Víkurfréttir - 09.03.1989, Blaðsíða 1
Elfa Hvund
F'eguvðardvottning
Suðurnesja 1989
ELF<4 HRUND GUTTORMSD Ó TTIR, 17 ára Njarðvíking-
ur, var kjörin,,Fegurðardrottning Suðurnesja 1989“ í Glaum-
hergi ú lauganlagsk völdið. Ljósmyndafyrirsæta Suðurnesja
199 var kjörin 18 ára Garðdantu, Linda Ólafsdóttir, ogsíðan
kusu stúlkiirnar sjálfar vinsælustu stúlkuna ár eigin hópi og
hreptti Guðmunda Sigurðardóttir, 18 ára Keflavíkurmær,
þann titil. A annarri myndinni fagnur Elfa Hrund er úrslitin
voru kynnt, eit á hinni er luín ásamt Lindu og Guðmundu.
Ljósm.: Vikurfrcitir/Olaliir CJunnarsson
Skúmur GK
kominn á
söluskrá
Fiskanes hf. í Grindavík
hefur ákveðið að selja Skúm
GK 22 frá fyrirtækinu, að
sögn framkvæmdastjóra
þess, Dagbjarts Einarssonar.
Sagði hann ástæðuna fyrir
sölunni vera þá að útgerð
skipsins hefði ekki gengið
nógu vel og skipið væri því til
sölu, ef sú upphæð fengist
fyrir skipið sem eigendur
væru með í huga. Einn aðili
hefur spurst fyrir um skipið(
en ekki fékkst uppgefið hver
það er.
Skúmur GK 22erbyggður
í Ramvik í Svíþjóð 1987 og
mælist 242 tonn.
Stofnkostnaður vatnsveitu:
Varnarliðið krafið um 300 millj.
Samkvæmt könnun ný-
stofnaðrar Vatnsveitu Suð-
urnesja er heildarkostnaður
við vatnsöflunina og að
koma vatninu til byggða um
302 milljónir króna. Kom
þetta fram á borgarafundin-
um í Njarðvík á dögunum.
Hér er um frumniðurstöð-
ur og kostnaðaráætlun að
ræða til að gera virkjunina
fyrir vatnstökuna og lögn
vatnspípunnar með þremur
endastöðvum, þ.e. eina við
miðlunartank varnarliðsins
og síðan fyrir Njarðvík og
Keflavík, jafnframt því sem
gengið er þannig frá að
Garður og Sandgerði geti
komist í stofnæð þessa.
Þó varnarliðið hafi ekki
enn samþykkt greiðslu á
þessu, telja fróðir menn um
mál þetta, s.s. Oddur Einars-
son, bæjarstjóri, og Magnús
Guðjónsson, heilbrigðisfull-
trúi, að með því að skipuð
hefur verið viðræðunefnd,
felist þar viss samþykkt af
hálfu varnarliðsins um bóta-
skyldu. Enda eru nú yfir-
gnæfandi líkur fyrir því að
mengun vatnsbólanna megi
rekja til varnarliðsins.
Hafa íslensk stjórnvöld
hafnað niðurstöðum varnar-
liðsins úr þeim könnunum
sem það gerði fyrir stuttu,
enda telja engir íslenskir vís-
indamenn að sú niðurstaða,
sem þar fékkst, standist.
I viðræðunefndinni eru
skrifstofustjóri varnarmála-
deildar, einn þjóðræktar-
fræðingur og einn heima-
maður, Hannes Einarsson.
l'órhallur Sleinarsson
Björgun í
Sandgerð-
ishöfn
Bílstjóri á olíubifreið frá
OLIS, Þórhallur Steinars-
son, vann frækilegt björgun-
arafrek, er maður féll á milli
skips og bryggju í Sandgerði
á þriðjudagskvöld í síðustu
viku.
Við fengum Þórhall til
þess að lýsa björguninni fyrir
okkur: ,,Eg var að afgreiða
olíu um borð í Eini GK 475
og hafði tekið eftir manni
sem kom gangandi eftir
bryggjunni, en veitti honum
ekkert frekari athygli. Það
var síðan ekki fyrr en ég stóð
á bryggjubrúninni að ég fann
eitthvað koma við hliðina á
mér og við það steyptist mað-
urinn í sjóinn,“ sagði Þór-
hallur
-Hver voru fyrstu
viðbrögð?
,,Það kom nokkurt fá á
mann en ég fór strax niður
dekkin utan á bryggjunni og
setti annan fótinn í stiga á
skipinu og náði þannigstrax
taki í úlpu mannsins.
Þegar ég var búinn að ná
taki á manninum í sjónum,
þá kallaði ég á hjálp og vél-
stjórinn kom og aðstoðaði
mig við að ná manninum
upp. Síðan kom útgerðar-
stjórinn hjá Rafni hf. og
hann sá um að koma mann-
inum í hita.“
-Var maðurinn lengi í
sjónum?
„Það er voðalega erfitt að
gera sérgrein fyrir tímanum í
svona björgunaraðgerðum.
Maðurinn, sem er á miðjum
aldri, var blautur og ég hefði
ekki ráðið við að koma hon-
um sjálfur upp á bryggjuna.
Þá var mjög kalt þarna en
frostið mældist sjö gráður,"
sagði Þórhallur Steinarsson,
bílstjóri hjá OLÍS, að end-
ingu.
Blaðið hafði einnig sam-
band við lögregluna i Kefla-
vík og tjáði hún okkur að
maðurinn hefði verið fluttur
á sjúkrahúsið í Keflavík til
öryggis, þar sem hann fékk
nauðsynlega aðhlynningu.