Víkurfréttir - 09.03.1989, Blaðsíða 13
víkuh
jUUU
Fimmtudagur 9. mars 1989 13
Kvenfélagið Njarðvík:
Umhverfis-
mál til
umræðu
Aðalfundur Kvenfélags-
ins Njarðvíkur var haldinn
13. febrúarsl. Aukaðalfund-
arstarfa voru á fundinum
rædd umhverfismál í byggð-
arlaginu. Jón Olsen garð-
yrkjufræðingur var á fundin-
um og ræddi við fundarkon-
ur um fyrirhugaðar fram-
kvæmdir umhverfismála.
Líflegar umræður urðu um
málið.
Stjórn félagsins er óbreytt
frá fyrra ári.
Þorrablót félagsins var
haldið 21. janúar og var
mjög fjölsótt.
Næsti fundur verður í
húsakynnum félagsins
mánudaginn 13. mars kl. 21.
Anna Mýrdal, kvensjúk-
dóma- og fæðingalæknir,
verður gestur fundarins og
ætlar hún að flytja erindi um
breytingaskeið kvenna.
Carl Jóhann Spenccr utan við hús liahá'í við Túngutu í Keflavík.
Ljósm.: hhb.
í heimsókn
hjá Bahá’í
Nú hin síðustu ár hefur
fólk orðið meira vart við
fleiri og ný trúarbrögð og
trúarhópa. Einn er sá hópur
sem Bahá’íar kallast og
snemma síðasta haust
keyptu þeir eigið húsnæði við
Túngötuna í Keflavík. Vík-
urfréttir heimsóttu einn aðal
hvatamann Bahá’í hér á Suð-
urnesjum, Carl Jóhann
Spencer, og vildu aðeins
kynnast honum og hvernig
gengi að boða trúna hér á
landi.
Carl Jóhann Spencer hef-
ur verið hér á landi í 25 ár en
er upphaflega frá Kanada,
þar sem hann á stóra fjöl-
skyldu. Hann hefur búið í
Reykjavík, á Akureyri og
býr nú ásamt konu sinni og
barni að Túngötu 11 í Kefla-
vík, en það hús er í eigu
Bahá’í samfélagsins í Kefla-
vík. Við báðum Carl Jóhann
að lýsa fyrir okkur Bahá’í
trúnni.
„Bahá’í trúin er sjálfstæð
trúarbrögð, sem byggja á
kenningum Bahá’ú’lláh, sem
álitinn er af Bahá’íum Guð-
legur sendiboði fyrir okkar
tíma. Trúarbrögð hans hafa
á minna en hundrað árum
frá andláti stofnanda síns
breiðst út um gervallan heim
og eru í dag talin næst út-
breiddustu trúarbrögð
heimsins og er þá miðað við
landfræðilega útbreiðslu.
Grundvallarkenning trúar-
innar er Alheimsfriður,
byggður á grundvelli einnar
trúar á Einn Guð.“
-Hvernig gengur að boða
trúna hér á landi?
„Þegar ég kom hingað
fyrst voru sjö Bahá’íar hér á
landi. Nú telja Bahá’íar hátt
á fjórða hundrað manns. Ég
vil taka það fram að ég er
ekki trúboði og geng ekki í
hús eða predika yfirfólki. Ég
kom hingað á minn eigin
kostnað í þeim tilgangi að
aðstoða við útbreiðslu trúar-
innar, með því að svara þeim
er kunna að spyrja um hana
og veita fólki tækifæri á því
að kynna sér málin,“ sagði
Carl Jóhann að endingu.
Grindavík:
Borvél og handverkfærum stolið
Brotist var inn í nýbygg-
ingu Kaupfélags Suðurnesja
í Grindavík á mánudag í síð-
ustu viku.
Var þaðan stolið hleðslu-
borvél og handverkfærum
frá verktaka sem vinnur við
bygginguna.
VIÐ ERUM
í TAKT VIÐ
TÍMANN....
Prentum á tölvupappír.
Öll almenn prentþjónusta.
Reynið viðskiptin.
GRÁGÁS HF.
Vallargötu 14 - 230 Keflavik /q /
Simar 11760, 14760 /U/
café STOP
HAFNARGÖTU 27
Þarftu að losna við...?
- sentimetra - appelsínuhúð - vöðvabólgu
Nú er ekki seinna vænna
að koma sér í form fyrir
vorið. Þeir sem eiga ónot-
aða tíma verða að nota þá
fyrir næstu mánaðamót.
Ath. 380 kr. tíminn.
Mánaðarkort kr. 3400.
Þú ræður þínum tíma.
Hámark 3svar í viku.
i
Æfingastofa
BEGGU
Hafnargötu 25
Keflavík
Sími 15433