Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.02.1988, Síða 24

Víkurfréttir - 11.02.1988, Síða 24
viKun f/titUl Fimmtudagur ll.febrúar 1988 AFGREIÐSLA BLAÐSINS er að Vallargötu 15. - Símar 14717, 15717. TÉKKAREIKNINGUR SPURÐU SPARISJÓÐINN F.v.: Sigurjón R. Vikarsson og Stefán Jónsson, ásamt Birgi Páimasyni prentara, við nýju vélina Njarðvíkurbær: Segja allar skrif- stofustúlkurnar upp? Allar starfsstúlkurnar á sk ri fstofu Nja rðvik u rbæjar liafa undirritað umsókn um störf hjá Hitaveitu Suður- nesja. Iiafa þærþóekkienn sagt uppstörfum hjá bæjar- félaginu. Astæðan fyrir umsókn- um þessum er starfsmat það sem nýlega tók gildi hjá Njarðvíkurbæ. I litavcitan hafnaði starfsmati þessu og hækkaði þess í stað starfs- fólkið meira en starfsmatið hafði gefið til kynna. Stafar óánægja starfs- fólksins m.a. af því að hið nvja starlsmat var þegar látið taka gildi hjá viðkorn- andi bæjarfélagi og þar með skorið niður bílastyrkir og yfirvinna, svo dæmi séu tekin. Er ekki vitað til þess að annað sveitarfélag á Suðurnesjum hafi brugðist þannig við starfsmatinu. Innbrot og skemmd- ir í Grindavík Brotist var inn í mynd- bandalciguna Myndsel við Hafnargötu í Grindavík að- faranótt mánudagsins. Þaðan var stolið happaþrennum og einhverju af peningum. Þá mun þjófurinn hafa sturtað úr skrifborðsskúffu á gólfið, sjálfsagt í leit að pcningum. Af verksummerkjum að dæma virðist þjófurinn síðan hafa farið yfir í verslunina Báruna, sem er í sambyggðu húsi og við það brotið niður hillur með munum í. Þá mun hann hafa reynt að stöðva viðvörunarkerfið sem fór í gang og braut í þeirn tilgangi niður bjöllu og reyndi að brjóta niður þreifarana. Sást til mannsins er hann hljóp út og yftr í bíl sem beið hans. Er málið nú í rannsókn hjá lögreglunni. hpc/Grindav. Trillu bjargað frá strandi Tveimur mönnum tókst á föstudag að bjarga trillu- bát frá því að reka upp í kletta við Keilavíkurhöfn. Var það klukkan 17.29 að neyðarblysi var skotið frá trillubátnum Rúnu, sem varð véiarvana utan við halhargarðinn í Keilavík. Menn sent voru viðvinnu í Olíusamlagshúsinu í Keflavík sáu blysið og þustu þegar til og fór einn mannanna ásamt Jóhanni Péturssyni hafnsögumanni þegar út á lóðsbátnum Silfra KE-24. Norðan golu- kaldi var þegar þetta átti sér stað og tókst þeim á Silfra að koma taug yfir í hinn bilaða bát áður en hann ræki upp í fjöru, og draga hann að bryggju. Að sögn manna sem sáu atburðinn. hefði getað farið illa, ef ekki hefði tekist að manna bátinn strax, hinum nauðstöddu til hjálpar. Frá innbrotsstaðnum í Myndseli. Ljósm.: hpc Nýlt flagg- skipl Grágás Á undanförnum mánuð- um hafa orðið miklar breyt- ingar á vélakosti prentsmiðj- unnar Grágás hf. í Keflavík. Auk þess að hafa tekið í notkun nýjar vélar í prentun á tölvupappír hafa aðrar vélar prentsmiðjunnar einnig verið endurnýjaðar. I síðustu viku kom svo nýtt „flaggskip“ til þeirra Grágásar-manna, en það er Heidelberg Sorm prentvél, sem er mun stærri og full- komnari en eldri vélin. Munu Víkur-fréttir verða prentaðar í þessari nýju vél og mun blaðið aðeins minnka við það, en prentað- ar verða 4 síður í einu í stað tveggja áður. Er það von okkar Víkur-fréttamanna að geta nú boðið upp á meiri lit- prentun en áður. 16 aðilar vilja í Bláa lónið Alls lögðu 16 aðilar inn tilboð í rekstur baðhússins við Bláa lónið, en Hitaveita Suðurnesja auglýsti eftir til- boðum í reksturinn fyrir stuttu síðan. Að sögn Ingólfs Aðalsteinssonar, forstjóra HS, námu tilboðstölurnar frá 55 þús- undum upp í 185.600 kr. á mánuði.'V* Er nú verið að skoða til- boðin og er útkomu að vænta næstu daga. Djöf . . . var ég sjóvcikur í fyrstu fcrðinni tncð ..flaggskipinu".

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.