Morgunblaðið - 30.11.2015, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2015
Hafliði Jónsson, ráðgjafi í öryggis- og eftirlitsmyndakerfum, er45 ára í dag. „Það er mikil þróun í þessum heimi og miklarbreytingar. Maður þarf að vera á tánum og fylgjast vel með í
þessum bransa, en ég er búinn að starfa í honum í átta ár. Ég er fyrst
og fremst að gefa ráðgjöf fyrir fyrirtæki og þetta snýr að mestum
hluta að aðgangsstýringarkerfum og eftirlitsmyndakerfum. Fólk er
skynsamt og fer ekkert offari í þessum málum.
Þegar vinnunni sleppir þá er maður í golfinu á sumrin og skotveið-
inni á haustin og svo almennu vetrarstússi.
Ég er búinn að vera í gæsaveiðinni undanfarin ár og gott að eiga
eitthvað í frystikistunni. Veiðin gekk ágætlega núna, ég tók heim með
mér átta fugla, en við veiðifélagarnir deilum því sem við veiðum jafnt
út. Þetta dugar alveg, maður er svo nægjusamur. Gæsin er samt ekki
jólamaturinn hjá okkur, sænsk jólaskinka sem er heimatilbúin frá
grunni er jólamaturinn.“
Eiginkona Hafliða er Agnes Stefánsdóttir, fornleifafræðingur og
sviðsstjóri á Minjastofnun Íslands, og börn þeirra eru Þorsteinn Már
22 ára, Andrea Sif 16 ára, en hún á einnig afmæli í dag, og Óskar Páll
10 ára.
Ráðgjafinn Hafliði hefur sinnt öryggismálum í átta ár.
Sinnir ráðgjöf í
öryggismálum
Hafliði Jónsson er 45 ára í dag
Þ
ór fæddist í Vestmanna-
eyjum 30.11. 1945 og
hefur alið þar allan ald-
ur sinn en skrapp í
land í gosinu:
„Bernskuminningarnar snúast um
bryggjurnar í Eyjum og nágranna
mína, feðgana Guðjón Jónsson í
Hlíðardal og Bergþór son hans.
Þeir ráku útgerð og búskap og
leyfðu mér að skottast með sér,
fara á sjó, í eggjatínslu og sækja
fé í úteyjar.
Ég var í sveit í Austvaðsholti á
Rangárvöllum og í Ásgarði í Reyk-
holtsdal, hjá góðu fólki. Þar kynnt-
ist ég búverkum eins og þau tíðk-
uðust áður en vélvæðingin kom
til.“
Þór æfði og keppti í knattspyrnu
með íþróttafélaginu Þór og lék um
skeið með meistarflokki ÍBV, en
faðir hans hafði starfað mikið með
Þór og sat þar í stjórn um skeið.
Þór Ísfeld Vilhjálmsson, starfsmannastjóri í Eyjum – 70 ára
Stór hópur Þór með Sólveigu, Maríu, móður sinni, börnum, tengdabörnum, barnabörnum og eina langafabarninu.
Félagslyndur Eyjapeyi
Jökull Blöndal Björnsson, Hlynur Þorri Helguson, Fróði Reyr Hákonarson, Óð-
inn Bragi Sævarsson og Jóel Þeyr Kárason héldu tombólu í Grafarvoginum og
gáfu Rauða krossinum ágóðann, 6.654 kr.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino