Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.05.1989, Side 10

Víkurfréttir - 05.05.1989, Side 10
10 Föstudagur 5. maí 1989 Föstudagur 5. maí 1989 11 Sérleyfísnefnd, bæjarfulltrúar og starfsmenn SBK. vandlega umhugsun ákvað ég að bjóða SBK þetta og árang- urinn er öllum ljós.“ -Nú er farið að rœða um út- boð á skólaakstrinum. Er það ekki tómt mál að tala um hér syðra. Er nokkuð annað fyrir- tæki en SBK sem getur boðið í þessa þjónustu? Það hlýtur að vera nánast útilokað fyrir ein- hvern aðila úr Reykjavík að vera kannski með 8 bila á ákveðnum tímapunkti, enga á öðrum og síðan bíl og bíl fram eftir degi. Jón: „Ég held nú að sú skoð- un sé að koma fram meðal sveitarstjórnamanna hér syðra að þeir setjist niður og frnni góða lausn á þessu máli hér heima. Það yrði hagkvæmast fyrir báða aðila.“ Steindór: „Síðan mætti blanda saman áætlunarferð- um og skólaakstri, þannig að báðir aðilar hafi aukna þjón- ustu út úr öllu saman, jafnvel fyrir minni kostnað.“ Hópferðataxtinn -Er Sér/eyfið samkeppnis- fært í hópferðum? Steindór: „Þetta umtal um að Sérleyfið sé ekki samkeppn- isfært í hópferðum er ekki staðreynd. Því þegar við Jón vorum látnir gera tilboð í eitt og annað hér áður fyrr vorum við mjög jafni. Stundum vor- um við svo hnífjafnir að við- skiptavinirnir köstuðu hlut- kesti milli okkar." Jón: „Við höfum farið eftir taxta og gefið síðan afslátt eftir því hve stórir hópar hér voru á ferðinni." -Teljið þið ykkur þá alveg samkeppnisfæra við hvern sem er? Jón: „Við erum það. Varð- andi tiltekinn aðila sem getið var um í Molum fyrir stuttu er rétt að geta þess að umrædd kona hefur leikið þennan leik oft áður.“ Steindór: „Hún var hvorki fastur viðskiptavinur minn né þeirra. Hefur hún verið í Kópavogi með sín viðskipti, síðan sprakk það samkomulag eitthvað, því þetta fólk er dá- lítið ágengt með verðlagningu og er nú farið að taka bíla ofan af Akranesi. Það sem er þó það merkilegasta er að umræddur bíll er héðan og mjög illa hefur gengið að borga hann. Spari- sjóðurinn í Keflavík fjármagn- aði kaupin en fær ekkert greitt." Jón: „Við fórum nýlega með Tónlistarskólann í Keflavik vestur í Stykkishólm. Á Akra- nesi bættist hópur í bílana hjá okkur þar sem það reyndist eftir mikla athugun vera eins hagkvæmt fyrir þá, eins og að fá bíla frá Akranesi. Var þetta fólk mjög ánægt með þjónustu okkar." Steindór: „Þá virðist fólk hafa misreiknað sig á því að um leið og þeir tóku bílaflot- ann frá mér kom til 14,11% gjaldskrárhækkun vegna taxtahækkunar. Þetta hefur fólk rangtúlkað sem sérstaka hækkun hjá SBK.“ Mikil uppstokkun -Jón, eru fyrirhugaðar breyt- ingar í kjölfar þessara kaupa? „Við erum að vinna að mik- illi uppstokkun og raunar gjörbreytingu á ýmsu í kjölfar þessa. Það er allt annað að hugsa um þetta fyrirtæki í dag en áður. Nú er í fyrsta sinn komin upp sú staða að við get- um tekið bíla úr rekstri oggert við þá eins og þörf krefur. Áður fyrr voru bílarnir það sérbúnir fyrir sitt verkefni að við lentum í vandræðum ef gera þurfti við eitthvað. Nú er ekkert vandamál þó það vanti tvo til þrjá bíla í einu. Þetta er gjörbreyting frá því sem áður var.“ -Munið þið nú, með auknum bílaflota, sækja meira inn á hópferðamarkaðinn? Jón: „Það er einmitt það sem málin byggjast nú á, að vera duglegir að ná í hópferðir. Verður farið í auknum mæli í Reykjavík og tekinn sá hlutur sem Sérleyflð á í Hópferða- miðstöð BSÍ.“ -Verður SBK áfram hluta- skipt, þ.e. gamli hópurinn sér og Steindórshópurinn sér? Ljósm.: hbb Jón: „I upphafí var gert samkomulag um að þessir hópar yrðu reknir sem aðskild; ar einingar til að byrja með. í dag er þessum mönnum öllum blandað saman í eina heild og því enginn mismunur gerður milli frumeininga.“ Steindór: „Þegar mínir fyrr- um starfsmenn komu inn gátu þeir ekki ætlast til að geta rutt vaktakerfum þeim er fyrir voru um koll. Heldur þróaðist þetta í það sem nú er orðið. 1 dag er samkomulagið í hópn- um alveg sérlega gott.“ Jón: „Það er verið að gera Sérleyfísbifreiðir Keflavíkur að góðu fyrirtæki, sem stendur undir sér og verður ekki baggi á bænum, sem það hefur aldrei verið.“ Þá fór bærinn virki- Iega illa með okkur -Fáið þið gömlu höfuðstöðv- arnar aftur? Jón: „Það er versta vanda- málið í dag, aðstöðuleysið. Ef við þurfum að ræða eitthvað sem allir mega ekki heyra, starfsmenn og farþegar, verð- um við að fara út fyrir eða læsa okkur inni í rútu.“ -Atti þessi aðstaða ekki aðeins að vera til bráðabirgða? Jón: „1975 vorum við hvað næst því að fara á hausinn. Þá fyrst fór bærinn virkilega illa með okkur með því að hirða allar þessar eignir af okkur upp í skuldir við Sparisjóðinn á allt of lágu verði að mínu mati. Þá var þessi kofi byggð- ur og þeir sögðu að við mætt- um hafa hann og reka fyrir- tækið í honum. Síðan þá hefur á hverjum einasta sérleyfísnefndarfundi verið rætt um bætta aðstöðu án þess að neitt hafí gerst í þeim málum.“ Þinglýst mansal -Hvernig verður ykkar sam- starf í framtíðinni? Steindór, verður þú áfram? Steindór: „Því var þinglýst með kaupsamningnum að ég verði þarna til 1. júlí. Ég held að þetta sé eini vinnusamning- Sérleyfisbifreiðir Keflavikur hafa mikið vcrið í umrxðunni að undanförnu. Þá ekki síst eftir að fyrirtækið keypti Steindór Sigurðsson. Já, hér er ekki um prentvillu að rxða, því kaupin á Steindóri hafa verið þinglýst sem slik. Um það atriði er fjall- að nánar hér á eftir í viðtali við þá Jón Stígsson, cftirlitsmann SBK, og Steindór Sigurðsson, nú í eigu SBK. Fyrst gefum við Jóni orðið þar scm hann scgir okkur í nokkrum orðum frá upphafí fyrirtxkisins og fyrstu kaupum þess á öðru fyrirtæki: „Sérleyfisbifreiðir Keflavík- ur hafa verið í eigu Keflavíkur- bæjar og þar áður Keflavíkur- hrepps frá því á árinu 1942. Stofnandi fyrirtækisins var Skúli Hallsson, en hann rak það í 10 ár. Hefur fyrirtækið verið í samfelldum rekstri frá því að það hóf starfsemi sína, en Skúli hóf keyrsluna með hálfkassa bíl. Á starfstíma sínum hefur það þrisvar keypt önnur fyrir- tæki sem fyrir voru í rekstri þessum. í tíð Skúla þ.e. í síðara skiptið sem hann kom nálægt rekstrinum (hann var fram- kvæmdastjóri í nokkur ár, nokkrum árum eftir að hann seldi fyrirtækið), þá var keypt Hafnarútan. En hún hafði haldið uppi áætlunarferðum milli Reykjavíkur og Hafna á hálfkassabíl. Eyrst eftir að hreppurinn keypti fyrirtækið vorum við með tvo pólitíska fram- kvæmdastjóra en það gekk ekki og því kom Skúli aftur.“ -Var eingöngu um að ræða áætlunarferðir milli Keflavíkur og Reykjavíkur á þessum árum? „Keflavík hefur alla tíð ver- ið aðeins viðkomustaður. Áætlunarleiðin er Reykjavík, Vogar, Innri-Njarðvík, Kefla- vík, Garður og Sandgerði, en þar er endastöðin og í mörg ár fórum við út á Stafnes." Fyrri Steindór keyptur -Voruð þið í samkeppni við fyrri Steindór á þessum árum? „Steindór Einarsson er sá aðili sem er upphafsmaður áætlunarferða hér á milli að einhverju marki, þó fleiri hafí að vísu áður komið hér við sögu. Þá var hann kóngurinn á öllu suð-vesturhorninu. Stundum lagði hann vegina sjálfur svo hann gæti hafi fólksflutninga, upp úr 1930. Strax í upphafi varð því mjög hörð samkeppni milli Skúla og Steindórs." -Síðan áttuð þið eftir að kaupa þetta fyrirtæki? „Á árunum frá 1951-52 og fram til 1960 var mikið að gera eða þar til uppbyggingu flug- vallarsvæðisins lauk, en þá datt aksturinn hér á milli mjög niður. Á þessum árum endur- nýjaði SBK bílana eftir þörf- um en skuldaði þó hvergi krónu. Bílaeign almennings jókst og 1968 voru flutning- arnir ekki nægilega miklir fyrir tvo aðila. Mjög lítið var um að vera þetta árið og Steindór féll einnig frá. Upp kom ósam- komulag milli erfingja hans sem leiddi til þess að okkur var boðið fyrirtækið og það keypt. Vorum við þar með orðnir ein- ir á þessu svæði sem buðum þessa þjónustu. En það breyttist og nýir að- ilar komu inn s.s. Steindór Sig- urðsson. Okkar samvinna hef- ur alltaf verið góð og við hjálp- að hvor öðrum ef þannig hefur komið upp á.“ -Þú segir að lægð hafi verið þegar Steindór Einarsson seldi. Hefur það verið algengt i sögu fyrirtækisins að slíkar lægðir myndist? Öldutoppar „Alla tíð hefur þetta gengið í öldum, toppar hafa komið og lægðir. Þegar Skúli seldi var það vegna þess að þá var lægð og hann tapaði 10 þúsund krónum á rekstrinum. Stóð frammi fyrir gömlum og léleg- um bílum, sem hann þurfti að endurnýja, en hafði ekki efni á því og seldi því fyrirtækið á 150 þúsund krónur. Á fyrstu árum hreppsins gekk mjög brösuglega og á öðru ári var haldinn borgara- fundur í Ungó þar sem hart var deilt langt fram á nótt um framtíð SBK. Þá var það utanbæjarmaður sem stuðlaði að því að hreppurinn héldi áfram í rekstrinum. Þetta var Kristinn Guðmundsson úr Sandgerði. Bauðst hann til að gera ákveðna tilraun ásamt starfsfólki og það tókst. Síðan hefur þetta endurtekið sig með toppa og lægðir allt fram til þessa dags. Jón Stígsson (t.v.) og Steindór Sigurðsson. en það sem kemur þaðan höf- um við reynt að halda sem mest 1 en látið almenna mark- aðinn meira í friði. Þar til í fyrrasumar að við keyptum sérstakan bíl til þeirra nota. Er þetta eina svar- ið sem við höfum þegar áætl- unarferðirnar hætta að gefa nóg af sér.“ -Heldur þú að áætlunarþátt- urinn eigi eftir að taka við sér á ný? „Þetta fer eftir efnahags- ástandinu hverju sinni. Okkar Ljósm.: epj. SBK ákveður að snúa 'sér meira að hópferðarekstrinum. Fer inn á önnur mið s.s. skóla- aksturinn á Suðurnesjum. Fór mér þá að hætta að lítast á ástandið. Bílaflotinn minn samanstóð af gömlum bílum og ég treysti mér því ekki út í slaginn um skólaaksturinn. Eftir vandlega umhugsun þar sem m.a. kom upp í huga mér hvort ég ætti að undir- bjóða þetta svo ég ynni á miklu undirverði, eða átti ég að sleppa þessu og standa uppi með mína 10 gömlu bíla. Eftir Á þeim árum sem gróskan var langmest, upp úr 1950, man ég að í einni ferð á sunnu- degi kl. 11:30 vorum við með 18 bíla fulla. Á þessum árum vorum við í samkeppni við Steindór en hann flutti þó aldrei jafn marga og við.“ Síðari Steindór keyptur -Ef við snúum okkur nú nær nútímanum og tölum um þann tíma þegar þið eruð nú nýbúnir að kaupa enn einn Steindórinn. Fyrirtæki sem hefur haft, auk áætlunarferða í Grindavík og Njarðvík, hópferðir á stefnu- skrá sinni. Verða þá ekki þátta- skil í rekstrinum? „Jú, með þessu erum við að svara þeim þrengingum sem eru í rekstrinum og snúa okk- ur meira að hópferðum, en það er þáttur sem við höfum ekki lagt neina áherslu á fram að þessu. Við höfum aðeins tekið það sem að okkur hefur borist, annað ekki, nema það sem borist hefur í gegnum herinn, vísitala í flutningunum er bíla- innflutningurinn.“ -Er það þá fremur velmegun- arástandið en tískan sem rœður því hvort fólk ferðast með rút- um? „Ég held að fólk hugsi ein- göngu um að komast á milli á sem skemmstum tíma og að verða fyrir sem minnstum óþægindum. Erum við því ekki samkeppnisfærir við einkabílinn. Kæmi hins vegar upp aukinn áróður gegn mengun frá bílaumferðinni eða öðrum erfíðleikum einka- bílunum samfara, gæti þetta breyst." Skólaaksturinn Hér blandar Steindór sér í umræðurnar. „Það sem gerist líka er að fækkunin á áætlun- arleiðinni verður til þess að 18 bílar f einni áætl- unarferð - Rætt við Jón Stígsson og Steindór Sigurðsson hjá Sérleyfisbifreiðum Keflavíkur urinn sem er þinglýstur." Jón: „Ég hef nú sagt að ég viti ekki hvenær Keflavíkur- bær fái kæru frá Mannrétt- indanefnd Sameinuðu þjóð- anna fyrir mansal og mann- kaup. Okkar samstarf er mjög gott og ég held að það standi á Steindóri að gefa svar um áframhaldið." Steindór: „Ég hef verið beð- inn um að vera lengur en ég er að ganga frá ákveðnum málum varðandi eignir mínar og get því ekki gefíð svar.“ -Blái liturinn á Steindórsbíl- unum fer í taugarnar á sumum. Verður málað yfir þann lit? Jón: „Við göngum í það að merkja vagnana. Það hafa komið upp hugmyndir um að breyta lit allra bílanna.“ Steindór: „Þeir keyptu fyrir- tækið og eiga þar með litinn og nafnið Steindór Sigurðsson. Það er því þeirra ákvörðun hvort þeir nota sér þetta eða ekki. Þeir settu það að skilyrði að fá einnig fyrirtækisnafnið og fengu það og litinn. Því er spurning hvort ástæða sé til að mála nýmálaða bíla bara lits- ins vegna.“ ® SÓIMNG NU ÞARFAÐHUGAAD SUMARDEKKJUNUM Ný og sóluð radial sumardekk af öllum stærðum og gerðum. FITJABRAUT 12 - 260 NJAROViK • SIMI 11399 7^} Keflavík Gæsluvellir -Að lokum? Jón: „Bara að fólkið muni eftir okkur. Þetta er fyrirtæki fólksins og það þarf enginn að sækja þessa þjónustu út fyrir svæðið.“ Steindór: „Ég sendi mínum gömlu viðskiptavinum bestu þakkir og vænti þess að þeir verði áfram samferða okkur.“ Gæsluvellir Keflavíkurbæjar við Miðtún, Ásabraut, Baugholt og Heið- arból verða opnir á tímabilinu 2. maí til 15. september kl. 9-12 og 13-17 alla virka daga nema laugardaga. Börnum er heimilt að hafa með sér drykkjarföng, þó ekki gosdrykki. Félagsmálastofnun Keflavíkurbæjar ----70/---------------- // VIÐ ERUM // í TAKT VIÐ // TÍMANN.... °/ Prentum á tölvupappír. / Öll almenn prentþjónusta. Reynið viðskiptin. LOKUNAR- AÐGERÐIR vegna vangoldinna orkureikninga eru hafnar í öllum byggðarlögum. E1 Hitaveita Suðurnesja

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.