Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 17.09.1987, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 17.09.1987, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 17. september 1987 mun Gæslu- vellir Gæsluvellir Keflavíkurbæjar við Miðtún, Ásabraut og Baugholt verða opnir á tíma- bilinu 15. sept. til 1. maí kl. 13-16. Vellirnir verða opnir alla virka daga nema laugardaga. Félagsmálastjóri Keflavíkurbæjar Hitaveita Suðurnesja ÚTBOD Jarðstrengjalögn að fiskeldistöð Atlantslax í Litlu-Sandvík Hitaveita Suðurnesja óskar hér með eftir tilboðum í lagningu jarðstrengja að fisk- eldistöð Atlantslax í Litlu-Sandvík. Um er að ræða lagningu á um 7000 m af háspennu- og símastrengjum frá Húsa- tóftum að Litlu-Sandvík ásamt tilheyrandi jarðvinnu. Verki skal að fullu lokið eigi síðar en 15. desember 1987. Útboðsgögn eru afhent á Verkfræðistofu Suðurnesja hf., Hafnargötu 32, Keflavík, gegn 2.000 kr. skilatryggingu. Farið verður með væntanlega bjóðendur í vettvangskönnun fimmtudaginn 24. september n.k. kl. 13.15fráskrifstofu Hita- veitunnar, Brekkustíg 36, Njarðvík. Nánari upplýsingar gefur Brynjólfur Guðmunds- son, Verkfræðistofu Suðurnesja. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja, fimmtudaginn 1. október 1987 kl. 11.00. HITAVEITA SUÐURNESJA Konráð Lúðvíksson, yfirlæknir á fæðingadeild Sjúkrahússins í Keflavík. Ljósm.: bt Sjúkrahúsið í Kefiavík: Fæðingar aldrei fleiri en í ár „Stefnir að 30% aukningu", segir Konráð Lúðvíksson, yfirlæknir Allt stefnir í að sett verði nýtt fæðingamet í Keflavík á þessu ári. Fyrir síðustu helgi höfðu orðið 186 fæðingar í Sjúkrahúsinu í Keflavík og með sama áframhaldi stefnir í 30% aukningu frá árinu áður, að sögn Konráðs Lúðvíksson- ar, yfirlæknis á fæðingadeild. Fæðingum fækkaði hlutfallslega minnst á Suðurnesjum Konráð sagði, að til þessa hefðu fæðingar orðið flestar í Keflavík árið 1985. Þá hefðu þær orðið 226, en 1986 hefði nokkuð dregið úr, því þá hefðu fæðst 215 börn. Fæð- ingum hefði fækkað á öllu landinu þetta ár en hlutfalls- lega minnst á Suðurnesjum. „Fjölgun fæðinga nú er NJARÐVÍK Fasteigna- gjöld 1987 O- Innheimtuaðgerðir vegna greiddra fasteignagjalda 1987 eru hafnar. Bæjarsjóður - innheimta athyglisverð," sagði Konráð. „Ef til vill á það einhverja skýringu að rekja til þeirrar miklu umfjöllunar sem fjöl- skyldan hefur fengið að und- anförnu. Stjórnmálamenn hafa lagt áherslu á fjölskyld- una sem einingu og fæðing- arorlof hafa verið rýmkuð. Kannski er fólk einfaldlega orðið leitt á að horfa bara á sjónvarpið." Leggjum áherslu á nærveru fjölskyldunnar „Hér er líka ef til vill um einhvers konar köllun að ræða. Fæðing barns er einn mikilverðasti viðburðurinn í lífi fólks. Við leggjum því ákaflega mikla áherslu á nærveru fjölskyldunnar á þessari stóru stundu og ég held að það sé líka krafa fólksins að það geti alið böm sín hér,“ sagði Konráð. Fólk fékkst ekki til starfa Málefni fæðingardeildar- innar voru talsvert í brenni- deplinum í sumar og um tíma var haft á orði að loka þyrfti deildinni, þar sem af- leysingafólk fékkst ekki til starfa. Konráð sagði að deildin hefði orðið að glíma við viss- an mótbyr en hann vonaðist til að hægt yrði að hækka seglin að nýju og halda starf- inu ötullega áfram í kom- andi framtíð. Teljum nauðsynlegt að fá svæfingalæknir „Við urðum að glíma við manneklu um tíma í sumar en þau mál tókst að leysa. Hinsvegar teljum við nauð- synlegt að hafahérsvæfmga- læknir sem yrði til taks allan sólarhringinn. Að undan- fömu höfum við verið með skammtímasamninga við svæfmgalækna úr Reykjavík en núhefurveriðauglýst eft- ir lækni, með búsetu á svæð- inu í huga. Ennþáhefurekki tekist að fá svæfíngalækni hingað og við emm jafnvel búnir að leita fyrir okkur er- lendis.“ Önnur stærsta fæðing- ardeildin utan Reykjavíkur Fæðingardeild Sjúkra- hússins í Keflavík er önnur stærsta fæðingardeildin utan Reykjavíkur, á eftir Akur- eyri. Þar er undir eðlilegum kringumstæðum gert ráð fyrir 8 sængurkonum. En oftast em þær mun fleiri og sagði Konráð að oft kæmi fyrir að helmingi fleiri konur væm á deildinni samtímis. Enda hefði meðal ársnýting- in verið 111%. Getur skipt sköpum Konráð sagði að mikil- vægt væri að vera með vakt- þjónustu allan sólarhring- inn. Að vísu væri oftast greið leið til Reykjavíkur, en þó gæti sá tími sem tæki að komast þangað skipt sköp- um í einstaka tilfellum - og það hefði sannast. Þær sængurkonur, sem hafa alið böm sín í Sjúkra- húsinu í Keflavík, hafa verið ákaflega ánægðar með þá þjónustu sem þær hafa feng- ið og sagði Konráð að þær hefðu margar á orði hversu fæðingardeildin væri heimil- isleg og aðstaðan þar góð.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.