Víkurfréttir - 07.09.1989, Page 19
ÍÞRÓTTIR
GLEÐII GRINDAVÍK:
UMFG f 2. DEILD
„Ég er mjög ánægður með
mína menn og ég átti alveg eins
von á þessu. Þetta hefur verið
strögl í sumar, en þetta hafð-
ist,“ sagði Guðjón Olafsson,
þjálfari Grindvíkinga, í samtali
við Víkurfréttir að loknum leik
Grindavíkur og Hvergerðinga í
Grindavík á laugardag.
Grindvíkingar tryggðu sér
sæti í 2. deild að ári með 3:0
sigri á andstæðingunum. Veðr-
ið setti sitt mark á leik liðanna.
Mikill vindur og rigning, sem
Gott hjá
1. flokki
Það var ekki aðeins 1.
flokkur UMFG sem stóð sig
-vel í 3. deildar keppninni.
Fyrsti flokkur félagsins var
stutt frá því að sigra í íslands-
mótinu. Liðið varð í 1.-2. sæti
ásamt ÍR, en Reykjavíkurlið-
ið sigraði vegna betra marka-
hlutfalls. Grindvijíingarnir
unnu sex leiki og töpuðu að-
eins einum.
hellt væri úr fötu, varð til þess
að dómari ákvað að taka
klukkustundar langt leikhlé
og vildi jafnvel láta fresta
leiknum til síðari tíma.
Grindvíkingar voru 2:0 yfir
í hálfleik. Þeir höfðu vindinn í
bakið í þeim fyrri og þá skor-
uðu þeir Hjálmar Hallgríms-
son og Gunnlaugur Jónsson
mörkin tvö fyrir Grindvík-
inga.
I síðari hálfleik voru það
hins vegar Hvergerðingar sem
Úr leik UMFG og Hveragerðis.
Sundæfingar hafnar
Sundfélagið Suðurnes hef-
ur nú hafið starfsemi sína.
Æfingar hjá eldri hópunum
hófust sl. föstudag undir
stjórn Þórunnar Magnúsdótt-
ur, aðstoðarþjálfara félags-
ins.
Æfrngar hjá yngsta hópn-
um, en það eru krakkar á aldr-
inum frá u.þ.b. 7 ára til 12-13
ára, munu hefjast næstkom-
andi þriðjudag, þann 12. sept-
ember, kl. 18:30 í sundlaug
Njarðvíkur.
Þeir krakkar sem hafa
áhuga á að vera með, vinsam-
lega mæti stundvíslega á
þriðjudaginn til skráningar.
Þjálfari yngsta hópsins er Eð-
varð Þór Eðvarðsson.
Sundfélagið Suðurnes
Reykjanesmótið í körfu:
Fyrsti leikurinn á morgun
Niðurröðun leikja íReykja-
nesmótinu í körfuknattleik
hefur verið breytt vegna
landsleiks í handbolta og ann-
arra ástæðna. Fyrsti leikur-
inn verður annað kvöld kl. 20
milli ÍBK og Reynis. Á laug-
ardag leika svo kl. 13 Haukar
og UMFN og strax^ á eftir
UMFG og UMFT. Á sunnu-
dag verða svo þrír leikir, sá
fyrsti kl. 14 milli Hauka og
ÚMFT, strax á eftir leika
UMFN og Reynir og kl. 20
leika svo IBK og UMFG.
Nú dustum við rykið
af kjuðunum
OPIÐ
mánudaga til
föstudaga kl.
11:30-23:30.
laugardaga og
sunnudaga kl.
13.00-23.30.
KNATTBORÐSSTOFA SUÐURNESJA
Gróftnni 8 - Sími 13822
höfðu „Kára“ sem tólfta leik-
mann, en tókst ekki að færa sér
það í nyt. Grindvíkingar bættu
hins vegar við marki Þórarins
Olafssonar og sigruðu örugg-
lega í leiknum, 3:0, og tryggðu
sér um leið sæti í 2. deild að ári.
Það voru hins vegar Reynis-
menn og Hvergerðingar er
féllu í 4. deild, en Reynir tap-
aði fyrir IK með engu marki
gegn þremur.
Páll skor-
aði 13mörk
Páll Björnsson, leikmaður
með Grindvíkingum, varð
markahæsti leikmaður liðs-
ins á þessu keppnistímabili
með 13 mörk, þegar einn
leikur er eftir, úrslitaleikur
um deildarbikarinn.
Siguróli Kristjánsson var
kjörinn leikmaður ársins hjá
UMFG í hófi er haldið var á
laugardag _ í Grindavík og
Þórarinn Olafsson var kjör-
inn efnilegasti leikmaður
Grindvíkinga þetta árið.
Lítilfjörleg
torfæra
Torfærukeppni björgun-
arsveitarinnar Stakks fór
fram við Grindavík sl. laug-
ardag. Var bæði keppt í
flokki sérútbúinna bíla og
óbreyttra.
Keppnin var Iítilfjörleg á
að horfa og tók allt of langan
tíma. Brautirnar voru oflétt-
ar fyrir bílana og fólki leidd-
ist þær tafir er urðu á keppn-
inni. Áður en næsta keppni
verður haldin þarf að skipu-
leggja allt betur og fækka
keppnisbílum nokkuð, svo
fólk þurfí ekki að standa upp
á endann í tæpa fimm tíma,
rennblautt og leitt.
Evrópukeppnin
f körfu
íslandsmeistarar Keflavík-
ur í körfuknattleik drógust
gegn ensku meisturunum
Bracknell frá London í 1. um-
ferð Evrópukeppni meistara-
liða í körfuknattleik.
Njarðvíkingar lentu gegn
þýsku bikarmeisturunum
Bayern Levercusen en það
mun vera geysisterkt lið.
Vikurfréttir
7. sept. 1989 19
Áhorfendur leituðu skjóls
Það viðraði ekki vel til knattspyrnuiðkunar í Grindavík á laugar-
dag. Aftakaveður gerði á meðan á leik Grindvíkinga og Hvergerð-
inga stóð og því flýðu áhorfendur í skjól urtdir húsgafli þegar flaut-
að var til leikhlés. Leikhléið, sem tekið var, var það lengsta á Suð-
urnesjum í sumar, ein klukkustund. Það voru því margir orðnir ansi
kaldir þegar leikurinn var loks flautaður af. Ljósm.: hbb
Óskum Grindvíkingum
til hamingju með 2. deild-
ar sætið í knattspyrnu.
- SPARISJÓÐURINN
- KAUPFÉLAGIÐ GRINDAVÍK
- VERSLUNIN STAÐARKJÖR
- HAFURBJÖRNINN
- GRINDAVÍKURBÆR
UTSALA
á golfvörum
- öllum vörum verslunarinnar s.s.
kylfum, pokum, peysum og skóm.
MIKILL AFSLÁTTUR.
GOLFVERSLUN John Príor
Hólmsvelli, Leiru.
Ferskur sjávarréttamatsölustaður
Opinn föstudags- og laugardagskvöld frá kl. 18:30
Borðapantanir daglega í síma 14040
NÝTT: Bubbi og Mummi leika Ijúfa
dinnertónlist laugardagskvöld