Víkurfréttir - 14.04.1988, Blaðsíða 13
\>iKun
juíUt
Fimmtudagur 14. apríl 1988 13
Keflavík:
Náttúru-
spjöll
unnin
við
Mána-
götu
Slæmar skemmdir eru í grassvörðinum á Mánanum. Ljósm.: hbb.
Eldflaugar-
SKOT
SPECIPUMHF
SÍMI29166
Einhverjir hugsunarlausir
einstaklingar unnu í síðustu
viku náttúruspjöll á Mánan-
um svokallaða við Mánagötu í
Keflavík. Hafa þeir ekið þvers
og kruss eftir grasinu og
skemmt svörð þess.
Af þessu tilefni hafði blaðið
samband við Jón B. Olsen,
yfirverkstjóra og garðyrkju-
fræðing Keflavíkurbæjar.
Sagði hann þetta um málið:
„Ég harma að svona skuli eiga
sér stað og að menn skuli ekki
bera meiri virðingu fyrir því
sem verið er að gera til fegrun-
ar í bænum og að menn skuli
ekki láta þetta í friði.“
Tökum við undir þessi orð
Jóns og skorum á bæjarbúa að
fylgjast með því ef ekið er á
hinum ýmsu grænu svæðum
bæjarins og kæra slíkt athæfi
hið snarasta til réttra yfir-
valda.
Týndur maður
í góðu yfirlæti
á hóteli í
Keflavík
Síðasta Iaugardag var
auglýst í sjónvarpi og út-
varpi eftir 32 ára gömlum
manni sem saknað hafði
verið í Reykjavík frá því á
þriðjudag í síðustu viku.
En þá hafði maðurinn átt
að taka rútu til vinnu sinn-
ar en skilaði sér ekki.
Skömmu eftir að mynd
af manninum birtist ásjón-
varpsskjánum barst lög-
reglunni í Reykjavík hring-
ing frá Hótel Keflavík þar
sem sagt var frá því að
maðurinn væri þar og hefði
dvalið frá því á þriðjudag í
góðu yfirlæti án þess að
nokkurn hefði grunað að
hans væri saknað. Fékk
lögreglan í Reykjavík síðan
kollega sína í Keflavík til
að sækja manninn og flytja
til móts við Reykjavíkur-
lögreglu.
Hitaveitan:
Aðveitustöð
við Aðalgötu
í máli Alberts Albertssonar,
framkvæmdastjóra tæknisviðs
Hitaveitu Suðurnesja á aðal-
fundi veitunnar um síðustu
helgi kom fram að áætlaðerað
reisa nýja aðveitustöð við Að-
algötu í Keflavík í sumar. Hér
er um fjárfestingu upp á 27
milljónir að ræða en aðveitu-
stöð þessi á að vera komin í
gagnið í árslok eða byrjun
næsta árs.
Mun stöð þessi þjóna Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar og efri
hluta Keflavíkur. Einnig er til
umræðu að hún þjóni hinni
nýju radarstöð sem reist verð-
ur skammt frá Leifsstöð og
mun koma í stað Rockville-
stöðvarinnar.
Þá hefur Hitaveitan ákveð-
ið að byggja 132 kw rafmagns-
línu úr Svartsengi og niður á
Fitjar til þess að tryggja örugg-
an flutning raforku. Kemur
lína þessi í stað þeirrar sem nú
liggur frá Vogum til Grinda-
víkur og er orðin mjög ótraust.
Tveir góðir hjá
Landsbankanum
Afmæusreikningur
FULL
VERÐTRYGGING
+ 7,25% vextir
E
INKA REIKNINGUR
GÓÐUR LAUNAREIKNINGUR
HÁIR VEXTIR
YFIRDRÁTTARHEIMILD
LAUNALÁN
Kynnið ykkur þjónustu Landsbankans.
Banki allra Suðurnesjamanna.
L
Landsbanki
íslands
Keflavikurflugvelli,
Sandgerði, Grindavik