Víkurfréttir - 10.11.1988, Side 5
MÍKUK
juiUt
Fimmtudagur 10. nóvember 1988 5
Veislutilboð
Kaupfélagsbruninn:
Óvíst um endurbyggingu
Enn hefur ekki verið tekin
ákvörðun um þ'að hvort versl-
unarhúsnæði Kaupfélags Suð-
urnesja að Hafnargötu 30, sem
brann um síðustu helgi, verður
endurbyggt. Sagði Guðjón
Stefánsson, kaupfélagsstjóri,
að enn væri beðið eftir trygg-
ingarmati hússins svo hægt
verði að taka ákvörðun um
framhaldið.
Liggur ljóst fyrir að þó allar
vörur og innbú sé meira og
minna skemmt, er ekki nema
lítill hluti hússins sjálfs ónýtur.
En hvað sem þessari ákvörðun
líður, hefur verið ákveðið að
selja fatalager verslunarinnar
á brunaútsölu á næstunni.
Að sögn lögreglunnar liggur
ekki enn fyrir um eldsupptök,
þó menn hallist mest að því að
um íkveikju hafi veriðað ræða,
annað hvort sem skemmdar-
verk eða af gáleysi. En ljóst er
talið að brotist hafi verið inn í
húsið skömmu áður en eldsins
varð vart.
Þá var einnig brotist inn í
brunarústirnar eftir að
slökkviliðið hætti gæslu þar
um kl. 20 á laugardagskvöld.
Voru þar að verki strákar er
ætluðu að ná sér í sælgæti í
brunarústunum.
Sem fyrr segir er lítill hluti
hússins brunninn, þó annað sé
skemmt af reyk, vatni og sóti.
Er hér talið að þakka megi
fyrst og fremst skjótum við-
brögðum slökkviliðs BS sem
var allt kallað út. Þá er vitað
um einhverjar skemmdir í
nærliggjandi húsum sökum
reyks, s.s. í Efnalauginni
Kvikk.
Eldur í Skagaröstinni:
„Strákarnir voru snöggir
Er Skagaröst KE 70 var á
leið með síldarfarm til Grinda-
víkur á fimmtudag kom upp
eldur í skorsteinshúsi bátsins.
Að sögn Guðmundar Axels-
sonar, útgerðarmanns skips-
ins, varð „tjónið mun minna
en á horfðist og er það fyrst og
fremst því að þakka hvað
strákarnir um borð voru fljót-
ir að slökkva eldinn með duft-
tækjum".
Var eldurinn aðallega í ein-
Bátsstrand við
Grindavík
Grindavíkurbáturinn Reyn-
ir GK 47 strandaði við innsigl-
inguna til Grindavíkur s.l.
föstudagskvöld. Astæðan var
sú að er báturinn var að kom-
ast í snúninginn svonefnda
drapst á vél hans með þeim af-
leiðingum að bátinn tók upp í
fjöru.
Tíu tonna plastdekkbátur,
Funi GK, kom þegarástaðinn
og reyndi án árangurs að toga
bátinn af strandstað. Kom þá
hafnsögubátur Grindvíkinga,
Villi, á staðinn og eftir að hann
hafði togað í um stundarfjórð-
ung losnaði hinn strandaði
bátur. Er hann var kominn í
innsiglinguna fór vel hans í
gang og var bátnum því siglt
fyrir eigin vélarafli að bryggju.
Er talið að báturinn hafi slopp-
ið að mestu við skemmdir.
Reynir GK 47 er 70 tonna
eikarbátur og um borð í hon-
um var fimm manna áhöfn er
strandið varð.
angrun á millidekki út frá vél-
aristinni. Af þessum sökum
stöðvaðist skipið fram á laug-
ardag meðan allt var þrifið
hátt og lágt, skipt um einangr-
un og lögnum breytt. Auk þess
sem gert var við þil er hafði
sviðnað.
um helgina
Draumaterta 420 kr. - Peruterta 385 kr.
Marengsterta 385 kr. - Rjómahringur 370 kr.
og margt fleira....
OPIÐ:
Virka daga 8.30-18.00
Laugardaga.. 10.00-16.00
Sunnudaga 13.00-16.00
■Æ
Hafnargötu 31 - Sími 11695
Starfsfólk Stokkavarar
Þeim, sem störfuðu hjá Stokkavör
h.f. eftir 1. maí 1988, er bent á að
snúa sér til skrifstofu verkalýðsfélag-
anna með síðasta launaseðil, vegna
innheimtu orlofsfjár, eigi síðar en
næsta miðvikudag.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis.
V erkakvennafélag
Keflavíkur og Njarðvíkur.
Þúfærð
ekki
édýrari
bleiur!
3-5 kg. 15 stk. 158 kr.
5-11 kg. 20 stk. 228 kr.
10-18 kg. 20 stk. 240 kr.
15-25 kg. 10 stk. 158 kr.
SWMIKm