spil, leikir og íþróttavið- burðir voru stór hluti af þessu og heilu mótin haldin. Þó var í öllu þessu undirliggjandi að læra eitt- hvað með, afar oft var reiknings- kennsla færð í leikbúning sem dæmi. Við Vallý vorum svo heppin að þar áttu krakkarnir okkar öruggan samastað þegar þurfti og virðist aldrei hafa verið neitt mál að passa krakkana þegar þurfti. Meira að segja langafabörnin fengu notið samvistanna og var enn eftir glettni og áhugi á þeirra hugðarefnum. Elsku pabbi, þegar ég fer yfir árin okkar saman verður mér enn betur ljóst hversu stoltur ég er af þér og því sem þú hefur kennt okk- ur og staðið fyrir. Það koma svo augnablik þegar maður heyrir sjálfan sig bergmála gamla frasa eða brandara frá þér, þá var fyrsta hugsunin áður fyrr, „nei, ég ætlaði ekki að tala svona“. Í dag er ég bara ánægður með það og lít á það sem tilvitnun í spakan mann. Pabbi minn, þakkir fyrir allt sem þú hefur eftirlátið okkur. Þakkir frá okkur Vallý, krökkun- um okkar og barnabörnum. Ormarr. Elsku pabbi, tengdapabbi og afi okkar hefur kvatt þennan heim eft- ir löng og erfið veikindi. Við kveðjum hann með sorg og söknuði, en einnig þakklæti. Við eigum honum svo margt að þakka, svo sem allan hans stuðning og hvatningu við nám og íþróttir. Pabbi var duglegur maður og þegar við vorum yngri þreyttist hann aldrei á því að þeytast með okkur á skíði eða aðra íþróttavið- burði. Hann var þrjóskur og gafst ekki svo auðveldlega upp og það lýsir honum vel að þegar vegurinn upp í fjall var ísilagður og ómögu- legt að komast upp á afturhjóla- drifnum bíl, þá bakkaði hann upp. Pabbi var mjög stoltur af því að taka strákana sína á lundaveiðar á sínar heimaslóðir við Breiða- fjörðinn og kenna þeim til verka. Hann elskaði barnabörnin sín heitt og fylgdist vel með þeirra daglega lífi og spurði til þeirra alveg fram á síðasta dag. Það eru margar minn- ingar sem koma upp í hugann á þessari stundu og við munum halda vel í þær. Við kveðjum þig, elsku pabbi, með þessu kvæði og þökkum fyrir að hafa átt þig að. Englar guðs þér yfir vaka og verndi pabbi minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum okkar hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góðleg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkur til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skína inn þá gleður okkur minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem fórum við um landið út og inn er fjársjóðurinn okkar, pabbi minn. (Denver/Guðrún Sigurbjörnsdóttir.) Harpa María Örlygs- dóttir, Andri Stefánsson, Viktor Örlygur og Arney María. Þorvaldur Örlygs- son , Ólöf Mjöll Ellerts- dóttir og Isabella. Örlygur Ívarsson  Fleiri minningargreinar um Örlyg Ívarsson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. ✝ Birgir Þórð-arson fæddist 26. september 1938 í Reykjavík. Hann lést á Dvalarheim- ilinu Lundi 15. nóv- ember 2015. Foreldrar hans voru Þórður Þor- grímsson, f. 19. október 1910 í Reykjavík, d. 14. febrúar 1989, og Vilborg Jónsdóttir, f. 12. júní 1905 í Reykjavík, d. 18. apríl 1944. Alsystkin Birgis: Þorgrímur Þórðarson, f. 1934, d. 2009. Bjarni Valgarður Þórð- arson, f. 1940. Sverrir Þórðarson, f. 1941. Systkin samfeðra: Þórður, f. 1947, d. 2011, og Alda Særós, f. 1949. Fyrri maki: Adda Valgerður Þorsteinsdóttir, f. 19. janúar 1937, d. 6. apríl 2010. Þau skildu árið 1983. Seinni maki: Marianne Ósk B. Nielsen, f. 26. nóvember 1948, þau skildu árið 1997. Börn Birgis og Öddu eru: 1) Vilborg Salóme, f. 18. janúar 1956, maki Arnviður Unnsteinn 1987. Barn þeirra er Katrín Emma, f. 15. júlí 2014. d) Leifur, f. 3. janúar 1995. 3) Sigurbjörg Helga, f. 16. maí 1964, barnsfaðir Ragnar Hjálmar Ragnarsson, f. 1. maí 1959, d. 8. maí 1994. Barn þeirra er Sindri Rafn, f. 11. ágúst 1986. Barns- faðir Arnar Tryggvason, f. 27. febrúar 1969, börn þeirra eru Ingibjörg Vala, f. 12. júní 2001 og Viktoría Ír, f. 14. apríl 2004. 4) Steinlaug Birgisdóttir, f. 8. nóvember 1967, maki Gunnar Kristjánsson, f. 3. maí 1971, börn þeirra eru Elvar Snær, f. 7. sept- ember 1999, og Adda Kristín, f. 17. júlí 2004. 5) Guðrún Kristmanns Birg- isdóttir, f. 7.janúar 1969, maki Eyjólfur Ólafsson, f. 20. mars 1962. Börn þeirra eru: a) Hrann- ar Máni, f. 2. febrúar 2000, b) Sól- dís Eva, f. 29. desember 2001, og c) Nökkvi Svan, f. 16. desember 2003. Börn Birgis og Mariönnu eru: 6) Benjamín Aage Birgisson, f. 2. ágúst 1983, barnsmóðir Íris Rán Símonardóttir, f. 15. maí 1987. Barn þeirra er Aníta Björg, f. 2.júní 2007. 7) Rikard Arnar Birgisson, f. 20. janúar 1988, maki Linda Ramdani, f. 17. júlí 1991. Útför Birgis fer fram frá Sel- fosskirkju í dag, 30. nóvember 2015, klukkan 14. Marvinsson, f. 17. ágúst 1947. Börn þeirra eru: a) Vignir Þór, f. 13. júlí 1975. b) Unnur Ósk, f. 6. nóvember 1983, barnsfaðir Finnbogi Jónasson, f. 13. apríl 1982. Barn þeirra er Frosti, f. 19. maí 2010. c) Steinn Atli, f. 12. ágúst 1985, maki Birgitta Ragn- arsdóttir, f. 22. apríl 1989. 2) Margrét Eygló, f. 2. október 1958. Fyrri maki Sigmundur Ces- ar Karlsson, f. 28.nóvember 1954. Börn þeirra eru: a) Hörður Ár- sæll, f. 16. apríl 1982, barnsmóðir Signý Egilsdóttir, f. 18. febrúar 1987. Börn þeirra Erla Margrét, f. 18. maí 2009, og Kolbrún Emelía, f. 2. júlí 2012. b) Eydís Rós, f. 25. apríl 1984, maki Ingvar Guðni Ingimarsson, f. 18. febrúar 1978. Börn þeirra: Þórunn Eva, f. 6. desember 2007, Eyþór Berg- mann, f. 29. september 2009, og Greta Sóley, f. 9. júlí 2015. Seinni maki Margrétar er Auð- unn Leifsson, f. 16. ágúst 1955. Börn þeirra eru: c) Guðrún, f. 28. febrúar 1991, maki Kristján Sig- urjónsson Saithong, f. 5. febrúar Elsku afi. Hjartans þakkir fyr- ir allar stundirnar okkar saman, þá vináttu og traust sem þú sýnd- ir okkur alla tíð. Á stundu sem þessari hellist yfir okkur heilt haf af yndislegum minningum. Heimsóknir í Stekkholtið, þegar þú komst í sunnudagsbíltúr aust- ur í Landeyjar með ís og fékkst meðal annars viðurnefnið „afi-ís“, veiðiferðir með misgóðum afla og príla upp á Stóra-Dímon. Þú lést ekkert stoppa þig. Alltaf tilbúinn að hjálpa og vildir alltaf allt fyrir okkur gera. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Við höldum áfram lífsins leið með minningar okkar um þig í veganesti og geymum þig í hjartastað um ókomna tíð. Þín afabörn, Hörður Ársæll, Eydís Rós, Guðrún og Leifur. Nú allur er minn ástkæri frændi Birgir, fjölskyldan í Hlaðbæ öll hann syrgir. Því gleði og elsku hann með sér bar, hvenær sem hittumst, þá líka hvar. Í margþættu lífshlaupi margt mátti reyna, fimm eignaðist dætur og tvo hrausta sveina. Er loka ég augum sé brosið hans bjarta, í minningunni hann ávallt mun skarta. Fjölskyldu hans samúðarkveðjur færi, ef hans ekki notið við snauðari ég væri. Bergrós Þorgrímsdóttir. Birgir Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.