Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 17.09.1987, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 17.09.1987, Blaðsíða 1
VÍKUR LftNDSBOKf HVERFISG ( 101 REYF «) ? i 46. tbl. 8. árg. Fimmtudagur 17. sept. 1987 Nýtt útgerðarfyrirtæki í burðarliðnum: 50-100 millj. kr. hlutafé Nokkrir aðilar á Suður- ncsjum cru þcssa dagana að vinna að stoí'nun nýs útgcrð- arfyrirtækis á svæðinu. Von- ast þcssir aðilar til að geta sainað 50 til 100 milljón króna hlutafé. Samkvæmt heimildum Víkur-frétta lelja þessir að- ilar, sem eru aðaUega út- gerðarmenn og fiskverkend- ur, að á næstunni megi búasl við að skip verði seld hurt af svæðinu. Við það tapaðist dýrinætur kvóti og það gæti haft alvarlegar afleiðingar fvrir sjávarútveginn á Suð- urnesjum. Vilja þessir aðilar snúa þessari þróun við og segjasl Itafa fengið jákvæð svör hjá þeim aðilum sem leitað hef- ur verið til ineð hlulafé. „Við höfum góðar vonir um að þetta fyrirtæki verði sett á laggirnar á næstunni, ef marka má þær viðtökur sem erindi okkar hefur fengið“, sagði heimildarmaður blaðsins. sjúkrahúsinu Fæðingar í Sjúkrahúsinu í Keflavík það sem af er þessu ári hala aldrei verið fleiri og ef lram fer sent horfir verður 30% aukning frá árinu áður. Þetta kemur fram í við- tali við Konráð Lúðvíks- son. ytlriækni á fæðinga- deild Sjúkrahússins í Ketla- vík í blaðinu í dag. Þar segir Konráð að málefni fjölskyldunnar hafi verið mikið til uniræðu að undanförnu og stjórnmáia- menn hafi lagt áherslu á einingu fjölskyldunnar. Konráð teiur þessa fjölgun athyglisverða og um vakn- ingu sé ef til vill að ræða hjá fólki. Enginn svæfingalæknir er á svæðinu og telur Konráð það brýnt mál að hafa hér svæfingalækni með búsetu. Slíktgætiskipt sköpum og það hafi sann- ast í einstaka tillellum. Sjá nánar á bls. 8 Háspennulínan slitin og reykur liðast upp frá eldinum í mosanum. Ljósmynd: epj. Rafmagnslaust í Höfnum: VAR SKOTIÐ Á HÁSPENNU- LÍNUNA? Rafmagnslaust varð í Höfnum um hádegisbilið á sunnudag. Kom íljótlega í ljós að ein af þremur há- spennulínunum var í sundur urn einn og hálfan kílómeter austan við þorpið. Þar sem um er að ræða 6000 volta há- spennulínu kveikti hún í mosanum er hún féll til jarðar. Þegar háspennulína með fullum straumi fellur til jarð- ar með þessu móti er hætta á að jörðin í kring verði raf- mögnuð. Hélt lögreglan því vörslu um svæðið þar til raf- magnið hafði verið tekið af línunni. En jörðin var blaut undir mosanum og því hættan í 100-150 metra radí- us frá staðnum. Var viðgerðarflokkur frá Hitaveitunni kallaður út til að gera við línuna og komst rafmagr. aftur á er líða tók á daginn, einnig var slökkvi- liðið fengið til að slökkva eld- inn í mosanum. Slitnaði línan um meter frá rafmagnsstaur og er helst tal- ið að skotið hafi verið á lín- una og því hafi hún farið í sundur. BÆJARSTJÓRN KEFLAVÍKUR: ANNA MARGRET FYRSTI KVENFORSETINN Anna Margrét Guðmundsdóttir setur bæjarstjórnarfundinnsl. þriðju- dag. Ljósm.: pket. Fundur bæjarstjórnar Keflavíkur síðasta þriðjudag verður, er frá líða stundir, settur á spjöld sögunnar. Astæðan er sú, að þá sat kona í forsetastóli bæjar- stjómar Keflavíkur í fyrsta sinn. Hér var um að ræða Önnu Margréti Guðmundsdóttur, sem gegnir stöðu þessari, þar sem Guðfinnur Sigurvinsson er í leyfi erlendis. Þó konum fjölgi í bæjar- og sveitar- stjórnum er fremur fátítt að þær gegni hlutverki forseta eða oddvita hér á landi. Þó stöndum við Suðurnesja- menn nokkuð vel að vígi í þeim efnum, því á síðasta kjörtímabili gegndi Ólína Ragnarsdóttir stöðu forseta bæjarstjórnar Grindavíkur og Elsa Kristjánsdóttir stöðu oddvita Miðneshrepps. Aðrir bæjarfulltrúar á þessum merkisfundi í Kefla- vík voru: Vilhjálmur Ketils- son, Gunnar Þ. Jónsson, Jón Ólafur Jónsson, Hannes Einarsson, Magnús Haralds- son, Drífa Sigfúsdóttir, Garðar Oddgeirsson og Ing- ólfur Falsson. Ritari var Hjörtur Zakaríasson.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.