Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.04.1988, Síða 4

Víkurfréttir - 07.04.1988, Síða 4
4 Fimmtudagur 7. apríl 1988 Skrifstofustörf Hitaveita Suðurnesja óskar eftir að ráða tvo starfsmenn til starfa á skrifstofu fyrir- tækisins að Brekkustíg 36, Njarðvík. 1. Starfsmann, helst vanan tölvuvinnslu, í að minnsta kosti 1 ár. 2. Starfsmann, helst vanan almennum skrifstofustörfum, til sumarafleysinga. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesjabyggða. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsing- ar fást á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja, Brekkustíg 36, Njarðvík, og skulu umsókn- ir berast þangað, eigi síðar en 15. apríl 1988. Hitaveita Suðurnesja ATVINNA Vantar röskan starfskraft til vinnu við sorp- hreinsun. Upplýsingar í síma 12111. NJARÐTAK SF. Skrifstofustörf Gjaldheimta Suðurnesja hyggst ráða tvo starfsmenn. Starfið felur m.a. í sér móttöku greiðslna, skráningu upplýsinga í tölvu og vinnu, sem tengist innheimtustörfum. Um- sækjendur þurfa að geta hafið störf hið fyrsta. Upplýsingar um starfskjör og annað varð- andi störfin veitir Ásgeir Jónsson, gjald- heimtustjóri, og skal skriflegum umsókn- um skilað til hans á skrifstofu gjaldheimt- unnar að Grundarvegi 23, Njarðvík, sími 15055. í umsókn skal getið um fyrri störf og menntun. Umsóknarfrestur er til 20. apríl næstkomandi. Gjaldheimta Suðurnesja ATVINNA Við erum ungt fyrirtæki í uppbyggingu. Starfsmannafjöldi 15 manns. Við leitum að duglegum og áreiðanlegum starfskröftum við úrvinnslu sjávarfangs. Mikil vinna og gott tímakaup fyrir duglegt starfsfólk og auk þess möguleiki að bæta launin, því unnið er eftir hópbónuskerfi. Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 12503 (Kjartan) og 14718 á kvöldin. NESBERG HF. Bakkastíg 8, 260 Njarðvík ViKun Þrír gamlir vélstjórar voru heiðraðir og sá Marteinn Sigurðsson (t.h.) um það hlutverk. Þeirsem heiðr- aðir voru eru f.v.: Bcncdikt Jónsson, Sigurður Gíslason og Friðrik Karísson. Afmælishátíð hjá Vélstjóraf élag i nu Vélstjórafélag Suðurnesja hélt á laugardaginn upp á 50 ára afmæli félagsins í Stapa í Njarðvík. Hófst hátíðin með ávarpi formanns afmælis- nefndar, Svavars Óskarsson- ar, og að því loknu setti Jón Kr. Olsen hátíðina formlega. Að setningu lokinni flutti Litla leikfélagið stutta þætti og gamanvísur, auk þess sem Steinn Erlingsson söng við undirleik Esterar Ólafsdóttur. Þá voru heiðraðir þrír braut- ryðjendur í Vélstjórafélaginu, þeir Sigurður Gíslason, Friðrik Karlsson og Benedikt Jónsson. Var mæting ágæt og fór dag- skráin vel fram í alla staði. Fjölmargir gestir voru viðstaddir, s.s. forystumenn annarra stéttarfélaga. Á fremsta borðinu sitja f.v.: Sigurbjörn Björnsson, Þórdís Þormóðsdóttir, Karl Steinar Guðnason, Öskar Vigfússon frá Sjómanna- sambandi Islands, Helgi Lax- dal, Vélstjórafélagi Islands, og Baldur Matthíasson, Verka- lýðs- og sjómannafélagi Mið- neshrepps. Jón Kr. Olsen, formaður og framkvæmdastjóri Vélstjórafélags Suðurnesja, ávarpar samkomuna. Ljósmyndir: hbb. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJ: Laugardagur 9. april: Jarðarför Kristínar Þórðardótt- ur, Vallarbraut 2, kl. 11. Sameiginleg minningarathöfn kl. 14 um sjómennina Gunn- laug Þorgilsson, Árna Kristin Gunnlaugsson og Birkir Friðbjörnsson, sem fórust með Knarrarnesi KE-39912. mars sl.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.