Víkurfréttir - 05.05.1989, Qupperneq 18
MiKurt
18 Föstudagur 5. maí 1989
Jón Kr. Gíslason oj> Teitur Örlygsson með verðlaunagripi sína.
Jön og Teitur
verðlaunaðir
Norðurlandamótinu í
körfuknattleik var slitið í
lokahófi sem haldið var í
Glaumbergi. Þar var valið
Nike „All Star“ lið og veitt
verðlaun fyrir flest skoruð
stig, stoðsendingar, fráköst,
víti, svo og besti leikmaður.
Jón Kr. Gíslason hlaut
verðlaunin fyrir flestar stoð-
sendingar, alls 35, og voru
það 10 fleiri en næsti maður
gaf. Teitur Örlygsson var
valinn í Nike „AII Star“ lið-
ið, en hann lék nijög vel með
íslenska landsliðinu í þessu
móti. Magnús Guðfinnsson
tók 36 fráköst í mótinu, að-
eins einu færra en sá sem flest
tók, Pekka Markkanen frá
Finnlandi.
í lokahófinu kom fram að
gestirnir voru mjög ánægðir
með framkvæmd mótsins.
Framkvæmdanefnd þess á
mikinn heiður skilinn íyrir
gott starf, en hana skipuðu:
Helgi Hólm, Stefán Bjarka-
son og Björn Birgisson.
Tafla yfir frammistöðu landsliðsmanna frá Suðurnesjum.
Stig Frá- köst Stoð- send. Villur Víti Leik- mín.
Jón Kr. Gíslason 35 9 13 8 18/12 108
Teitur Örlygsson 68 13 2 5 17/12 110
Guðjón Skúlason 59 7 4 4 2/2 94
Axel Nikulásson 16 13 5 10 11/8 64
Guðmundur Bragason 33 29 6 12 11/7 119
Falur Harðarson 2 0 0 1 00/00 20
Magnús Guðfinnsson 36 36 5 11 4/2 119
Valur Ingimundarson 15 4 2 7 5/4 38
Friðrik Ragnarsson 0 0 0 0 0/0 0
Skrifstofuhúsnæði
við Hafnargötu
Skrifstofuhúsnæði við Hafnargötu 90 er til
leigu. Upplýsingar í síma 12009.
Munið
Getraunanúmer
ÍBK: 230
BLAÐ SEM
HITTIR í MARK!
\fiKUR
juUii
juUit
NM KARFA:
HflRSBREIDD MUNAÐI
Svíar sigruðu á NM í körfu-
knattleik sem lauk sl. laugar-
dag. Fyrirfram var búið aðspá
þeim sigri. Þeir fengu hann þó
ekki fyrirhafnarlaust. Þeir
sigruðu Finna eftir hörku-
spennandi, tvíframlengdan
leik, 92:89. Norðmenn urðu í
3. sæti eftir að hafa sigrað ís-
lendinga í sögulegum leik.
Þegar 34 sek. voru til leiksloka
hafði ísland þriggja stiga for-
ystu, 89:86, og skotrétt. Þjálf-
arinn, Laszlo Nemeth, gat val-
ið um að taka innkast eða láta
Jón Kr. taka vítaskot. Laszlo
valdi seinni kostinn, sem bæði
leikmenn og áhorfendur töldu
verri. Jón Kr. klikkaði á vít-
inu, Norðmenn brunuðu fram
og jöfnuðu. Island fékk aðra
sókn og Guðmundur Braga-
son fékk vítaskot þegar 2 sek.
voru eftir. Guðmundur klikk-
aði líka í vítinu sínu og leikur-
inn var framlengdur. 1 fram-
lengingunni kafsigldu Norð-
menn Islendingana og sigruðu
105:95. Lokastaðan í mótinu:
Svíþjóð 4
Finnland 4
Noregur 4
ísland 4
Danmörk 4
389-313 8
303-283 6
332-336 4
326-345 2
273-346 0
ísland næði 3. sæti
Axel barðist vel undir körfunni.
HVER FER Á WEMBLEY?
Þá er komið að lokaum-
ferðinni í getraunum. I síð-
ustu viku voru menn ekki
mjög getspakir. Sigurður
fékk fimm rétta og hefur því
alls fimmtán rétta; Jón Hall-
dórs fékk einnig fimm og er
því alls með fjórtán; Björn
vildi ekki bregða út af vana
félaga sinna og fékk iika
fimm rétta og hefur alls
þrettán, en Júlíus fékk bara
fjóra og hefur því alls fjórtán
rétta, alveg eins og Jón Hall-
dórs. Það mun því ekki ráð-
ast fyrr en nú í síðustu um-
ferð hver hlýtur ferð á
Wembley og titilinn Get-
raunaspekingur Víkurfrétta
1989. Það getur sem sagt allt
gerst og af því tilefni voru
menn spurðir hvernig þessi
síðasti úrslitaseðill legðist í
þá:
Sigurður: „Þetta er mjög
erfiður seðill og erfitt að spá
nokkru um það hvað ég hef
út úr honum. Leikurinn er
orðinn spennandi og þetta er
reglulega gaman.“
Jón Halldórs: „Mér líst illa
á seðilinn en ætla að fá átta
rétta. Ég ætlaði nú reyndar
líka að fá átta í síðustu viku
en það fór ekki eins og ég ætl-
aði. Ég vonast til að vinna en
annars er ég farinn að halda
að ég komist aldrei á Wemb-
ley.“
Björn: „Þetta er búið að
vera jafnt og spennandi. Ætli
ég fái ekki fimm rétta. Ég
reyni bara að vera ekki langt
á eftir hinum.“
Júlíus: „Alltaf þegar ég er
beðinn að spá í seðilinn fæ ég
lélega útkomu, en ef liðin
spila eins og ég vil fæ ég ör-
ugglega tólf rétta. Þetta verð-
ur annars bara að koma í
ljós.“
Sigurður 15 Júlíus 14 Jón H. 14 Björn 13