Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.10.1988, Qupperneq 6

Víkurfréttir - 13.10.1988, Qupperneq 6
6 Fimmtudagur 13. október 1988 Keflavíkurkirkja Stafnes: Leyfislausir sorphaugar Laugardagur 15. okt. Arna heilla: Brúðkaup Gerðar Gunnlaugs- dóttur og Tyrfings Andrésson- ar, Greniteig 15, Keflavík, kl. 14. Brúðkaup Guðrúnar Kristín- ar Sveinbjörnsdóttur og Þor- steins Guðmundssonar, Kirkjuteig 7, Keflavík, kl. 15. Sunnudagur 16. okt.: Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Málfríðar og Ragnars. Munið skólabílinn. Guðsþjónustan fellur niður þar sem sóknarprestur sækir ráðstefnu í Bergen um trú, heilsu, kirkju og samfélag. Sóknarprestur Ytri Njarðvíkurkirkja: Barnaguðsþjónusta klukkan 11:00. Sóknarprestur Áhugamenn um útiveru, sem farið hafa í gönguferðir frá Stafnesi, um Básenda og út í Hafnir, hafa veitt athygli miklu rusli á víðavangi á þessu svæði. Strax og komið er út fyrir túnfótinn við bæinn Staf- nes má sjá hálfbrennda sorp- poka, pappakassa og ýmislegt annað rusl. Vegna þessa hafði blaðið samband við Magnús Guðjónsson, heilbrigðisfull- trúa, og spurðist fyrir um sorp- hauga þá sem staðsettir eru á Stafnes og eru valdir að öllu þessu rusli. Sagði Magnús að umræddir haugar væru einungis notaðir undir stórgert sorp, sem ekki væri brennanlegt í sorpeyð- ingarstöðinni. Þegar stöðin hefur bilað, þá er hússorpi ekið út á Stafnes og urðað. Að sögn Magnúsar þá er ekki heimilt að brenna sorpi á Stafnesi, það eina sem heimilt er að brenna er netariðill. Svæði það, sem sorphaug- arnir standa á, heyrir undir ut- anríkisráðuneytið, sem leyfir sorphauga á þessum stað en haugarnir eru leyfislausir gagnvart heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytinu. Verið er að vinna að því hvort Holl- ustuvernd ríkisins eða heil- brigðiseftirlitið eigi að vinna starfsleyfistillögur fyrir haug- ana. Sagðist heilbrigðisfulltrúi vonast til að losna við þetta vandamál með haugana þegar búið væri að byggja nýja sorp- brennslustöð, því þá verður sú, sem fyrir er, notuð þegar ein- hver skakkaföll verða í þeirri nýju. Svona drasl má Finna á víð og dreif í nágrenttksorphauganna á Staf- nesi. Innri Njarðvíkurkirkja: Barnaguðsþjónusta klukkan 11:00. Sóknarprestur Útskálakirkja: Messað verður kl. 11. Altaris- ganga, barn verður borið til skírnar. Organisti Ester Olafs- dóttir. Hjörtur Magni Jóhannsson Hvalsneskirkja: Messað verður kl. 14. Altaris- ganga, barn verður borið til skírnar. Organisti Frank Herl- ufsen. Hjörtur Magni Jóhannsson Aðalstöðin hf.: Margrét framkvæmdastjóri Stjórn Aðalstöðvarinnar h.f., Keflavík, hefur ráðið Margréti Ágústsdóttur í stöðu framkvæmdastj framkvæmdastjóra fyrirtækis- ins, en hún á að baki 14 ára starf hjá Aðalstöðinni, fyrst sem símastúlka en síðustu árin hefur hún starfað á skrifstofu fyrirtækisins og nú síðast sem aðstoðarframkvæmdastjóri. Margrét er 32 ára og upp al- in í Keflavík. Fyrirrennari hennar í þessu starfi var Ing- ólfur Falsson, sem lét af störf- um á dögunum. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÁGÚSTU MAGNÚSDÓTTUR, Hátúni 9, Keflavík. Hafsteinn Jónsson Eyþór Ómar Hafsteinsson Hafsteinn Árni Hafsteinsson Herdis Hafsteinsdóttir Rúnar Þ. Magnússon Magnús Rúnar Hafsteinsson Sólborg E. Ingimarsdóttir og barnabörn. í forgrunn er rusl sem fokið hefur af haugunum, sem grillir í efst á ntyndinni. Ljósmyndir: hbb. Sandgerði: Viðir II. hæstur á línu Víðir II var hæstur þeirra báta sem lönduðu afla af línu í Sandgerði í síðustu viku, en hann landaði 20,5 tonnum úr þremur róðrum. Barðinn land- aði 4,7 tonnum úr einum róðri, Guðfinnur6,l úr þremur róðr- um og aðrir línubátar minna. Af trollbátum landaði Elliði 9,3 tonnum og Reynir 3,1 tonni. Hólmsteinn GK var eini netabáturinn, með 6,7 tonn úr fjórum róðrum. Aflahæsti bát- urinn, sem landaði í Sand- gerði í síðustu viku, var Bliki ÞH með 21,1 tonn í snurvoð. Ný járn- vöruversl- í Grinda- vík Sigurður Sveinbjörnsson, útibússtjóri Kaupfélags Suð- urnesja í Grindavík, hefurgert samning við kaupfélagið um kaup á lager járnvöruverslun- arinnar við Víkurbraut í Grindavík. Einnig hefur hann gert kaupleigusamning um af- not af fjórðungi nýja hússins sem kaupfélagið er að byggja ofan við Félagsheimilið Festi. Þar hyggst hann opna verslun með járnvörur og fleira þegar húsnæðið verður tilbúið. Jafnframt þessu hefur hann sagt starFi sínu sem útibús- stjóri KS lausu og hefur starFið þegar verið auglýst. BLÓM OG GJAFAVÖRUR við öll tækifæri ÚRVAL HAUSTLAUKA POTTA- PLÖNTU- ÚTSALA heldur áfram. OPIÐ 13-22 mánud.-föstud. 10-22 laugardaga og sunnudaga l/lkur Vm Fitjum - Njarðvík Sími 16188

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.