Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.04.1988, Side 14

Víkurfréttir - 14.04.1988, Side 14
ViKurt 14 Fimmtudagur 14. apríl 1988 Skrifstofustörf Hitaveita Suðurnesja óskar eftir að ráða tvo starfsmenn til starfa á skrifstofu fyrir- tækisins að Brekkustíg 36, Njarðvík. 1. Starfsmann, helst vanan tölvuvinnslu, í að minnsta kosti 1 ár. 2. Starfsmann, helst vanan almennum skrifstofustörfum, til sumarafleysinga. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesjabyggða. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsing- ar fást á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja, Brekkustíg 36, Njarðvík, og skulu umsókn- ir berast þangað, eigi síðar en 15. apríl 1988. Hitaveita Suðurnesja Lögreglu- starf Nokkra lögregluþjóna vantar til sumaraf- leysinga. Umsóknareyðublöð fást hjá yfirlögreglu- þjóni er veitir allar frekari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 1. maí n.k. Lögregiustjórinn í Keflavík, Grindavík, Njarðvík og Gulibringusýslu ATVINNA Starfsfólk óskast til snyrtingar og pökkun- ar nú þegar. Akstur til og frá vinnu. Upplýsingar í síma 16921. HAFNIR HF. © Skrifstofu- störf Laus eru störf við embætti bæjarfógetans í Keflavík, Njarðvík, Grindavík og sýslu- mannsins í Gullbringusýslu, vegna afleys- inga. Laun skv. launakerfi BSRB. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf óskast sendar undirrituð- um fyrir 23.4. 1988. Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík og Njarðvík Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu (Jón Eysteinsson (sign) \(UM* KEFLAVÍK Afgreiðslustarf Stúlka óskast til afgreiðslustarfa í búsá- halda- og leikfangadeild. STAPAFELL HF. Keflavík - Sími 12300 Byggingavinna Smiðir eða menn vanir byggingavinnu óskast til starfa strax. Mikil vinna. Upplýsingar gefa Margeir í símum 14272 og 46745 og Halldór í síma 13035. ATVINNA Starfsfólk vantar til sumarafleysinga í eld- hús Garðvangs. Upplýsingar gefur Guðlaug Bragadóttir í síma 27151. Dvalarheimili aldrðra Suðurnesjum ATVINNA Óskum eftir að ráða starsfólk í almenna fiskvinnslu. Upplýsingar á staðnum. ÍSLENSKUR GÆÐAFISKUR Brekkustíg 40 - Y-Njarðvík Verkstjóri Óskum eftir að ráða verkstjóra til starfa á Keflavíkurflugvelli. SUÐURNESJAVERKTAKAR Tjamargötu 3 - Sími 13400 Hárgreiðslusveinn óskast Óskum eftir að ráða hárgreiðslusvein hálf- an eða allan daginn. Upplýsingar á staðn- um. HÁRGREIÐSLUSTOFAN Hafnargötu 35 - Keflavík - Simi 14585 Sinubruni í Njarðvík Nú er sá árstími sem sinu- brunafaraldur gengur oft yfir en í þéttbýli má ekki kveikja í sinu og í dreifbýli er slíkt óheimilt eftir 1. maí ár hvert. Síðasta laugardag þurfti slökkvilið Brunavarna Suður- nesja að hafa afskipti af einum slíkum bruna, þó mjög óveru- legum. I þetta skipti var kveikt í sinu sjávarmegin við Hafnar- braut í Njarðvík. Ölvaður í árekstri Nokkuð erilsamt var hjá lögreglunni í Keflavík um helgina en þó voru aðeins tveir ökumenn teknir fyrir grun um meinta ölvun við akstur. Þar af hafði annar ekið á annan bíl. Þá voru tveir ökumenn að auki teknir, réttindalausir. Um helgina var lögregl- unni tilkynnt um 4 árekstra, þar af sáu öku- menn um útfyllingu tjóna- eyðublaða alveg sjálfir í einu tilfellanna. Upplýs- ingar um stuld í bifreiðum Brotist var inn í tvo bíla við Njarðvíkurbraut í Innri Njarð- vík aðfaranótt páskadags. Var stolið úr öðrum bílnum stórri og mikilli verkfæratösku sem hafði m.a. að geyma dýr mæli- tæki og mikið af verkfærum. Síðan var TEC tónjafnara stolið úr hinum bílnum. Þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið um þessa hluti eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregluna í Keflavík. Fundarlaun eru í boði. Skipuð fulltrúi hjá fógeta Þórdís Bjarnadóttir, lög- fræðingur, hefur verið skipuð fulltrúi við embætti sýslu- mannsins í Gullbringusýslu og bæjarfógetans í Keflavík, Grindavík og Njarðvík. Hefur hún hafið störf. Er það dóms- og kirkju- málaráðuneytið sem skipaði í stöðu þessa. Nafnabrengl leiðrétt Þau mistök urðu í myndtexta við frétt um miðunarstöðina á Garðskaga að sagt var að á mynd- inni væri Henrý Hálfdánarson. Hér átti að sjálfsögðu að standa Haraldur Henrýsson. Biðjumst við velvirðingar á mistökum þessum.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.