Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.11.1988, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 10.11.1988, Qupperneq 1
 VÍKUR Landsbókasafn Safnahúsiria Hve 101 Reykjavík 44. tbl. 9. árg. Fimmtudagur 10. nóvember 1988' BYGGÐASTOFNUN: Ætlar stofnunin að leggja Suðurnes niður? Mikil illska hefur hlaupið í marga Suðurnesjamenn í kjöl- far þess gerræðis meirihluta stjórnar Byggðastofnunar á þriðjudag að hunsa tilmæli forsætisráðherra, sem er æðsti yfirmaður stofnunarinnar og þingmanna Reykjaness. í til-1 mælum þingmannanna kemur skýrt fram sú ósk aðstofnunin taki ekki þátt í því að flytja fiskiskip og kvóta þeirra milli landshluta með þeim hætti sem þarna hefur verið gert. Annars staðar í blaðinu birt- ist mynd af bréfi þingmann- anna. Þar birtist einnig bréf stjórnar Eldeyjar h.f. til for- stjóra SIS, þar sem Eldey gerir Sambandinu kauptilboð í hlutafé þess í HK. Þá er rætt um frétt úr Degi, þarsem stað- festing fæst fyrir því að togara- salan er löngu afgreidd, að dómi norðanmanna. En þó svo að þessi umrædda samþykkt Byggðastofnunar hafi verið mikill skellur fyrir Suðurnesjamenn er langt frá því að máli þessu sé lokið, að sögn Jóns Norðfjörðs, stjórn- arformanns Eldeyjar h.f., sem segir að málið verði einungis til að þjappa mönnum betur sam- an. Skuldir Keflavíkurbæjar við sameiginleg fyrirtæki: Fjörutfu milljónir gjaldfallnar Samkvæmt athugun blaðs- ins er skuldastaða Keflavíkur- bæjar við sameiginlega rekin fyrirtæki á Suðurnesjum rúm- ar 40 milljónir miðað við lok þessa mánaðar. Innifalið í þessum tölum eru rafmagns- skuldir hjá Hitaveitu Suður- nesja. I gær fékk Keflavíkurbær rúmar 11 milljónir króna út úr staðgreiðslukerfi skatta, sem hrökkva skammt upp í skuld þessa. Er svo komið málum að 7 milljónir bætast við um hver mánaðamót varðandi skulda- stöðu þessa, sem hluti Kefla- víkurbæjar í rekstrargjöldum viðkomandi stofnana samtals. Þrátt fyrirað Keflavíkurbær hafí greitt annað slagið nokkr- ar milljónir dugar það skammt í stöðu sem þessari. Því þurfa þeir, sem áður segir, að snara út rúmum 40 milljónum króna til þess eins að gera hreint fyrir sínum dyrum, fyrir næstu mánaðamót. Hlévangur: 6 tilboð bárust Sex tilboð bárust í gerð sökkla að viðbyggingu Hlé- vangs í Keflavík. Það varfyr- irtækið Þ. Guðjónsson hf. sem var með lægsta tilboðið í verkið, 3.847.485 krónur sem er 88,6% af kostnaðar- áætlun. Tilboð Húsaness hljóðaði upp á 3.889.170 kr. sem er 89,5%, Jón og Gunn- ar sf. 3.989.469 sem er 91,8%, Trésmiðjan Gosi sf. 4.170.874 kr. sem er 96%, Húsagerðin hf. 4.365.000 kr. sem er 100,5% af áætlun og Hjalti Guðmundsson 4.433.690 kr. sem er 102% af kostnaðaráætlun, sem hljóð- aði upp á 4.344.800 krónur. Engin afstaða hefur verið tekin til tilboðanna en fund- ir eru í byggingarnefnd og stjórn um tilboðin. Það var ekki verið að stofna nasistaflokk í Garðinum, heldur er hakakross- fánanuni flaggað í hvert skipti sem 11imnariki Hitlers er sýnt í Garðinum. - 11 a. litli! Ljósm.: hbb. Himnarfki Hitlers í Garði Þriðja sýning á Himnaríki Hitlers eða Otti og eymd Þriðja ríkisins verður i Sam- komuhúsinu í Garði kl. 21 í kvöld. Miðnætursýning verður á verkinu annað kvöld, föstudag, kl. 23:30 og á sunnudag kl. 21. Aðsókn á fyrstu sýning- arnar hefurekki veriðeins og best verður á kosið en félagar í Litla leikfélaginu vonast til þess að sjá sem flesta á sýn- ingunum um helgina og í kvöld. Miðapantanir eru i síma 27133 og er byrjað að taka á móti pöntunum þrem tímum fyrir sýningu. Njarðvík: Tekinn á ofsa- raða Lögreglan i Keflavík stöðv- aði í síðustu viku ökumann sem ók helst til of greitt innan- bæjar í Njarðvík. Var kauði mældur á 100 km hraða af lög- reglunni. Var ökumaðurinn sviptur ökuleyfi en einnig hafði áður sést til hans, þar sem hann ók glæfralega. Vogar: Lést af völdum höfuð- meiðsla Sextíu og fjögurra ára gam- all maður úr Vogum lést á laugardag á sjúkrahúsi i Reykjavík af völdum höfuð- meiðsla. Hafði maðurinn misst meðvitund urn miðja síðustu viku en skömmu áður hafði hann sagt fólki að ráðist hafi verið á sig á heimili sínu og hann barinn. Við lögreglurannsókn hefur ekkert það komið fram er stað- festir að hér hafi venð um árás að ræða. Að sögn Oskars Þór- mundssonar, rannsóknarlög- reglumanns í Keflavík, hallast menn helst að því að maðurinn hafi látist af völdum slyss er hann hafi orðið fyrir heima hjá sér. Annað er þó ekki útilokað en beðið er eftir skýrslum af krufningu. Hefur fjöldi manns verið yfirheyrður vegna ntáls þessa. Hinn látni vareinbúi í Vogum.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.