Víkurfréttir - 17.09.1987, Blaðsíða 11
10 Fimmtudagur 17. september 1987
Daníel fékk
langflest
stig
Uaníd Einarsson, miðvörðurinn
sterki i Víði, varð langefstur í stiga-
keppni Víkur-frétta. Daníel fékk 25
stig, 8 stigum meira en Sigurður
Björgvinsson, ÍBK, sem kom
næstur.
Endanlcg úrslit urðu þessi i
stigagjöfinni hjá þeini sem fengu 5
stig cða lleiri:
Daníel Einarsson, Víði .......... 25
Sigurður Björgvinsson, ÍBK .... t7
Gunnar Oddsson, ÍUK ............. 14
Vilhjálmur Einarsson, Viði..... 13
Peter Earrcll, ÍBK .............. 13
Grétar Einarsson, Víði .......... 12
Öorsteinn Ujarnason, ÍBK ........ 12
Bjöm Vilhelmsson, V'iði ......... 12
.lóhann Magnússon, ÍBK ........... 9
Vilberg Þorvaldsson, Víði...... 9
Óli Þór Magnússon, ÍBK ........... 8
Guðjón Guðmundsson, Viði .... 8
Ingvar Guðmundsson, ÍBK........ 8
Gísli lleiðarsson, Viði .......... 7
Prcyr Bragason, ÍBK .............. 5
Júlíus Pétur
„Markakóngur
Víkur-frétta“
Ekki tókst leikmönnum 1. deild-
arliðanna að ógna Júliusi Pétri Ing-
ólfssyni, UMFG, sem skoraði 19
mörk í íslandsmótinu og hlýlur þar
með titilinn „Markakóngur Víkur-
frétta 1987”. ívar Guðmundsson úr
Reyni var markahxstur na‘r allt
keppnistímahilið og lengi vel leit út
fyrir að hann ynni titilinn. En 6
mörk Júlíusar í síðasta leiknum
réðu úrslitum. Leikmenn 1. deild-
arliðanna blönduðu sér ekki í þessa
baráttu, Óli Þór Magnússon, ÍBK,
varð efstur með 7 niörk og síðan
kmn Grétar Einarsson, Víði, með 6
mörk.
Lokastaðan hjá markahæstu
mönnum á Suðurnesjum í íslands-
mótinu í knattpsyrnu 1987 varð
þessi:
Július P. Ingólfsson, UMl'G .... 19
ívar Guðmundsson, Reyni ......... 15
Símoti Alfreðsson, UMFG ......... II
Hjálmar Hallgrimsson, UMFG .. 9
Kjartan Einarsson, Revni ......... 8
Oli Þór Magnússon, ÍBK ........... 7
I lalldór Halldórsson, llöfnum ... 7
Jón Ólafsson, UMFN................ 7
Grétar Einarsson, Víði ........... 6
Ólafur Sólmundsson, Höfnum ... 5
Guðhjörn Jóhannsson, UMFN .... 5
Guðmundur Fr. Jónass., Höfnum 5
Petor Farrell, ÍBK ............... 4
Vilberg Þorvaldsson, Víði........ 4
frausti I lafsteinsson, UMFN ... 4
Ari Haukur Arason, Reyni......... 4
t
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
\
Atta Suðumesjadömur
í körfuboltalandsliðið
Atta stúlkur af Suðurnesjum
hafa verið valdar í körfubolta-
landslið stúlkna 21 ársogyngri,
sem leika mun 4 leiki í Skot-
landi um aðra helgi.
Fjórar eru úr Keflavík, þær
Anna María Sveinsdóttir,
Björg Hafsteinsdóttir, Kristín
Blöndal og Margrét Sturlaugs-
dóttir. þrjár eru úr Grindavík,
þær Marta Guðmundsdóttir,
Guðrún Sigurðardóttir og
Ragnheiður Guðjónsdóttir.
Ein er úr Njarðvík, Harpa
Magnúsdóttir.
Landsliðið fer til Edinborg-
ar næsta fimmtudag og leikur
4 leiki við félagslið í sam-
nefndri borg og síðan komið
heim á þriðjudeginum.
Telja verður þetta góðan ár-
angur hjá stúlkunum á svæð-
inu, að vera uppistaðan í
landsliði Islands og gefur til-
efni til bjartsýni um betri ár-
angur hjá félagsliðunum á
Suðurnesjum, sem staðið hafa
í skugga Reykjavíkurfélag-
anna í körfubolta kvenna.
\
J
Hluti verðlaunahafa í Tékk-Kristal golfmótinu
Ljósm.: J.Ben.
SIGGARNIR
SIGRUÐU
Tékk-Kristal mótið í golfi
fór fram á Hólmsvelli í Leiru
um síðustu helgi. Leiknar voru
18 holur með og án forgjafar,
karlaflokkur á laugardag og
kvenfólkið á sunnudag.
Það var ekki gæfulegt veðrið
sem 97 þátttakendur fengu.
Hávaðarok úr norðri, 7-8
vindstig og varla stætt. En
golfarar létu það ekkert ásig
fá, alla vega ekki sigurvegar-
arnir, Sigurðarnir, Sigurðsson
og Friðjónsson. Sá fyrrnefndi
lék sannkallað meistaragolf i
rokinu og kom inn á 76 högg-
um, annar varð Páll Ketilsson
á 82 höggum og í 3.-5. sæti
komu þeir Sigurjón R. Gísla-
son, Þorbjörn Kjærbo og Hall-
dór Svanbergsson á 85 högg-
um. Hinn Sigginn, Sigurður
Friðjónsson, var bestur með
forgjöf, lék á 70 höggum, Ing-
var Ingvarsson kom næstur á
73 og þriðji Halldór Svan-
bergsson með sama högga-
fjölda en lakari árangur á síð-
ustu 6 holunum.
Alda Sigurðardóttir, Golf-
klúbbnum Keirli, sló Islands-
meistaranum aftur fyrir sig og
sigraði bæði með og án forgjaf-
ar í kvennaflokki. Hún lék á 84
höggum, 70nettó. Gerða Hall-
dórsdóttir GS varð önnur með
forgjöf á 77 höggum og þriðja
án forgjafar á 101 höggi. Þór-
dís Geirsdóttir, íslandsmeist-
ari, lék á 89 höggum og 81
höggi með forgjöf. Þessar
þrjár hirtu öll verðlaun í
kvennaflokknum nema auka-
verðlaunin sem komu í hlut
Önnu Jódísar Sigurbergsdótt-
ur, en hún var næst holu á 16.
flöt, 6 m frá. Hjá körlunum
var Guðmundur Margeirsson
næstur holunni eða 1.38 m.
Til gamans má geta þess að
enginn af 97 þátttakendunum
náði „pari“ á 2. brautinni,
Gapastokknum, en það hefur
ekki gerst áður í svo fjölmennu
móti, en segir kannski meira
um það, hvernig veðrið getur
haft áhrif á leikinn...
t '\
Víkur-fréttir með
| verðlaunaafhendingu i
| Eins og lesendum íþróttasíðu
| Víkur-frétta er kunnugt hefur
| staðið yfir stigakeppni hjá leik-
■ mönnum Suðurncsjaliðanna í‘
! íslandsmótinu í knattspyrnu,
‘ sem nú er nýlokið. Urslitin
I liggja nú fyrir og munum við
I veita stigahæstu og marka-
■ hæstu mönnum vcrðlaun í hófi 1
sem efnt verður til af þessu til-
efni.
Danícl Einarsson úr Víði
varð efstur hjá leikmönnum 1.
dcildar, en mátti svo bíta í það
súra epli að lið hans féll í 2.
deild. Ragnar Eðvarðsson úr
Grindavík varð stigahæstur hjá
leikmönnum í 3. deild og í
kvcnnaknattspyrnunni varð
Kristín Blöndal efst að stigum.
Júlíus Pétur Ingólfsson varð
„markakóngur Víkur-frétta
1987“ hjá körlunum, en hann
skoraði 19 mörk með UMFG í
Islandsmótinu. Kristín Blöndal
varð markahæst hjá stúlkunum,
skoraði 6 mörk.
viKun {utUi MÍKUn iútUi
Lokastaðan á
íslandsmótinu
í knattspyrnu
Úrslitin í leikjunum í lokaum-
ferðinni í íslandsmótinu í knatt-
spyrnu í 1. deild, ásamt lokastöð-
unni, urðu þessi:
Valur - Völsungur 0:0
Víðir - KR 2:0
KA - ÍA 0:0
FH - Þór 4:1
Fram - ÍBK 0:0
Valur ... 18 9 7 1 30:10 37
Fram . . 18 9 5 4 33:21 32
ÍA ... 18 9 3 6 36:31 30
Þór ... 18 9 2 7 33:33 29
KR ... 18 7 4 7 28:22 25
KA ... 18 5 6 7 18:17 21
Keflavík ... ... 18 5 6 7 22:30 21
Völsungur .. ... 18 4 5 9 20:32 17
Víðir ... 18 3 8 7 20:33 17
Fll . . 18 4 4 10 28:34 15
Gam!a reglan
hefði dugað
Víðismönnum
Ef gamla tveggja stiga reglan
hefði gilt á íslandsmótinu í 1. deild
hefðu Völsungar frá Húsavík fallið
í stað Víðis, en að öðru leyti hefði
lokastaðan orðið óbreytt.
Ef keppt hefði verið eftír gömlu
reglunni liefði stigataflan litið
þannig út:
Valur ....
Fram ....
ÍA ......
Þór .....
KR ......
KA.......
Keflavík ..
Víðir ....
Völsungur
FH ......
25
23
21
20
18
16
16
14
13
12
Upton farinn
til Englands
Frank Upton, þjálfari 1. deildar-
liðs ÍBK í knattspyrnu, er farinn til
Englands. Hann hélt af landi brott
á mánudaginn, cn hafði nokkrum
dögum áður undirritað samning til
eins árs við ÍBK.
Upton er ætlað að hafa yfirurn-
sjón með þjálfun allra flokka hjá
ÍBK og er hann væntanlegur aftur
til starfa fljótlega á næsta ári.
Árangur Uptons með Keflavík-
urliðið var ágætur og menn eru al-
mennt ánægðir með störf lians og
vænta rnikils af honurn á næsla
keppnistímabili.
Gðður endasprettur
Vlðismanna
Góður endaspretur Víð-
ismanna í 1. deild Islands-
mótsins í knattspyrnu dugði
ekki til að halda 1. deildar-
sætinu. Þeir sigruðu KR-
inga 2:0 í síðasta leiknum,
en á sama tíma náðu Völs-
ungar jafntefli gegn Islands-
meisturum Vals á Hlíðar-
enda og þessi úrslit nægðu
Húsvíkingum. Naumara gat
það varla verið, hefði Víðis-
mönnum tekist að bæta einu
ntarki við til viðbótar í
leiknum gegn KR þá hefðu
þeir haldið sætinu, en Völs-
ungur fallið.
„Það er vitaskuld sárt að
falla, en ég hef trú á að
haldi strákarnir hópinn þá
ættu þeir að geta endur-
heimt sæti sitt í 1. deild“,
sagði Haukur Hafsteins-
son, þjálfari Víðis, í samtali
við Víkur-fréttir. Haukur
sagði að hópurinn væri að
vísu þröngur og því mætti
lítið út af bregða, en strák-
arnir væru einstaklega
samstilltir og liðið hefði nú
náð sínum besta árangri í 1.
deild þrátt fyrir allt. „Liðið
náði 16 stigum tvö síðustu
keppnistímabil og þau
hafa dugað, nú fengum við
17 sjig, en þau dugðu ekki
til. A þessu sést best hversu
baráttan er mikil og liðin
orðin jafnari“.
Leikur Víðismanna og
KR í Garðinum á sunnu-
daginn var leikinn við erf-
iðar aðstæður, hávaða rok
að norðaustan. Ljóst var
fyrir leikinn að Víðismenn
yrðu að sigra til að eiga
möguleika á að halda 1.
deildarsætinu og þeir náðu
forystunni tljótlega með
ntarki Svans Þorsteinsson-
ar, sem náði að pota í KR-
markið eftir mistök mark-
mannsins sem missti bolt-
ann á kláufalegan hátt frá
sér.
Eftir markið fóru Víðis-
menn sér hægt og hafa ef-
laust vonað að Valsmenn
legðu Völsung, en þessi lið
léku á sama tíma.
„Við vissum allan tím-
ann hvernig sá leikur þró-
aðist og í hálfleik var þessi
staða rædd og að við yrðum
að skora íleiri mörk í ljósi
stöðunnar“, sagði Haukur.
„En því miður þá tókst
okkur ekki að skora nema
Steindautt
jafntefli
Keflvíkingar gerðu markalaust
jafntefli við Framara í síðustu
umferðinni í 1. deild Islands-
mótsins í knattspyrnu í Laugar-
dalnum á laugardaginn. Mikið
rok var nieðan á leiknum stóð og
setti það sín mörk á leik liðanna
líkt og í öðrum leikjum dagsins á
stór-Reykjavíkursvæðinu.
Framarar sóttu öllu meira í
þessum leik, en Þorsteinn
Bjarnason markvörður IBK átti
góðan leik og var sú hindrun
sem Frömurum tókst ekki að
yfirstíga.
Samningurinn undirritaður. - Þessi mynd er frá undirritun
samnings milli ÍBK og Franks Upton, um að hann þjálfi knattspyrnu-
lið ÍBK á næsta ári. Á myndinni tekur hann í hönd Kristjáns Inga
Helgasonar, formanns knattspyrnuráðs. Ljósm.: pket.
Fyrir leikinn höfðu Keflvík-
ingar náð að tryggjasigfyrirfalli
og fyrir Framara hafði leikurinn
litla þýðingu. Enda speglaðist
áhugaleysið í flestum leikmanna
að þessu sinni.
Víkurfrétta-stigin: Þorsteinn
Bjarnason 3, Jóhann Magnús-
son 2 og Peter Farrell 1 stig.
OPIÐ
ALLA DAGA
mánud.-íöstud. kl. 10-22
iaugard. kl. 9-19
sunnud. kl. 11-18
\\\ \ \ \ I / / / ///
. VSOl.aVfJK & SNVKTISTOPAN / ^
Hafnargötu 54 • Kcllavík
eitt mark, þrátt fyrir
nokkur upplögð færi, og
því fór sem fór“, sagði
Haukur ennfremur.
Seinna mark Víðis skor-
aði Grétar Einarsson á síð-
ustu mínútunum, en því
miður dugði það ekki til að
þessu sinni.
KR-ingar láku einum
færri í síðari hálfleik, en
Pétri Péturssyni var vísað
af leikvelli undir lok fyrri
hálfleiks fyrir endurtekin
mótmæli við dómarann.
Víkurfrétta-stigin: Kle-
mens Sæmundsson 3, Dan-
íel Einarsson 2 og Vil-
hjálmur Einarsson 1 stig.
6;V\> í.-
m
„Við verðum að hætta að hittast svona“, gæti Rúnar Kristinsson, efni-
lcgasti leikmaður 1. deildar, verið aðsegja við Daníel Einarsson, leik-
mann Víkur-frétta 1987. Myndin er frá leik liðanna sl. laugardag.
Ljósm.: pkct.
Starfsfólk - Vaktavinna
Vegna aukinna umsvifa og eftirspurnar eftir framleiðslu-
vörum okkar vantar okkur starfsfólk í eftirtalin störf nú
þegar eða eftir nánara samkomulagi:
• í afgreiðslu
• iðnaðarmenn í sérverkefni
• aðstoðarfólk í verksmiðju
Ákveðið hefur verið að breyta þeirri vinnutilhögun sem nú
er, þ.e. hefðbundnum vinnutíma í vaktavinnu. Vinnutími
verður því sem hér segir:
Morgunvakt frá kl. 07:00-15:00
Kvölavakt frá kl. 15:00-23:00
mánudaga til föstudaga.
Þú vinnur morgunvakt eina viku og kvöldvakt þá
næstu.
Ef þú telur að þessi vinnutími myndi henta þér, þá vinsam-
lega hafðu samband við verksmiðjustjóra, sem gefur þér
nánari upplýsingar um launin og starfið.
ATH: Eingöngu verður ráðið starfsfólk til framtíðarstarfa.
TRÉSMIÐJA
ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR
Iðavöllum 6-7 - Keflavík - Sími 14700
RITARI
Óskum eftir að ráða starfskraft til almennra skrifstofustarfa
nú þegar eða eftir nánara samkomulagi:
Vinnutími frá kl. 8:00-18:00.
Upplýsingar um starfið gefur framkvæmdastjóri.
TRESMIÐJA
ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR
Iðavöllum 6-7 - Keflavík - Sími 14700