Víkurfréttir - 07.04.1988, Blaðsíða 14
\>iKun
14 Fimmtudagur 7. apríl 1988
UMFN íslandsmeistari
í 3. flokki kvenna
3. flokkur kvenna úr Njarð-
vík tryggði sér íslandsmeist-
aratitilinn í handbolta er liðið
sigraði Gróttu í úrslitaleik
13-12. Urslitakeppnin fór
frant í Vestmannaeyjum fyrir
skömmu.
Njarðvíkurstúlkurnar unnu
alla sína leiki í úrslitakeppn-
jnni. Fyrst sigruðu þær KR 17-
13, því næst Selfoss 15-12, loks
Fram 11-10 og síðast Gróttu í
úrslitum 13-12. Það leit þó
ekki út fyrir sigur UMFN því
þegar 3 niín. voru til leiksloka
var Grótta yfir 11-8. En
UMFN stúlkurnar með þær
Kristínu Blöndal og Hörpu
Magnúsdóttur bestar skoruðu
síðustu 4 mörkin.
Þessi kjarni, sem skipar 3.
Bokk UMFN, var íslands-
meistari 1986 og stúlkurnar
eiga allar eitt ár ef'tir enn í 3.
Ookki og ættu því aðgeta varið
titilinn næsta ár.
1. flokkur UMFN, íslandsmeistarar 1988.
1. flokkur UMFN
íslandsmeistari
Njarðvíkingar tryggðu sér
enn einn titilinn í körfuknatt-
leik á þessu tímabili. Fyrsti
flokkur félagsins sigraði ná-
grannana úr Keflavík_ 74:72 í
spennandi úrslitaleik. ÍBK var
yflr mest allan leiktímann,
mest 14 stig í fyrri hálfleik. En
Njarðvíkingar, með gömlu
brýnin Stefán Bjarkason,
Gunnar Þorvarðarson og Þor-
stein Bjarnason í fararbroddi,
létu ekki deigan síga, þeir
ntinnkuðu muninn jafnt og
þétt og áttu svo lokaorðin í
leiknum með því að skora 7
síðustu stigin og tryggðu sér
sigur.
2. flokkur ÍBK
Bikarmeistari
2. Ilokkur ÍBK varð bikar- íslandsmótinu en margir leik-
meistari í körfuknattleik á menn liðsins leika með meist-
dögunum. Liðið varð í 2. sæti í araflokki. Ljósm.: mad.
jutUi
Isak Tómasson, fyrirliði UMFN, heldur í Islandsmeistarastyttuna, en þeir Hreinn Hreinn Þorkelsson
IBK, Tómas Holton Val og Henning Hcnningsson Haukum, toga í hann eins og hungraðir úlfar.
Ljósm.: pkct.
Úrslitakeppnin í úrvalsdeildinni í körfu:
IBK og HAUKAR
leika í Keflavfk í kvöld
,,Ég er sæmilega bjartsýnn.
Við höfum undirbúið okkur
vel fyrir úrslitakeppnina og
erum til í slaginn. Leikurinn í
kvöld leggst vel í mig og ég geri
mér vonir um sigur í tveimur
leikjum“ sagði Gunnar Þor-
varðarson, þjálfari IBK, um
leik þeirra við Hauka í kvöld í
íþróttahúsi Keflavíkur, á
blaðamannafundi sem Körfu-
knattleikssambandið hélt á
Glóðinni í fyrradag í tilefni af
úrslitakeppninni.
„Keflvíkingar eru alltaf erf-
iðir heim að sækja en við ætl-
um okkur ekkert annað en sig-
ur“ sagði Pálmar Sigurðsson,
þjálfari og Haukaleikmaður.
Fyrsti leikur liðanna er í
kvöld og hefst kl. 20. Næsti
leikur liðanna er í Hafnarfirði
á sunnudag. Ef til þriðja leiks
kemur fer hann fram í Kefla-
vík á þriðjudag kl. 20.
„Ekkert alltof
bjartsýnn“
„Við erum ekki í okkar
besta formi. Minniháttar
meiðsl hafa herjað á nokkra
leikmenn og því ekki æft af
fullum krafti. Þetta verður
ekki auðvelt en við ætlum okk-
ur auðvitað í úrslitin og verja
titilinn" sagði Valur Ingi-
mundarson, þjálfari UMFN,
um leikina gegn Valsmönn-
um. „Njarðvíkingar eru ekki
ósigrandi og ef við náum
okkur vel á strik þá er aldrei að
vita hvað gerist“ sagði Tómas
Holton, Valsmaður. Næsti
leikur liðanna verður á Hlíðar-
enda á laugardag kl. 14.
Tillaga um
útlenda leikmenn
Á blaðamannafundinum á
Glóðinni kom fram að stjórn
KKI mun leggja fram tillögu á
næsta ársþingi um hvort leyfa
eigi erlenda leikmenn í úrvals-
deildinni næsta keppnistíma-
bil. Fulltrúar ÍBK, UMFN og
Hauka eru allir sammála um
að leyfa erlenda leikmenn en
Valsmenn gáfu ekki út yfirlýs-
ingu um málið á fundinum. Ef
tillaga þessi verður samþykkt
er þó ekki víst að UMFN muni
fá sérerlendan leikmann. „Við
erum ekki bara að hugsa um
sjálfa okkur í þessu máli, held-
ur um íþróttina. Við teljum
það henni til heilla" sagði Val-
ur Ingimundarson. „Það hef-
ur mikið verið rætt um þetta á
undanförnum árum en nú
reynir á afstöðu félaganna“
sagði Kristinn Albertsson,
körfuknattleiksdómari og rit-
ari KKÍ.
Breytt deildarskipulag
Á ársþinginu kemur einnig
til afgreiðslu tillaga, reyndar
þrjár tillögur, um breytt deild-
arskipulag á úrvalsdeildinni.
Má telja nokkuð víst að breyt-
ing verði samþykkt, hver sem
hún verður.
Árangur Suðurnesjamanna
Árangur einstakra leikmanna, þ.e. þeirra bestu í UMFN og IBK í stigaskori og þriggja stiga
körfum og flestar villur, er svona að lokinni undankeppni úrvalsdeildarinnar:
Flest stig: stig Meðalt.
Valur lngimundars. UMFN .. 330 20.6
Guðjón Skúlason ÍBK 214 15.2
ísak Tómasson UMFN 207 13.8
Jón Kr. Gíslason ÍBK 184 11.5
Hreinn Þorkelsson ÍBK 184 11.5
Helgi Rafnsson UMFN 178 12.7
Teitur Örlygsson UMFN 174 10.8
Sigurður lngimundars. ÍBK .. 167 10.4
Hreiðar Hreiðarsson UMFN . 142 8.8
Magnús Guðfinnsson ÍBK ... 138 8.6
Þriggja stiga körfur:
Valur lngimundarson UMFN ................. 38
Hreinn Þorkelsson ÍBK .................... 22
Guðjón Skúlason ÍBK 19
ísak Tómasson UMFN ....................... 17
Teitur Örlygsson UMFN .................... 17
Flestar villur:
Sigurður lngimundarson ÍBK ................ 56
Sturla Örlygsson UMFN ..................... 54
Helgi Rafnsson UMFN ...................... 50
ísak Tómasson UMFN ....................... 49
Magnús Guðfinsson ÍBK .................... 49
Hreinu Þorkelsson ÍBK .................... 46
Axel Nikulásson ÍBK ...................... 44
Hreiðar Hreiðarsson UMFN ................. 44
Valur lngimundarson UMFN ................. 43
Guðjón Skúlason ÍBK ...................... 38
Vítahittni: Skot/stig Nýting %
Kristinn Einarsson UMFN ... 4/4 100.00
Valur Ingimundarson UMFN 85/70 82.35
Ellert Magnússon UMFN .... 13/10 76.92
Falur Harðarson ÍBK .......... 45/34 75.56
Jóhannes Kristjánss. UMFN . 40/30 75.00
ísak Tómasson UMFN ........... 51/38 74.51
Hreinn Þorkelsson ÍBK........ 33/24 72.56
Axel Nikulásson ÍBK........... 36/26 72.22
Árni Lárusson UMFN........... 19/13 68.42
Guðjón Skúlason ÍBK .......... 40/27 67.50