Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.09.1989, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 07.09.1989, Blaðsíða 1
STÆ5RSTA. FRÉTEA -OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ A SUÐURNESJUM 10. árgangur Fimmtudagurinn 7. september 1989 fauk gvél Sendiíeiðabifreið af amer- ^kri gerðfrá Arnarflugi fauk til í rokinu á laugardag og lenti á Boeing 727-200 þotu frá Flugleiðum. Gerðist þetta á flugvélastæði við Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Smávægilegar skemmdir urðu á nefi flugvélarinnar, en ekki urðu tafir á flugi vegna þessa þar sem umrædd flugvél átti ekki að fara í loft- ið fyrr en á sunnudeginum. Skæður lúsafar- aldur Mikið hefur borið á því að undanförnu að leitað hafi verið til Heilsugæslustöðvar Suðurnesja vegna lúsafar- aldurs sem virðist vera í gangi í Keflavík og Njarðvík og jafnvel víðar á Suðurnesj- um. Af því tilefni vilja að- standendur heilbrigðismála hjá HSS koma því á framfæri að foreldrar skoði vel börn sín, nú er skólar hefja starf- semi sína. Finnist lús í hári þarf að þvo hárið upp úr sérstöku lúsasjampói sem fæst í Apó- tekinu og kemba síðan hárið með kömbum sem þar fást líka. Ekki má nota lúsa- sjampóið nema lús finnist. Síðan þarf að meðhöndla alla fjölskylduna eins, viðra allan fatnað og þvo öll rúm- föt. Með þessu móti er hægt að drepa faraldur þennan, sem nú er mjög skæður, niður á mjög stuttum tíma. Vélstjórar felldu Frystihúsavélstjórar felldu einróma nýgerða kjarasamninga Vélstjórafél- ags Suðurnesja og viðsemj- enda þeirra, á félagsfundi á mánudagskvöldið. Mættu á fundinn átta af þeim ellefu frystihúsavélstjórum sem málið varðar. Umræddir samningar tók- ust á föstudag og voru á ASÍ- nótunum með gildistíma frá 1. maí sl. til næstu áramóta. Var boðuðu verkfalli, sem koma átti til framkvæmda aðfaranótt mánudagsins, þá frestað. Er blaðið fór í prent- un hafði ekki verið tekin ákvörðun um frekari aðgerð- ir. Ástand Reykjanesbrau ar með öllu óverjandi Landsbóki Saf nahús: Hverfisg 101 Reyk „Maður hefur séð bíla dansa á brautinni við fram- úrakstur, sem stafar af því hvað brautin er orðin slitin og í henni eru djúpir skorn- ingar,“ sagði Karl Her- mannsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn hjá lögreglunni í Keflavík, ísamtaliviðVíkur- fréttir. Hafa lögregluyfirvöld, að sögn Karls, stórar áhyggjur af vetrinum vegna þessa og því hefur jafnvel komið til tals að lækka hámarkshrað- ann, sem nú miðast við 90 km hraða á klst. Bæjarstjórn Njarðvíkur gerði á fundi sínum, sem hald- inn var 5. september, svofellda ályktun: „í tilefni þess að alvarleg slys hafa verið tíð á Reykjanes- braut ályktar bæjarstjórn Njarðvíkur að skora á ríkis- stjórn Islands að láta nú þegar hefjast handa við gerð áætlana um breikkun brautarinnar eða aðrar þær úrbætur sem auka megi öryggi vegfarenda og fækka slysum á henni. Astand Reykjanesbrautar er slíkt að nú, þegar skamm- degi gengur í garð er full ástæða til að hafa verulegar áhyggjur af málinu. I votviðr- um er brautin beinlínis hættu- leg yfirferðar vegna hins mikla slits sem orðið er á henni, og algengt að bifreiðar fljóti upp. Þar eð einungis er ein akrein í hvora átt er framúrakstur mjög algengur og við slíkar að- stæður er hann stórhættuleg- ur. Þegar tekið er tillit til þess mikla fjölda sem daglega ferð- ast um Reykjanesbraut er nú- verandi ástand hennar með öllu óverjandi.“ Frá umferðaróhappi á Reykjanesbraut síðasta sunnudag, en þar höfnuðu tveir bílar utan vegar. Aftan við Lödu-bifreiðina, þarsem mennirnir tveir standa, má sjá flak liins bílsins á hvolfi.Ljósm.: cpj. Víkurblðm gjaldþrota Bú Helga Kúld, eiganda Víkurblóma á Fitjum í Njarðvík, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta hjá skipta- ráðandanum í Reykjavík, þar sem Helgi á lögheimili þar í borg. Hefur Guðmund- ur Kristjánsson hdl. verið skipaður bústjóri. Hefur verslunin verið lok- uð frá því að herferð fjár- málaráðherra var fram- kvæmd vegna söluskatts- skulda. Síðan þá hefur verið reynt að gera söluskattinn upp en það ekki tekist og í framhaldi af því óskaði eig- andinn eftir skiptameðferð vegna gjaldþrots. Það sem er óvenjulegt við gjaldþrot þetta er að engin fjárnám hafa verið gerð í eignunum og þvi standa ekki fyrir dyrum nein nauðung- aruppboð. Um síðustu helgi var haldin einskonar útsala á vörulager og áhöldum versl- unarinnar, þar sem allt var selt, nánast fyrir hálfvirði eða meira. Þá mun húsið verða aug- lýst á næstunni, en þar átti Helgi aðeins helminginn á móti aðila, sem í upphafi var með honum í fyrirtækinu. Töluverð traffík var á útsölunni um helgina. Ljósm.: epj. Aukið at- vinnuleysi fiskvinnslu- fólks Það var dault hljóðið í starfsfólki skrifstofu Verka- lýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis er blaðið hafði samband við Guðrúnu Olafsdóttur, vara- formann félagsins, á mánu- dag. Ástæðan var aukning á atvinnuleysisskrá, en þar hafa að jafnaði verið 70-80 manns í hverri viku og á föstudag var engin undan- tekning, alls voru greiddar bætur til sjötíu og tveggja. Þann dag var öllu starfs- fólki Sjófisks í Keflavík, milli fjörutíu og fimmtíu manns, sagt upp störfum og jafnframt hefur Brynjólfur h.f., Innri-Njarðvík, sagt upp kauptryggingu fisk- vinnslufólks frá og með 1. október nk. Er því ljóst að á næstu vikum fer tala þeirra er fá bætur hjá skrifstofu VSFK eitthvað yllr hundrað- ið. Á baksíðu er nánar fjallað um málefni Sjófisks h.f.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.