Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.10.1988, Blaðsíða 11

Víkurfréttir - 13.10.1988, Blaðsíða 11
VEÐDEILD SPARISJÓÐSINS í KEFLAVÍK HEFUR TIL SÖLU: Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs, verðtryggð skuldabréf útgefin af veðdeildinni. Einnig tökum við verðbréf í umboðssölu. Önnumst kaup og sölu á veðskuldabréfum. Innleysum spariskírteini ríkissjóðs samdægurs. Leitið upplýsinga hjá Veðdeild Sparisjóðsins í Keflavík, við Suðurgötu, sími 15800. Á AD SKIPTA Mikill kurr er meðal fiskkaupenda á Suðurnesjum vegna frétta um hugsanleg skipti á báðum togurum Hraðfrvstihúss Kefiavíkur og togaranum Drangey frá Sauðárkróki. Vegna þessa hafði blaðið samband við nokkra fiskverkendur, formann atvinnumálanefndar Keflavíkur, bæjarstjórann í Keflavík og stjórnarformann Hrað- frystihúss Keflavíkur. Koma svör þeirra allra hér á eftir nema bæj- arstjórans, sem taldi málið vera of viðkvæmt til að ræða það nú. „Hugsum þetta út frá byggðasjónarmiði" - segir Logi Þormóðsson „Ég get ekki séð rökin fyrir því að selja bæði skipin til norðurlands og missa þar með 3-4000 tonna kvóta af svæð- inu,“ sagði Logi Þormóðsson, fiskverkandi og stjórnarfor- maður Fiskmarkaðar Suður- nesja. Síðan sagði Logi: „Og það að ætla að bjarga með þessu Hraðfrystihúsi Kefia- víkur og fá í staðinn gamalt úr- elt verksmiðjuskip! Af hverju halda menn að Skagfirðingar vilji selja þetta verksmiðjuskip og fá í staðinn tvö góð ísfisks- skip? Ér málið kannski það að 1986 fékk útgerð Drangeyjar heilmikla peninga úr Byggða- stofnun en Hraðfrystihús Keflavíkur ekki neitt? Við verðum að hugsa þetta í þessu samhengi og varðandi kvóta- málin, þ.e. út frá byggðarsjón- armiði. Það er því mjög mikil- vægt að missa ekki frá sér þessi skip áður en það er kannað hvort ekki séu hér einhverjir aðilar sem gætu keypt þessi skip og hvort þeir eða núver- andi eigendur gætu ekki feng- ið peninga úr þessum nýja at- vinnuuppbyggingasjóði svo skipin haldist hér.“ Þá bætti Logi því við að þetta skip, sem Skagfirðingar vilja nú selja, sé gamalt skip sem alltaf sé meira og minna bilað og því væri rangt að kaupa það og þurfa að byrja á að henda í það rúmum tveimur tugum milljóna til að lagfæra það. „Skrítið að láta kvóta tveggja I stað eins“ - segir EyþórJónsson \fimn - blað sem ber hag Suðurnesjamanna fyrir brjósti. „Það er íjarstæða að þetta skuli geta komið upp og á alls ekki að geta átt sér stað hér á okkar svæði. Að menn skuli hugsa um það að láta kvóta tveggja skipa í stað eins er furðulegt," sagði Eyþór Jóns- son, framkvæmdastjóri Val- bjarnar h.f. í Sandgerði, sem á Frá félags- málastjóra Viðtalstími á Félagsmálastofnun Keflavíkurbæj- ar er alla virka daga frá kl. 9.00-12.00 f.h. Ef óskað er viðtals utan þess tíma, þarf að panta það sérstaklega. Félagsmálastjóri togarann Hauk, í samtali við blaðið. „Ég er viss um að hér á svæðinu eru til aðilar sem gætu keypt annað eða bæði skipin og þar með haldið kvótanum innan svæðisins. Þessi skip hafa selt hér á mörkuðunum og þó þau hafi stundum fengið slæmt verð er það mönnunum sjálfum að kenna, því annar togaranna hefur oft komið með frekar dapran fisk. Þá er það furðulegt að menn skuli ætla sér að skipta út góð- um skipum í stað skips sem alltaf hafa einhver vandræði verið með,“ sagði Eyþór að lokum. Fimmtudagur 13. október 1988 11 Sjómenn! Vana sjómenn vantar á 15 tonna dragnótabát sem gerður er út frá Suðurnesjum. Uppl. í síma 37558. Meiraprófsnámskeið Námskeið til undirbúnings meira- prófi verður haldið í Keflavík ef næg þátttaka fæst. Væntanlegir þátttak- endur hafi samband við Bifreiðaeftir- litið í Keflavík fyrir 20. þ.m. Bifreiðastjóranámskeiðin Fimleikafélag Keflavíkur Aðalfundur verður haldinn í íþróttavallarhúsinu við Hringbraut, fimmtudaginn 20. október kl. 20:00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin „Ekki björgun frá gjaldþroti" - segir Gunnar Sveinsson „Þetta mál er i athugun enn- þá og engar ákvarðanir hafa verið teknar,“ sagði Gunnar Sveinsson, stjórnarformaður Hraðfrystihúss Keflavíkur, í samtali við blaðið. Síðan bætti hann við að enn væri ekkert vitað hvenær þessi mál yrðu skoðuð nánar og því of fljótt að ræða nánar um málið. Vegna orðróms um að verið væri að bjarga fyrirtækinu frá gjaldþroti með þessum skipt- um sagði Gunnar að svo væri ekki. ÞAU ERU KOMIN OG ... þú heldur ekki vatni yfir verðinu á SCANDÍ vatnsrúmunum! Aak "s 38.800.- 3ja ára ábyrgð á dýnu. Skelltu þér strax á vatnsrúm, þetta tilboð býðst ekki aftur. P.S. Margar vörur á tilboðsverði til mánaðamóta. Bergvik og Aðalvík við bryggju í Njarðvik. Verður skipt á þessum skipum fyrir frystiskipið Drangey? Tjarnargötu 2 - Sími 13377 „Skapar atvinnu- missi fjölda fólks“ - segir Guðmundur Finnsson, for- maður Atvinnumálanefndar „Atvinnumálanefnd Kefla- víkur hefur verið boðuð til fundar í dag, m.a. vegna þessa máls,“ sagði Guðmundur Finnsson, formaður atvinnu- málanefndar Keflavíkur, í samtali við blaðið. „Ef frétt þessi reynist rétt, þá er hér um að ræða tilfærslu á kvóta af svæðinu, svæði sem þegar hefur orðið af miklum kvóta og því ekki á bætandi. Sé ég fyrir mér að fiskverk- unarfyrirtæki, sem mörg hver hafa byggt afkomu sína á markaðinum, þar sem togarar Hraðfrystihúss Keflavíkur hafa landað 2000 tonnum á þessu ári, lenda í vandræðum með hráefnisöflun. Fari togarar Hraðfrysti- hússins, þá fer þessi afli burt af svæðinu og skapar atvinnu- missi fjölda fólks,“ sagði Guð- mundur vegna málsins. \>imr< jUUU muR fUttU TVEIM T0GURUM FYRIR EINN? Hvernig skip er Drangey? Umræddur togari, Drang- ey SK, er 460 tonna skip sem að hálfu leyti er frystiskip og að hálfu isfisksskip. Sam- kvæmt upplýsingum blaðs- ins var það mikið álitamál hjá heimamönnum á Sauð- árkróki hvort ráðast skyldi í miklar lagfæringar, sem framkvæmdar voru á því fyrir nokkru. Telja þeir sem mæla því bót að HK kaupi skipið að fyrir 25 milljónir króna megi gera úr því gott frystiskip. Þá eru menn úr hópi ráða- manna Hraðfrystihússins sem telja að verði ekki af þessum skipaskiptum blasi gjaldþrot við um næstu áramót. Ef af því yrði, færu skipin burt og ekkert kæmi í stað- inn. En með þessari ákvörð- un gæti fyrirtækið losað sig úr skuldasúpunni, þar sem Sauðkrækingar munu greiða með skipinu reiðufé. Innan tveggja ára mætti því jafnvel kaupa ný skip og fyrirtækið farið að sigla á réttu róli. i I dag er staðan sú að á tog- urunum tveimur, sem HK hefur yfir að ráða, eru aðeins 3 heimamenn en skipspláss á frystiskipum séu ávallt vin- sæl og því gæti hlutur heima- manna orðið meiri.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.