Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.03.1989, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 09.03.1989, Blaðsíða 6
 6 Fimmtudagur 9. mars 1989 Fyrir fermingarnar ■ Kransatertur ■ ■ Rjómatertur ■ ■ Marsipantertur ■ og iiein veislutertur. Halnargdlu 31 - Simi 11695 Orvals gæði og þjónusta. Fjölmenni var í bjórnum strax eftir opnun. Ljósm.: hbb. 100 þús. dósir á 3 dögum Áætlað er að um 100.000 tijórdósir hafi selst í útsölu A.T.V.R. fyrstu þrjá „bjór- dagana“ í síðustu viku. Á annað hundrað manns voru mættir í bjórinnkaupin strax við opnun útsölunnar á mið- vikudag í vikunni sem leið. Versluðu margir góða skammta af bjórnum, enda munu haf'a verið haldnar bjór- og pizzuveislur í nokkrum fyrirtækjum hér sunnan Straums. Meðfylgj- andi myndir voru teknar við opnunina í Hólmgarði og sýna þær þann mikla mann- fjölda sem þar var mættur til þess að versla þennan vin- sæla drykk. Mikið umferðaröngþveiti var á bílastæðunum við rikið. Aldósasöfnun til Qármögnun- ar á vernduð- um vinnustað Hverjum hefði dottið það í hug að hægt væri að búa til pening með söfnun á áldós- um? Þeir félagar Ólafur Eiríks- son hjá Atvinnuleit fatlaðra og Hálfdán Ingi, sem er öryrki, hafa verið að vinna í að koma upp nokkurs konar flokkun- ar- og móttökustöð fyrir öl-, gos- og aðrar drykkjarumbúð- ir úr þessum efnum, hér á Suð- urnesjum. Fengu þeir í lið með sér Kristinn Hilmarsson hjá Þroskahjálp á Suðurnesjum en hann mun sjá um fjármál söfn- unarfyrirtækisins. Þeir félagar dreifðu síðan körfum undir dósirnar í lok síðustu viku um mestöll Suðurnes og á mánu- dag höfðu safnast á milli 12- 1300 áldósir. Er hér um tveggja mánaða tilraun að ræða en ætlunin er að reyna að skapa fötluðum at- vinnu. Skilagjald verður greitt til Þroskahjálpar fyrir hverja dós og mun hagnaðurinn af söfnuninni renna til Þroska- hjálpar, en nú er unnið að því að koma upp vernduðum vinnustað fyrir fatlaða en gott húsnæði vantar fyrir slíka starfsemi, þarsem fatlaðirgeta flokkað og pakkað ýmsum hlutum. Félagarnir og bjartsýnismennirnir Kristinn Hilmarsson, Ólafur Eiríksson og Hálfdán Ingi, í „dósaflokkunarstöðinni“ í Litlu milljón. Ljósm.: hbb. TIL SOLU Tilboð óskast í húseignina Vík- urbraut 46, Grindavík. Húsið selst til brottflutnings. Nánari upplýsingar á skrifstofu félags- ins í síma 15400.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.