Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.04.1988, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 14.04.1988, Qupperneq 1
imn Landsbókasc Safnahúsinu 101 Reykjav 15. tbl. 9. árg. Fimmtudagur 14. ap Sandgerðingar mót- mæla gúanófýlu Nokkrir Sandgerðingar tóku sig saman á laugardag og útbjuggu undirskriftalista um mótmæli gegn því að brætt sé í fiskimjölsverksmiðju Njarðar h.f. þegaródauninn legguryfir byggðarlagið. Var listi þessi hafður frammi í Öldunni og á skömmum tíma höfðu yfir 200 manns, 15 ára og eldri, skrifað undir mótmælin sem afhent verða hreppsnefndinni. „Við erum orðin langþreytt á þessari mengun og á laugar- dag keyrði um þverbak í þess- um efnum er vindáttin var yfir byggðina“ sagði einn forráða- manna undirskriftarlistans í samtali við blaðið. „Þettaget- ur ekki gengið svona og því væntum við úrbóta" bætti hann við. Síðasta laugardag var óvenju slæmt ástand þessara mála í Sandgerði og til marks um það voru stanslausar kvartanir til lögreglunnar frá hádegi og fram eftir kvöldi. Vegna þessa reyndi blaðið að ná sambandi við heilbrigðis- fulltrúana, en hvorugan tókst að ná í áður en blaðið fór í prentun. Stefán Jón Bjarnason, sveit- arstjóri í Sandgerði, hafði hins vegar þetta um málið að segja: „Yfir höfuð er lykt þessi ákaflega óyndisleg, en vindátt hér yfir byggðina er mjög sjaldgæf og oftast óvænt, þ.e. önnur en veðurspá hafði gert ráð fyrir. Það er því ekki mjög gott að stoppa skynoilega þegar vindáttin blæs óvænt hér yfir. Er þetta því líðandi vegna þess hve þetta er sjaldgæft. Vegna ástandsins hér á laugardag hafði ég samband við forráðamenn verksmiðj- unnar og óskaði eftir að slökkt yrði á bræðslunni ef þessi vind- átt yrði á sunnudaginn, þar sem hér voru þá fermingar. Til þess kom þó ekki þar sem önnur vindátt ríkti þá. Það er að sjálfsögðu krafa að hér verði komið fyrir hreins- unarútbúnaði ef verksmiðjan verður endurbyggð. Veit ég að árvökul augu heilbrigðisfull- trúa fylgjast með því máli", sagði Stefán að lokum. Erfíðleikar vegna veðurs Þó nokkrir erfiðleikar urðu á Reykjanesbrautinni í fyrrakvöld og fyrrinótt vegna veðursins sem þá gekk hér yfir. Þurfti lög- reglan að aðstoða marga er þurftu að skilja bíla sína eftir við brautina, sökum þess að það skóf inn í þá og þeir stoppuðu af þeim sök- um. Sendi lögreglan út að- varanir í gegnum útvarps- stöðvarnar til fólks um að vera ekki að óþörfu á ferð- inni um braudna. En á tímabili var hún þungfær, skyggni lélegt, auk þess sem skóf inn í rafkerfi bíla. Gnúpur GK til Grindavíkur Hinn nýi togari Þorbjörns h.f. í Grindavík, Gnúpur GK 257, landaði á mánudag í fyrsta sinn í heima- höfn sinni. Var aflinn 130-140 tonn af blönduðum fiski. Er togari þessi sá fyrsti sem gerður er út frá Grindavík en áður áttu Grindvíkingar hlut í tveimur togurum sem gerðir voru út frá Hafnarfirði. A. Ljósm.: hbb. Vilhjálmur forseti bæjar- stjórnar Eins og greint var frá í síðasta tölublaði Víkur- frétta voru miklar líkur taldar á því að Guðfinnur Sigurvinsson yrði næsti bæjarstjóri í Keflavík og tæki við þegar Vilhjálmur Ketilsson hættir í sumar. Nú hefur mál þetta verið afgreitt með þessum liætti í bæjarráði Keflavíkur. Þá hefur blaðið eftir áreiðanlegum heimildum að meirihluti bæjarstjórn- ar Keflavíkur hafi ákveðið að þeir Guðfinnur og Vil- hjálmur skipti um stóla á þessum tímamótum. Mun Vilhjálmur því taka sæti forseta bæjarstjórnar frá sama tima. 30 þús. gestir í Bláa lóninu Nýlokið er fyrsta starfs- ári baðhússins við Bláa lónið og kom fram á aðal- fundi HS um síðustu helgi að á þessu ári hafi yfir 30 þúsund gestir heimsótt lónið, eða þetta mikla nátt- úruundur sem þar er. Til umræðu er nú við- bygging upp á 50 fermetra svo ekki konii til vand- kvæða eins og á síðasta sumri við búningsklefana er fjöldi manns varð frá að hverfa á góðviðrisdögum. Menningar- sjóður við Hitaveituna Hugmyndir eru uppi innan Hitaveitu Suður- nesja að stofna mentiingar- sjóð til að lilúa að rnenn- ingu Suðurnesja. En Hita- veita Suðurnesja er eina hitaveita landsins sem er í lögum undanskilin greiðslu fasteignagjalda, og þvi fannst ráðamönnum HS rétt að leggja álíka fjárhæð og færi í þann lið til styrkt- ar menningu á svæðinu.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.