Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.02.1988, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 11.02.1988, Qupperneq 1
Landsbókasaf ’ Safnahúsiriu 101 Reykjaví 6. tbl. 9. árg. Fimmtudagur 11. febrúar 1988 Aðskilnaður dómsvalds og framkvæmdavalds: Dómsvaldið til Hafnarfjarðar? Gjörbreyting verður á dómskerfi landsins ef drög þau af frumvarpi til laga um skipan dómsvalds og umboðsvalds í héraði verða samþykkt. Þar er gert ráð fyrir að landinu verði skipt í sjö umdæmi héraðsdóm- stóla. Nel'nd sú sem unnið hefur að drögum þessum var sett á stofn til að fjalla um aðskiln- að framkvæmdavalds og dómsvalds. Er búist við að nefndin skili ráðherra aliti sínu nú næstu daga. Meðal annars er gert ráð fyrir því í drögum þessum, að í Hafnarfirði verði staðsettur Héraðsdómstóll Reykjaness sem nái til Kópavogs, Garða- bæjar, Bessastaðahrepps, Hafnarfjarðar, Vatnsleysu- strandarhrepps, Grindavík- ur, Njarðvíkur, Keilavíkur, Miðneshrepps, Gerðahrepps og Hafnahrepps. Alls eiga sjö slík umdæmi héraðsdóm- ara að vera á landinu. Er vonast til að frumvarp þetta verði nú á næstu vikum lagt fyrir Alþingi og taki gildi á næstu 2-3 árum. Verði þetta samþykkt óbreytt þýðir það afturför fyrir okkur Suðurnesjamenn, sem áður þurftum að fara til Hafnarfjarðar, eða þar til Gullbringu- og Kjósarsýslu var skipt og við fengum sér sýslumann með aðsetri í Keflavík. „Ungfrú Yfirtaka landshafnanna: Suðurnes 1988“ Þrír fyrstu þátttakendur kynntir Bæjarráð Keflavíkur: Skilvísir fá 8% afslátt Bæjarráð Keflavíkur hefur samþykkt að þeirsem greiða fasteignagjöld sín upp að fullu fyrir 1. mars n.k., fái 8% afslátt af gjald- inu. Eins og sagt var frá í síð- asta tölublaði bar Drífa Sigfúsdóttir upp tillögu þess efnis á síðasta fundi bæjarstjórnar, að þeirgjald- endur er greiddu fyrir 16. febrúar fengju 6% afslátt. Var tillaga Drífu vísað til bæjarráðs með 8 atkvæð- um. Varumræddsamþykkt bæjarráðs samþykkt nú á þriðjudag. Óeining um Helguvík Ljóst er að innan bæjar- stjórnar Keflavíkur er ekki samstaða um að Helguvíkur- höfn falli inn í yfirtöku bæj- arfélaganna Keflavíkur og Njarðvíkur á Landshöfninni. Eru niðurlagsorðin í fréttinni í síðasta tölublaði því röng, enda miðuðust þau við að fullt samkomulag væri um málið. Til að fá gleggri fréttir um óeiningu þessa og þar sem blaðamanni var meinuð seta á bæjarstjórnarfundinum í Keflavík meðan umræða um málið fór þar fram, höfðum við samband við fulltrúa beggja stjórnmálaflokkanna sem sitja í stjórnarandstöðu í bæjarstjórn Keflavíkur. ,,Það er ekki eining um niálið á þessu stigi og égefast um að við kjörnu bæjarfull- trúarnir höfum heimild til að vera með Helguvíkurhöfnina inn í þessum pakka,“ sagði Ingólfur Falsson, Sjálfstæð- isflokki, og hélt síðan áfram: „Eg gæti þó hugsað mér að gert yrði bráðabirgðasam- komulag til þriggja ára um rekstur og yfirtöku lands- hafnarinnar í núverandi mynd. Þegar Helguvíkur- höfn verður afhent þyrfti að endurskoða samkomulagið. Vil ég einnig láta kynna fyrir íbúum beggja byggðarlag- anna kosti og galla við sam- einingu þeirra og þegar því væri lokið gætum við rætt þessi mál öll nánar.“ „Eg get ekki séð hvað Helguvíkin hafi að gera í þessu máli, þar sem ríkið er að afhenda okkur Lands- höfnina. Efast ég um að bæjarstjórn Keflavíkur hafi heimild til að fjalla um mál- ið út frá því sjónarmiði aðaf- henda Helguvíkina. A bæjar- stjórnarfundinum var aðeins reifuð hugmynd um bráða- birgðasamkomulag um þetta, þ.e. án Helguvíkur og get ég fallist á það,“ sagði Magnús Haraldsson, Framsóknarflokki. Síðan hélt hann áfram: „Eg mun lýsa þessum sjón- armiðum mínum á næsta bæjarstjórnarfundi og mótmæla því um leið að Helguvík verði með í þessu.“ - Sjá miðopnu

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.