Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.04.1988, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 07.04.1988, Blaðsíða 8
mrn Dúbl í horn! Billiard (snóker) er skemmtileg íþrótt sem allir geta leikiö, ungir sem eldri. Leiöbeinendur ef óskaö er. Sjö 12 feta borö og kjuðar fyrir alla. f' OPIÐ alla daga frá kl. 11.30-23.30. Pantið tíma eöa komiö. Knattborðsstofa Suðurnesja Grófinni - Keflavik - Simi 13822 Ökukennsla Byrja ökukennslu aö nýju 16. apríl. Ný glæsileg bifreið. Pantið tíma í síma 14380. Gylfi Guðmundsson, ökukennari Laxveiðileyfi Eigum nokkur óseld leyfi í Setbergsá. Upplýsingar í síma 13883. VÍKUR-fréttir - blaðið sem beðið ereftir \4iaut molar Hálf milljón brotin niður í Leifsstöð Um páskana var hálí' milljón brotin niður í Leifs- stöð í bókstaflegri merkingu þess orðs. Um var að ræða annað eðlutrjánna lrægu sem ekki tókst að halda lífi í og var það því löngu dautt er það var brotið niður og fjar- íægt. Hitt tréð dafnar enn með góðu ntóti. Innkaup þess- ara trjáa var ein af mörgum bruðlhugmyndum er komið hafa upp í þeirri óráðsíu er einkenndu byggingafram- kvæmdir Leifsstöðvar. Góð lögregluaðstaða I þætti um Lögregjufélag Gullbringusýslu í Utvarpi Suðurnes upplýstist að bæði lögreglufélögin á Suðurnesj- um búa yfir ntjög góðri að- stöðu til félagsstarfs. Aðeins þrjú félög lögreglumanna hafa góða aðstöðu, en það eru félagið hér niður frá og það á Keflavíkurilugvelli og síðan Reykjavíkurfélagið. Hálfnað verk þá hafið er Eftir yfirlýsingu Vilhjálms Ketilssonar bæjarstjóra í Keflavík að hann væri að hætta, fannst nokkrum gár- ungum að tilvalið hefði verið að senda honum páskaegg með eftirfarandi málshætti: „Hállnað er verk þá hafið er“. Ótraust raforka Eins og við greinum l'rá á öðrum stað í blaðinu, þá var Slysavarnafélaginu færð VHF-miðunarstöð að gjöf í síðustu viku. Við sama tæki- færi afhenti Ellert Eiríksson, sveitarstjóri Gerðahrepps, slysavarnasveitinni Ægi í Garði vararafstöð. Hafði Ell- ert á orði að eftir að Hitaveita Suðurnesja hefði tekið við raforkudreifingu á Suðurnesjum, væri hún orðin svo ótraust að Gerða- hreppur hefði ekki þorað öðru en að gefa Ægi um- rædda rafstöð. Tveir mannlausir bílar í árekstri Nokkuð óvenjulegur árekstur varð á bryggjunni í Sandgerði nýverið milli tveggja bila. Báðir voru bíl- arnir mannlausir ogeigendur þeirra að störfum í bátum sínum, er annar bílanna tók af stað sjálfur og lenti á hinum. Vitni urðu engin, en annar eigandinn varð var við hátt brothljóð er bílarnir skullu saman. Snuddan en ekki netin Þeir eru margir sjómenn á netabátunum sem eiga erfitt með að skilja páskastopp aðeins á netabátum, þegar allir aðrir nema trillur mega veiða á meðan. Varla hvílist þorskurinn þó netin séu tekin í land, meðan snuddu- bátarnir og togararnir halda áfram á þessum veiðum. Er þetta því eitt af þessum ó- skiljanlegu lagaboðum þessa lands. Vændi í Keflavík? Er komið vændi í Kefla- vík og vantar yfirmann þeirr- ar stofnunar? Svo mætti ætla ef tekið væri mið af auglýs- ingu einni sem birtist í síð- asta tölublaði Víkur-frétta og greindi frá lausu starfi úti- búshóru. Sem betur fer, ef hægt er að segja svo, var það prentvillupúkinn illræmdi sem stundaði vændi þetta, því að sjálfsögðu var verið að auglýsa lausa stöðu útibús- stjóra. Þúsundföld hækkun í stað lækkunar 1 molanum hér næst á undan er ræt; um voðaverk prentvillupúkans hér í blað- inu. Ekki var sú saga þó ein- stök, þvi i næst síðasta tölu- blaði kom hann einnig við í auglýsingu á eftirminnilegan hátt. Þá auglýsti verslun ein staðgreiðsluverð sem átti að vera 28.790.00 á tiltek- inni vöru en varð 28.790.000, þ.e. tæpar 28.8 milljónir. Já, hann tekur stórt upp í sig blessaður púkinn sá. Hafa ráðamenn Njarð- víkur ekki nægan þroska? Undir umræðum um bygg- ingu sundmiðstöðvar í Kefla- vík og sameiningu íþrótta- mannvirkja Keflavíkur og Njarðvíkur á fundi bæjar- stjórnar Keflavíkur á þriðju- dag, sagði garðar Oddgeirs- son: „Eg dreg i efa að ráða- menn Njarðvíkurbæjar hafi þroska til að sameinast". Svo mörg voru þau orð. Mynd- gátan Lausn gátunnar, sem unnin er úr fréttuni blaðsins, má flnna á öðrum stað í blaðinu.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.