Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.05.1989, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 05.05.1989, Blaðsíða 1
mun Landsbóka Safnahúsi Hverfisgö 101 Reykj Mótmæli bæjarstjórnar Keflavíkur: ¥ lat fna rf i rðui r, ne i tal kl k! Þessa dagana er til lokaaf- greiðslu á Alþingi frumvarp til laga um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði. Af því tilefni bar Magnús Har- aldsson, bæjarfulltrúi í Kefla- vík, upp eftirfarandi tillögu á fundi bæjarstjórnarinnar á þriðjudag: „Fyrir Alþingi liggur frum- varp til laga um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði. Frumvarpið felur m.a. í sér þá ákvörðun skv. 7. tölu- lið 2. gr. að varnarþing Kefla- víkur verði lagt undir Héraðs- dóm Reykjaness, sem aðsetur skal hafa í Hafnarfirði. Bæjarstjórn Keflavíkur tel- ur slík áform vega alvarlega að sjálfstæði sveitarfélagsins og leggur áherslu á að slík skipan dómsmála muni torvelda íbú- um bæjarins að neyta réttar síns. Slík áform brjóta auk þess mjög alvarlega í bága við hug- myndir sem lengi hafa verið uppi um samstarf og samein- ingu sveitarfélaganna á Suður- nesjum. Bæjarstjórn Keflavíkur mótmælir því harðlega slíkum áformum og krefst þess að frá þeim verði fallið og hér verði sjálfstæður héraðsdómstóll fyrir Suðurnes eins og verið hefur.“ Eftir allmiklar umræður um málið var tillagan samþykkt með atkvæðum sjö bæjarfull- trúa, en Hannes Einarsson og Vilhjálmur Ketilsson sátu hjá. Hefur tillaga þessi þegar verið send Alþingi, enda eins og fram kom í málflutningi, um mikið hagsmunamál fyrir Suð- urnesjamenn, því ef frumvarp- ið verður samþykkt óbreytt munum við þurfa að sækja dómþing til Hafnarfjarðar og það er flestum okkar mjög óljúft. 35.5% innláns- aukning Aðalfundur Sparisjóðsins í Keflavík var haldinn á föstudag. Komu þar fram ýmsar upplýsingar um rekst- ur Sparisjóðsins, eins og venja er á slíkum fundum. A síðu 16 i blaðinu í dag er fundinum gerð betri skil. Um þessar mundir eiga sparisjóðsstjórarnir, Tómas Tómasson og Páll Jónsson, 15 ára starfsafmæli. í stjórn Sparisjóðsins í dag eru Jón H. Jónsson, Jón Eysteins- son og Sæmundur Þórðar- son. i_______________ Umferðarmál: Ekkert fjármagn Umferðarnefnd Keílavík- ur harmar að ekki skuli vera veitt fjármagn til nýfram- kvæmdá við umferðarmann- virki í sumar. Það fjármagn sem veitt hefur verið til um- ferðarmala er aðeins til ár- vissra framkvæmda og við- halds, en ekkert fé er áætlað tíl gangbrauta- og hraðaað- vörunarljósa, sem þegar hafa verið pöntuð. ' tiiWtLM, WRKALYObl SJÓMANNAF GERÐAHRÍ SUÐURNESJA Þeir voru heiðraðir, f.v. Bjarni Sigurðsson og Nicolai Bjarnason, 1. MAf: Tveir aldnir baráttumenn heiðraðir Tveir aldnir baráttumenn voru heiðraðir á hátíðar- og baráttudegi verkalýðsins 1. maí í Stapa að þessu sinni. Það voru þeir Bjarni Sigurðs- son, Hausthúsum í Garði, og Nicolai Bjarnason, Tungu- vegi 8, Njarðvík. Þá var Osk- ari Aðalsteini rithöfundi sýnd sérstök virðing, en hann varð einmitt 70 ára þennan sama dag. Mikil fjölmenni sótti vel heppnaðan fund í félags- heimilinu Stapa í Njarðvík. Nánar er greint frá dagskrá fundarins á blaðsíðu 2 í blaðinu í dag. Verðkönnun VSFK: Lamba- kjötið ödýrast í Fíabúð - dýrast í Hagkaup og í Horninu Verkalýðs- og sjómanna- félag Keflavíkur og nágrenn- is lét framkvæma verðkönn- un á fimmtudag í síðustu viku í helstu verslunum í Keflavík og Njarðvík. Er fólki bent á að könnunin er birt í heild sinni á síðu 12 í blaðinu í dag. Nokkuð mikill mismunur er mili einstakra vöruflokka í verslunum þessum. Ef kjöt- ið er skoðað eitt og sér kem- ur það athyglisverða í ljós að það er dýrast í Hagkaup og Horninu en ódýrast í Fía- búð. Kílóið af lambaiærum kostar 569 kr. í Fíabúð en 687 á Horninu og 697 í Hag- kaup. Lambahryggskílóið kostar 545 kr. í Fíabúð, 635 í Hagkaup og'638 á Horninu. Njarðvík: 1 \ Bæjarritarinn vann uppsagnarmálið Kveðinn hefur verið upp dómur í ímáli Sigurðar G. Ol- afssonar, fyrrum bæjarritara i Njarðvík, gegn bæjarsjóði Njarðvíkur. Er Njarðvíkur- bæ gert að greiða stefnanda, Sigurði G. Ölafssyni, kr. 600 þúsund ásamt dráttarvöxt- um og einnig málskostnað, kr. 150 þúsund. Var dómurinn kveðinn upp á þriðjudag í bæjarþingi Keflavíkur og Njarðvíkur. Dómari var Sigurður Hallur Stefánsson, héraðsdómari, og meðdómendur Finnbogi H. Alexandersson og Gunn- ar Aðalsteinsson, héraðs- dómarar. Miðast (jráttarvextirnir við 22. september 1988 og er því talið að Njarðvíkurbær verði að greiða hátt á aðra milljón króna vegna máls þessa. Sigurði var sagt upp störfum sem bæjarritari Njarðvíkurbæjar með óiög- legurn hætti, fyrirvaralaust, eins og segir í dómnum.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.