Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.03.1989, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 09.03.1989, Blaðsíða 9
míkuk \jUttU Fimmtudagur 9. mars 1989 Hársnyrting fyrir dömur og herra Hárgreiðslustofan £Uacnl Vatnsnestorgi Tímapantanir í síma 14848 Sandgerði Kráarstemning í Vitanum Fékk vínveitingaleyfi kl. rúmlega þrjú á B-daginn OPIÐ ALLA DAGA kl. 11-23.30 Pantið tíma eða komið Stel'án Sií>urðsson, veitingamaður í Vitanum, Sand!>erði, hel'ur nú l'engið vínveitingaleyli því er bjór- inn l'arinn að renna úr krönunum hjá honum. Miklar breytingar halá verið f>erðar á staðnuni <>n mælast þær vel fyrir hjá þeim sem séð hafa. Ljósm.: hhh. Nú er bjórinn farinn að streyma úr krönunum hjá Stefáni Sigurðssyni á Vitan- um í Sandgerði, eftirað hafa verið synjað um vínveitinga- leyfi í nokkur ár. Það var rúmlega þrjú á sjálfan bjórdaginn sem vín- veitingaleyfið barst Stefáni og þá var strax farið í það að versla áfengið og bjórinn, sem jú líka telst til áfengra drykkja. „Ég reiknaði ekkert frek- ar með því að ég fengi vín- veitingaleyfið og raunar byrjaði ég ekki á neinum framkvæmdum hér á veit- ingastaðnum fyrr en hrepps- nefndin var búin að gefa grænt ljós og umsóknin komin í dóms- og kirkju- málaráðuneytið," sagði Stef- án í samtali við blaðið. -Breytir vínveitingaleyfið miklu fyrir staðinn? „Það verða miklar breyt- ingar hér um helgar, því þá mun ég hafa opið til03.00 el't- ir miðnætti. Helgarnar hjá mér hafa verið alveg stein- dauðar, en hér er rekið mötu- neyti alla virka daga fyrir fyrirtækin í kring.“ -Þú hefur látið fram- kvæma miklar breytingar hér fyrir komu bjórsins og staðurinn er hinn glæsileg- asti. Er þetta ekki kostnaðar- samt? „Ég er búinn að leggja í töluverðan kostnað vegna þessara framkvæmda, enda staðurinn stórbreyttur. Hér hefur verið skipt um á öllum gólfum, nýr bar settur upp, sem er hinn glæsilegasti, allt nýtt í eldhúsinu og ný gluggatjöld. Þetta er í raun- inni eina alvöru kráin á Suð- urnesjum,“ sagði Stefán Sig- urðsson, veitingamaður í Sandgerði, galvaskur að lokum. Karvels- dagur á sunnudag Karvelsdagurinn er fyrir- hugaður 12. marsí Safnaðar- heimili Innri-Njarðvíkur- kirkju og hefst kl. 15:30. Að kynningunni standa Stúkan Vík í Keflavík og bæjarstjórn Njarðvíkur. Lesið verður úr prentuð- um og óprentuðum ritum Karvels og um Karvel sem rithöfund, sveitarstjórnar- mann og útgerðarmann fjalla eftirtaldir: Jón Böðv- arsson, Bjarni Einarsson og Margeir Jónsson. Fulltrúi Njarðvíkurbæjar flytur ávarp en samkomunni stýrir Hilmar Jónsson. Kaffiveitingar í boði bæjar- stjórnar Njarðvíkur. Glæný brauð og kökur alla daga Alltaf eitthvað nýtt og spennandi Opið alla daga 9-18 Um helgar 10-16 Hringbraut 92 Keflavík Sími 92-14755 Sértilboð og stóraukin málningarþjónusta BETT og BECKERS málningarvörur Sérhæfum okkur í að sprautuhrauna Litaval Baldursgötu 14 - Sími 14737

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.