Víkurfréttir - 07.04.1988, Qupperneq 11
MÍKUn
viKurt
10 Fimmtudagur 7. apríl 1988
juWi
juttií'
Fimmtudagur 7. apríl 1988 11
MENNINGARVAKA SUÐURNESJA ’88
Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, var
lieiðursgestur á opnunarkvöldi menningarvökunnar. Hér sést
hún á spjalli við Helga Hólm, kynni kvöldsins, að lokinni dag-
skránni. A eftir þeim kemur Birgir I. Gunnarsson, menntamála-
ráðherra, og að baki honum kunnir heimamenn.
Ponsumót Fimleikafélags Keflavíkur tókst
mjög vel. Fimleikadömur úr Ketlavik og nágrannabyggðunum
sýndu listir sínar við mikla hrifningu áhorfenda.
TÓKST MJÖGVEL
„Við erum alsæl. I>að hefur allt tekist mjög vel, aðsókn frábærogallir ánægðir. Við
gerum okkur vonir um að Menningarvaka Suðurnesja verði fastur viðburður fram-
vegis", sagði Hjálmar Arnason, einn af umsjónarmönnum með vökunni, í samtali við
Víkur-fréttir.
Menningarvakan hófst 18. mars með frumsýningu Litla leikfélagsins í Garði.
Laxnessvaka var á opnunarkvöldi þar á eftir og síðan rak hver menningarviðburður-
inn annan, tónleikar, iþróttir, myndlistarsýningar, útvarp og margt fleira. Dag-
skránni lýkur á laugardaginn 9. apríl með unglingaskcmmtun í Félagsbíói kl. 14.
Víkur-fréttir fylgdust nteð vökunni og hefur verið greint frá helstu viðburðunum.
Ilér i opnunni gefur að lita hluta af því sem á boðstólum var.
Mikið fjölmenni var við opnun menningarvökunnar í Félagsbíói.
Eiríkur Alexand-
ersson, sem átti sæti í und-
irbúningsnefnd menningar-
vökunnar, llutti ávarp við
setninguna.
kenning frá S.S.S. Við það tæki-
færi hélt Jón stutta ræðu á bók-
menntakynningunni í Stóru-
Vogaskóla.
Björg Hafsteinsdóttir, unglingalandsliðskona úr
Ketlavík, var í eldlínunni í 4ra liða körfuboltamóti kvenna, sem
Iram fór i íþróttahúsi Ketlavikur. Auk A-landsliðs íslands og
unglingalandsliðs tóku þátt landslið Wales og Luxemburg. Lux-
dömurnar sigruðu, Wales í 2. sæti, u-liðið í 3. og A-landslið Is- I
lands rak lestina.
Erlingur Jónsson, listamaður, er hér í góðra vina hópi við opnun sýningar sinnar í Fjöl-
brautaskólanum. Með honum á myndinni eru hjónin Hilmar Pétursson og Asdís Jónsdóttir og
Tómas Tómasson og Halldís Bergþórsdóttir.
Bókmenntakynning í Vogum var vel sótt, eins og nánast allir dagskrárliðir vökunnar.
Jón Dan, sem er fæddur og uppalinn fyrstu 15 árin á Ströndinni, var kynntur. Ingimar E. Sigurðs-
son, bókmenntagagnrýnandi, hélt fyrirlestur um höfundinn og lesið varúrverkum hans. Vilhjálm-
ur Grímsson, sveitarstjóri, afhenti Jóni Dan fyrir hönd SSS gjöf frá sambandinu. Hjálmar Arna-
son sleit Menningarvöku Suðurnesja síðan formlega.
Popptónleikar með þátttöku allra helstu banda Suðurnesja fóru fram í KK-salnum og tók-
ust hið besta.
- Ljósmyndir: epj. og hbb. -
Halla Haraldsdóttir glerlistakona, sýndi verk sín í Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja, auk þess sent luin gaf sýningargestum
sínum kost á að fylgjast með sér að störfum.
Ásta Pálsdóttir færði Kellavíkurbæ við opnun sýningar
sinnar í Fjölbrautaskólanum, málverk er sýnir Helguvík áður en
framkvæmdir hófust þar. Öll verk hennar seldust upp á skammri
stundu.
Sigríður Rósinkarsdóttir hélt sýningu á málverkum
sínum í Festi í Grindavik á Vordögum Bókasafns Grindavíkur.
Þórunn Guðmundsdóttir var með samsýningu með
I lalldóru Ottósdóttur, en sú síðarnefnda gat ekki verið viðopnun-
ina vegna veikinda. Sýning þeirra var haldin í Grunnskólanum í
Sandgerði.
Erla Sigurbergsdóttir sýndi verk sín að Hafnargötu 35 í
Kellavík. Var þar um sjálfstæða sýningu að ræða, óháða
menningarvökunni. Er hún sú eina sem er ennþá meðsýningu sína
opna, en henni lýkur 17. apríl.