Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.04.1988, Blaðsíða 11

Víkurfréttir - 14.04.1988, Blaðsíða 11
VÍKUR MlKUrt Fimmtudagur 14. apríl 1988 11 MÁLVERKASÝNING Erlu Sigurbergsdóttur Málverkasýningu Erlu Sigurbergsdóttur lýkur á sunnudaginn 17. apríl. Opiö kl. 14-20 virka daga og kl. 14-18 um helgina. - Allirvelkomnir. Ársveisla Föroyaklúbbs Suðurnesja verður haldin í Golfskálanum, Leiru, 23. apríl kl. 20. Borðhald - Skemmtiatriði - Happdrætti Góðir vinningar. Dans fram eftir nóttu. Miðapantanir í símum 11078 og 37559. Vinsamlegast pantið sem fyrst. Stjórnin ÍSMARK ÍSVÉLAROG ÍSBLÁSARAR ÍSMARK isvélarnar hafa sýnt og sannað gildi sltt bæði tii sjós og lands þar sem kröfur eru gerðar til afkasta og endingar. Með þeim er auðvelt að ráða formstærð og þykkt íssins enda helst fiskur sem hefur verið ísaður með ÍSMARK ís ferskur og áferðarfallegur. ÍSMARK ísvélarnar eru til í fjórum stöðluðum stærðum: fyrir ferskt vatn eða sjó, á land eða í skip. Með ÍSMARK blásurum heyrir ísmoksturinn sögunni til. Þeir blása ísnum 10-50 metra og afköstin eru 20-40 tonn á klukkustund. ÍSMARK ísblásarar fara betur með ísinn og stuðla jafnframt að auknum afköstum. Vinsamtegast hafið samband. Við veitum allar upplýsingar um verð og greiðsluskilmála. (utm | (utm „Algjört skilyrði að vera manneskja - á eftir því kemur listin“, segir Erlingur Jónsson Erlingur Jónsson er maður betur þckktursem listamaður Suðurnesja. Hann hefur uni árabil skilið eftir sig hin ýmsu listaverk um allan bæ og ófáar eru þær brjóstmynd- irnar sem hann hefur gert af merkari mönnum bæjarins. Það var því kærkomið ánægjuefni að heyra að hann skyldi vera valinn til að vinna það listaverk, er veita átti okkar stórmerka Nóbelsskáldi, Halldóri Laxness, að gjöf á Menningarvöku okkar Suðurnesjamanna, sem haldin var um páskana. Þar sem Erlingur býr nú erlendis báðum við hann um að líta aðeins við til okkar í spjall, áður en hann héldi heim á leið. Við spurðum hann fyrst hvort ekki væri alltaf jafn gott að koma heim til íslands, heim í sæluna? „Jú, alltaf jafn gott“. - / framhaldi af því að þú gafsi Laxness hestinn, er ekki erfiu uð skilja við verkin? „Við skulum leggja alla áherslu á að það var ekki ég seni gaf Laxness hestinn, heldur við öll, og það var virkilega gleðilegt að hann skyldi vera svo lítillátur að taka við honum, þessi stórmeistari. Að skilja við verkið, ja, nei, ég get ekki sagt það, enda gáfum við honum það af því hvað við metum hann mcira en aðra menn“. - Hvaða eiginleikar eru lista- manni einkum nauðsynlegir? „Rodein sagði að algjört skilvrði væri að vera mann- eskja. A eftir því kærni listin og allt þess háttar. Nú, það verður að vera áhugi, vilji og þraut- seigja til að geta unnið og vandað sig“. - Haja vi'ssir straumar eða stefnur haj't einliver úhrifá verk þín rneir en önnur? ,,Já, það má segja að íslenskar bókmenntir og þá sérstaklega þær eftir Laxness, haft haft mikil áhrif á mig. Nú, einnig hafa áhrif komið frá meðbræðrunt mínum, enda ef við getum verið manneskjur, þá höfum við hæfileika til að ná sambandi við aðra“. - Hver voru þinfyrstu kynni af verkum Halldórs Laxness? „Mín fyrstu kynni voru af formála að bók um myndir Jó- hannesar Kjarval og þann formála mæli ég með að hver maður lesi. Þar fjallar Halldór um muninn að sjá hiutina eins og þeir „eru“ og „eru ekki". Að sjá er svo margþætt og langvarandi ferli og því lýsir Halldór afskaplega vel í þcss- um formála". - Er eitthvert eitt verka hans í meira uppáhaldi hjá þér en önnur? „Fyrir mitt leyti segi ég að Heimsljós sé fallegasta bók sem ég hef lesið, en það er sania hvar maður ber niður hjá lionum, alls staðar dvelur maður við“. - En svo við snúum okkur að þér sjálfuin. Hvenœr snerir þú þér að listagyðjunni? „Já, hvenær er það list og hvenær ekki? Það er liægt að færa rök fyrir því að börn séu heilmiklir listamenn og ég held að ég eigi erfitt með að tiltaka eitthvað ákveðið tímabil sem mín fyrstu kynni“. - Telur þú þig hátíðlegan í lúlkun þinni á verkum þínum? „Ef ég reyni við einhverja mynd, þá er það oftast vegna einhvers áreitis og þá reyni ég sem best að vanda mig og gera eins vel og ég get. Að því leyti tel ég mig kannski hátíðlegan, cn nei, ég held ég geri það ekki að öðru leyti. Mér finnst ákaf- lega gaman að þessu og þetta eru spurningar sem ég svara oft á ómeðvitaðan hátt“. - Hvernig hagar þú þinni vinnu, ertu með margt í takinu eða tekur þú hvert verkfyrirsig í einu? „Yfírleitt er maður með fleira en eitt og fleira en tvennt í takinu á hverjunt tinia, en ég legg mig aðallega að einu verki í einu. Vinnutíminn cr venju- lega sá sami, þ.e. frá morgni til kvölds". - Attu þér eitthvert eftir- lœtis myndefni? „Þrívíðar myndir höfða mest til mín. Maður getur þá valið sibreytileg sjónarhorn og litið á þær hvernig sem manni hentar" - Ertu a/ltaj' að leita að mótivum? „Nei, ég held að vandinn sé að velja úr öllu því efni sem ég á, frekar en að mig vanti“. - En horfa ekki listamenn öðrum augum á umhverfi sitt en aðrir? „Ég held að það sé aldrei sama sinni hjá tveirn þó santa blysið báðir þeir llíki", sagði Einar Ben einhvern tíma, og ég held að það svar standi vel undir þessari spurningu". - En þú ert ennþá að kenna? „Jú, ég kenni ennþá, þó minna en áður. En hef alltaf jafn gaman af því“. - Þú œtlar að halda þér fast í listagyðjuna um komandi ár? „Já, ég vona að ég geti haldið þessu áfram og þá helst náð einhverjum þolanlegum árangri". - Nú býrð þú í Osló, hvernig er að vera þar? „Ekkert nema gott um Norðmennina að segja, þeir hafa komið vel fram við mig, en þó ég búi þar núna, þá er ég ekkert annað en starfandi gest- ur og auðvitað á leiðinni heim“. - Hvaðfinnst þér nú jákvœð- ast við íslenskt mannlíf svona í samanburði við þegar þú bjóst hér heima siðast? v„Það er hversu Islendingar ferðast mikið núna miðað við það sem þeirgerðu. Nú, svo er hér alltaf svo hreint andrúmsloft en heldur hraðari sveifla". „Eitthvað sem þú saknar einna helst? „Já, það er að geta ekki fylgst með íslenskri pólitík nægilega vel. Minn tími fersvo mikið í verkin að ég hef ekki gefið mérneinntímatilaðlítaí dagblöðin að heintan ogfylgist því síðurmeðen maðurgerði". Að þessum orðum sögðum kveðjum við Erling Jónsson, listamann með meiru, og þökkum honum kærlega fyrir hans skerf til menningar og lista sem án efa verður ekki hans síðasti fyrir hönd okkar Suðurnesjamanna. Erlingur Jónsson og Laxnesshjónin, Halldór og Auður, virða fyrir sér Krapa. hestinn sem Suður- nesjamenn færðu Nóbelsskáldinu að gjöf. Ljósm.: Bökur Birgisson Rugludallar. Ljósm.: hbb. ÓfflSSANDI UPPSLÁTTARRIT Kennitölur, nafnnúmer og aðrar helstu upplýsingar um 10.000 starfandi fyrirtæki alls staðar á landinu er að finna í JSLENSK FYRIRTÆKI1988“ Vantar þig gólfteppi, bátakrana eða einhvem til að sjá um tískusýningu eða ráðstefnu? Upplýsingar um útflytjendur, erlend umboð eða farsímanúmer einhvers íslensks skips? Svarið finnur þú í „ÍSLENSK FYRIRTÆKI1988“. ÍSLENSK FYRIRTÆKI - ómissandi uppsláttarrit í 18 ár.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.