Víkurfréttir - 09.03.1989, Blaðsíða 20
\HKUR
ýutUí
Fimmtudagur 9. mcirs 19X9
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 15 - Símar 14717, 15717.
Tvær í
öruggum vexti.
Sparisjóðurinn
- fyrir þig og þína
W*5.T:
Kerra
veldur
árekstri
í Grinda-
vík
Kerra með tveimur full-
fermdum fiskikörum olli
árekstri á Ránargötu í
Grindavík á þriðjudag í síð-
ustu viku. Atvikaðist óhapp-
ið á þann hátt að kerran losn-
aði aftan úr bíl og rann aftur
á bak niður götuna og á ann-
an bíl sem þar kom akandi.
Vantaði á kerruna allan
þann öryggisbúnað, sem
skylt er að vera nteð, s.s. ör-
yggiskeðju og þar að auki var
kerran ekki fær um að flytja
svo stóran fiskfarm.
Skemmdist bíllinn, sem
kerran rann á, nokkuð en
hlaupa varð á eftir eiganda
tjónvaldsins, þar sem hann
varð ekki var við það þegar
kerran losnaði.
Þá varð einnig þriggja bíla
árekstur á gatnamótum
Gerðavalla og Víkurbrautar
kl. 17.20 þarsíðusta mánu-
dag. Engin slys urðu á fólki
en bílarnir skemmdust
nokkuð.
Tveir ölvaðir ökumenn
voru teknir af Grindavíkur-
lögreglunni um síðustu helgi,
báðir vegna bjórdrykkju.
sést Ingúlt'ur (lk-125 \iú l>r>ggju
I.jósm.: hbh.
Ingólíur GK-125 fékk á sig brot:
Komst til Helguvíkur
á elleftu stundu
Ingólfur GK-125, ellefu
tonna bátur, skráður í
Grindavík, fékk á sig brot-
sjó er hann var staddur út af
Leirunni í Gerðahreppi, á
leið út frá Keflavik á mánu-
dagsmorgun.
Að sögn eiganda bátsins
og skipstjóra, Ola Þórs Val-
geirssonar, þá var hið besta .
veður þegar Ingólfur GK
hélt á sjóinn á mánudags-
morgun en þegar báturinn
var staddur út af Leirunni
smá versnaði veðrið og allt í
einu skall brot á bátnum með
þeim aflciðingum að hann
rifnaði fyrir neðan sjólínu að
framanverðu.
Eftir að brotið hafði riðið á
bátinn seig hann mjög að
framan og fór t.a.m. borð í
lúkar bátsins á kaf í sjó. Var
þegar snúið við og náði bát-
urinn inn til Helguvíkur á
elleftu stundu, þar sem dælt
var úr bátnum og dælur sett-
ar um borð og dælt stöðugt
meðan bátnum var siglt til
Keflavíkurhafnar, en notað-
ar voru dælur frá Bruna-
vörnum Suðurnesja og Hita-
veitu Suðurnesja.
Er talið víst að ef báturinn
hefði verið kominn lengra út,
þá liefði hann ekki náð til
hafnar í Helcuvík. I áhöfn
Ingólfs GK-125 voru þrir
menn og sakaði þá ekki. Bát-
urinn var tekinn upp í Kefla-
víkurslipp, þar sem gert
verður við skemmdirnar á
skrokk.
Tollverðir úr Keflavík taka á móti togaranum er hann kom til
Njarðvíkur á fimmtudag. Ljósm.: epj.
Njarðvík:
Kjötsmygl í togara
Patreksfjarðartogarinn
Sigurey BA 25 hafði viðdvöl í
Njarðvíkurhöfn á fimmtu-
dag til tollafgreiðslu er skip-
ið kom úr söluferð á erlend-
an markað. Fóru sex tollarar
um borð í togarann, þar af
tveir heimatollarar.
Að sögn Zakaríasar Hjart-
arsonar, yfirtollvarðar í
Keflavík, fannst við leit í
skipinu svolítið magn af
kjöti og eitthvað af bjór.
Hafa viðkomandi skipverjar
játað á sig smygltilraun
þessa.
Astæðan fyrir því að tog-
arinn kom hingað í tollaf-
greiðslu er sú að á Patreks-
firði er ekki tollhöfn og því
hefur lögreglan staðarins af-
greitt mál sem þessi með að-
stoð tollvarða er komið hafa
úr Reykjavík. En vegna
ófærðar var heldur gripið til
þess ráðs að láta togarann
hafa viðkomu hér syðra.
r~
TRÉ-X
HOBBY EFNI í sumarbústaðinn.
TRÉ-X BYGGINGAVÖRUR
Iðavöllum 7 - Keflavik - Simi 14700
Mokveiði
Það er óhætt að segja að
mokveiði hafi verið hjá
Grindavíkurbátum í síðustu
viku, þó svo veiðin hafi verið
mest í ufsanum, en margir
bátar fengu einnig mjög
vænan þorsk. Vikuaflinn var
samtals 1630 tonn, sem er
það langbesta sem fengist
hefur í margar vikur.
Geirfugl var með mestan
afla netabáta, 123,2 tonn í
þremur róðrum, Vörður með
122,3 tonn í fjórum, Gaukur
með 116,2 tonn í fjórum og
Höfrungur II með 115,3
tonn í fjórum. Mesturafli hjá
þessum bátum var ufsi en
Hafberg landaði 108,7 tonn-
um, að mestum hluta góðum
þorski.
Af aflahæstu línubátunum
var Sigurjón Arnlaugsson
með tæp 40 tonn, Freyja með
36 tonn og Sighvatur 34,4
tonn. Þá landaði snurvoðar-
báturinn Hvalsnes 16,7
tonnum í Grindavík í síðustu
viku.
íkveikja
á þriðju
hæð
í hádeginu síðasta fimmt-
udag var slökkviliði Bruna-
varna Suðurnesja tilkynnt
um lausan eld á 3. hæð Bú-
stoðarhússins að Tjarnar-
götu 2 í Keflavík. Erslökkvi-
liðið kom á vettvang var
mikill reykur í ganginum á
hæðinni en eldur, sem verið
hafði í snyrtiherbergi, var
kulnaður.
A hæð þessari eru ýmsar
skrifstofur svo og tann-
læknastofur. Ekki er talið að
reykurinn hafi komist þar
inn en fullvíst er talið að
kveikt hafi verið í handklæð-
um og salernispappír með
fyrrgreindum afleiðingum.
Ilvcnær fær inaöur að laka
þátt í „Herra Suðurnes"?