Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.04.1988, Blaðsíða 17

Víkurfréttir - 07.04.1988, Blaðsíða 17
WKUR {titu* Fimmtudagur 7. apríl 1988 17 Nýsmíði Harðar hf.: Ótrúlega gott fyrirkomulag „Þetta er lang besta fyrir- komulag sem ég hef séð í báti af þessari stærð", sagði einn af samkeppnisaðilum Skipa- smiðjunnar Harðar hf. í Njarð- vík, eftir að hafa augum litið bát þann sem sjósettur var í fyrsta sinn í Njarðvík á miðvikudag fyrir páska. Nýsmíði þessi er hin fjórða frá Skipasmiðjunni hf. og er 9,9 tonna stálbátur, sem fengið hefur nafnið Jón Pétur ST-21 og er í eigu Astvaldar Péturs- sonar, Hafnarfírði. Meðan blaðamaður skoðaði bátinn komu fleiri samkeppn- isaðilar og menn er keypt höfðu báta af svipaðri stærð frá öðrum skipasmiðjum, og létu þeir svipuð orð falla og sá sem vitnað er í hér að framan. Eru þetta því mjög góð með- mæli, enda er fyrirkomulagið neðan þilja alveg ótrúlegt. En hver er ástæðan fyrir þetta góðu fyrirkmulagi? Um það sagði Olafur Sig- tryggsson m.a.: „1 þessum báti eru langbönd og því var hægt að nýta plássið milli bandanna m.a. fyrir kojur. Aðrir bátar eru með þverbönd og þar er aðeins hægt að nýta samsvar- andi pláss undir skápa“. En það er ekki aðeins þetta sem vekur athygli, heldur öll hönnun bátsins. Sagðist Ólaf- ur eiga von á að þeir myndu smíða á næstunni þrjá aðra báta með þessu fyrirkomulagi, af þessari stærð. 295% verðmunur á steiktum lauk! Það getur marg borgað sig að fylgjast með verðlaginu. Einn lesandi blaðsins kom inn á ritstjórn með tvö sýnishorn. Fyrir páskana keypti hann 140 g box af steiktum lauk í Hagkaup í Njarðvík á 41,90 kr., en hafði fyrir skömmu keypt sama magn í Nonna & Bubba, Hólmgarði, fyrir 123,50 kr., sem er 294,75% hærra verð. Þá hafði sami aðili keypt ávöxtinn KlWl í Hag- kaup, en kílóverðið þar er 159,00 kr., en í Nonna & Bubba kostar kílóið 322,00, sem er 102,52% hærra verð. Boxin utan af lauknum, en verðmunurinn er 294,75%. Minningarathöfn um skipverjana á Knarrarnesinu Sameiginleg minningar- athöfn fer fram í Ytri- Njarðvikurkirkju kl. 14 á laugardag um skipverjana þrjá, Gunnlaug Þorgils- son, Arna Kristinn Gunn- laugsson og Birki Frið- bjornsson, sem fórust með Knarrarnesi KE 399 12. mars s.l. Hafa sóknarprestar Ytri Njarðvíkursóknar og Kefl- avíkursóknar, sr. Þorvald- ur Karl Helgason ogsr. Ól- afur Oddur Jónsson sam- einast um athöfn þessa og munu báðir þjóna fyrir alt- ari. Þá mun söngfólk úr báðum kirkjukórunum syngja. Organistar verða Gróa Hreinsdóttir og Sig- uróli Geirsson. Hinn nýi bátur sem Hörður hf. hefur lokið smíði á, sjósettur í Njarðvíkurhöfn. Bátur þessi sem erntjög vel hannaður hefur hlotið nafnið Jón Pétur ST-21. Ljósm.: hbb. Úrslitakeppni úrvalsdeildar KKÍ: ÍBK - HAUKAR í íþróttahúsi Keflavíkur í kvöld, fimmtudag, kl. 20. - Suðurnesjamenn, fjölmennum! Hvetjum Keflvikinga til sigurs. Við viljum Suðurnesjaliðin i úrslitaleik! BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS Umboð Keflavík - Njarðvík - Vogar - Garður Hafnargötu 58, Keflavík, símar 13510, 13511, 14880 ^J^aupfélacj. JJuÉumeój a I HELGIHÓLMl UMBODSSKRIFSTOFA Haínargötu 79 - 230 Keflavik - Simi 92-15660

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.