Víkurfréttir - 17.09.1987, Blaðsíða 3
viKun
Fimmtudagur 17. september 1987 3
Bæjarstjórn
Keflavíkur:
Skorar á
samgöngu-
ráðherra að
taka upp
skeyta-
útburð
um helgar
Jón Ólafur Jónsson, bæj-
arfulltrúi, bar eftirfarandi
tillögu upp á fundi bæjar-
stjórnar Keflavíkur á þriðju-
dag og var hún samþykkt
samhljóða:
„Bæjarstjórn Kefiavíkur
samþykkir að skora á sam-
gönguráðherra og yfirmann
pósts og síma að hlutast til um
að á ný verði tekin upp sú sjálf-
sagða þjónusta að bera út
skeyti til viðtakenda um helg-
ar.“
I greinargerð með tillög-
unni segir Jón Ólafur:
„Allt frá upphafi símþjón-
ustu á Islandi þótti það sjálf-
sögð þjónusta að bera út skeyti
til viðtakenda strax ogþaubár-
ust viðkomandi símstöð.
Fyrir nokkrum árum var
horjið frá þessu og sparnaðar-
ástœðum borið við. Þó er
skeytaútburður enn um helgar
á Reykjavíkursvœðinu og á Ak-
ureyri. Mikil óánægja er meðal
Kejlvíkinga vegna umrœddrar
þjónustuskerðingar.
Að mati tillögumanns erþað
eðlilegt, því sendi einhver
skeyti til manns í Keflavík
seinni part föstudags, laugar-
dag eða sunnudag, berst skeyt-
ið til viðtakanda ekki fyrr en á
mánudag. Tillögumaður telur
ástœðu til að benda á að haft
fyrra fyrirkomulag skeytaút-
burðar verið óhóflega dýrt þá
er ástœða til að leita nýrra leiða
t.d. hagrœðingar eða útboðs á
þessu verki.“
KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR:
KANAR í HLIÐIN?
Nokkur óánægja er með-
al fiúgvallarstarfsmanna
varðandi óijósar fréttir,
sem þeirn hafa borist til
eyma, um að til standi að
gera breytingar á starfi lög-
regluþjóna í liliðum Kefla-
víkurfiugvallar. Breyting
þessi, sem er sú að einn
Bandaríkjamaður verði þar
á rnóti öðrum íslendingi,
telja viðkomandi starfs-
menn vera afturför, því
siíkt hefur ekki verið við
lýði síðan fyrir 1980.
Viðkomandi starfsmenn
segja að það gangi ekki að
Bandaríkjamenn ráðskist
með mál sem komþupp í
hliðunum varðandi íslend-
ingana. Auk þess sé þetta
brestur í sjáifstæði okkar
íslendinga. Þá hafi einnig
borist til eyrna að þegar sé
hafin þjálfun Bandaríkja-
manna til að taka þessi
störf að sér.
Vegna þessa hatði blaðið
samband við þá Þorgeir
Þorsteinsson, lögreglu-
stjóra á Keflavíkurflugvelli,
og Þorstein Ingólfsson,
skrifstofustjóra Varnar-
máiadeildar utanríkisráðu-
neytisins. Sögðu þeir báðir
að engar ákvarðanir hafi
enn venð teknar í málinu,
því það væri enn á umræðu-
stigi.
Hvorugur vissi til þess að
þjálfun hermanna í þessi
störf væri hafin en bentu á
að það væri ekki óeðlilegt,
þar sem forsendur fyrir því
að hafa þarna eingöngu
íslendinga væru brostnar.
Ástæðan fyrir því fyrir-
komulagi hefði verið að
flugvöllur þessi var al-
þjóðaflugvöllur.
Núhefur allt flugiðogöll
starfsemi, sem ekki tengist
varnarliðinu, verið flutt út
fyrir girðingu. Ættu því
engir að fara um hliðin
nema starfsmenn varnar-
liðsins, varnarliðsmenn og
þeir, sem ættu brýnt erindi
við stofnanir varnarliðsins
á Keflavíkurflugvelli.
Þá voru þeir sammála
um að ekki kæmi til fækk-
unar í lögregluiiði Kefla-
víkurflugvallar, frekar yrði
betri nýting og aukin hag-
ræðing á núverandi lög-
reglumönnum. En sem fyrr
segir hefur engin ákvörðun
verið tekin í málinu, enda
er það ennþá aðeins á um-
ræðusvæði. En Ijóst erað ís-
lenska lögreglan mun að
sjálfsögðu hafa-forræði yfir
hiiðvörslunni og tollleit-
inni.
Pósthúsið í Keflavík:
Nýbygging póst-
hússins, sem stefnt
er að að opna næsta
sumar.
Ljósm.: epj.
Bögglaafgreiðslan í nýja
pósthúsið fyrir jól
Nú er stefnt að því að flytja
núverandi pósthús í Keflavík í
nýbygginguna að Hafnargötu
89 um mánaðamótin júní/
júlí n.k. Að sögn Björgvins
Lútherssonar, símstöðvar-
stjóra, verða gerðar áætlanir
til að fá íjárveitingar til að sú
áætlun geti staðist.
Vegna þrengsla í' gamla
húsinu, bæði innan dyra og
varðandi bílastæði fyrir utan,
mun bögglaafgreiðslan flytja
til bráðabirgða. Verður hún
flutt um miðjan nóvember yfir
í nýja húsið til að taka á móti
jólatraffíkinni.
Auk þess sem vinnuaðstaða
starfsfólksins verður með
þessu betri mun aðgangur við-
skiptavina stofnunarinnar
einnig batna að sama skapi
sagði Björgvin ennfremur.
ALETAF
NÝJAR
PERUR
í UÓSA-
LÖMPUNUVi
- og svo geturður líka
farið í sauna hjá okkur.
v\ \ \ \ I II/, ,
VSOWÍAOS' «. ssvirnsroi'.w
8’©IiE V
Símt 11616
Hitfnnryíöui Kellnvík
- Það losar um streitu og spennu - er bólgueyðandi
- er gott við bakverkjum og ýmsum meiðslum.
SELLOLITE NUDD-
KÚRAR - (appelsínuhúð)
20% afsláttur.
Opið mánudaga
til laugardaga.
SNYRTI- OG NUDDSTOFA
Hafnargötu 35 - Keflavík - Simi 14108
fyrir bœði kynin,
ásamt gufubaði.
VERIÐ VELKOMIN
RÓSA GUÐNADÓTTIR
nuddari og snyrtifræðingur
GUÐLAUG SIGURÐARDÓTTIR
nuddari
LÍKAMSNUDDKÚRAR
NÝTT - NÝTT
NUDD ER EKKI BARA ÞÆGILE