Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.02.1988, Side 3

Víkurfréttir - 11.02.1988, Side 3
\fiKun Óhrjálegur fiskur bíður lestunar í flugvél á Keflavíkurflugvelli síðasta fimmtudagskvöld. Fimmtudagur 11. febrúar 1988 3 Sumir kassanna voru brotnir og fiskurinn víða þurr og óásjá- legur. Ljósm.: epj. ÓHRJÁLEGUR FISKURTIL FRAKKLANDS Fyrir síðustu helgi voru flutt úr með sérstakri flutn- ingaflugvél 40 tonn af fiski sem fór á markað í Frakk- landi. Fiskur þessi var fluttur út á vegum Flrímfells h.f. í Hafnarfirði en frá honum var gengið hjá fyrirtækinu Frost- rós í Höfnum. Frágangur fisksins var þó allt annað en til sóma. Var hann í svokölluðum gáma- kössum sem eru hvítirkassar úr þunnu einangrunarplasti. Voru kassar þessir loklausir og þó nokkuð um að þeir væru brotnir. Auk þess sem ýmist var of mikið í þeim eða að fiskurinn væri óísaður og frekar óhrjálegur að sjá. Vegna þessa hafði blaðið samband við Ríkismat sjáv- arafurða og þar varð Guð- rún Hallgrímsdóttir for- stöðumaður fyrir svörum. Sagði hún að lýsing á frá- gangi þessum væri hræðileg og því ærin ástæða til að kanna hvort þessi aðili hefði útflutningsleyfi. Eftir að það hafði verið kannað sagði Guðrún að komið hefði í ljós að svo hefði veriðen hinsveg- ar hafi Frostrós ekki haft vinnsluleyfi. Hefðu það því verið mistök af hálfu ríkis- matsins að leyfa útflutning þennan, þar sem pappírarnir voru ófullnægjandi. „Hefði því átt að stöðva þennan útflutning, en við- komandi ráðuneyti hefur verið tilkynnt um þessi mis- tök okkar svo og kaupend- unum ytra,“ sagði Guðrún í samtali við blaðið. BREKKA er heimilisleg og maturinn eítir því . . . Pizzurnar okkar eru pottþéttar, og við keyrum þær heim frítt föstudaga og laugardaga eftir kl. 17. Nýi Útsýnarbæklingurinn liggur frammi hjá okkur og kynningarmyndband frá sumaráætlun '88. Tökum aö okkur veislur, mann- fagnaði og þorra- blót. - Útvegum sali ef óskaö er. Tom^abory NÝTT - NÝTT Heit súpa og ódýr heimilismatur í hádeginu. TOMMA HAMBORGARAR Fitjum - Njarðvik - Simi 13448

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.