Morgunblaðið - 08.12.2015, Qupperneq 1
dregið í hverri viku!ÍSL
E
N
SK
A/
SI
A.
IS
D
AS
77
41
7
12
/1
5
Kauptu miða á www.das.is eða í síma 561 7757.
Verður 30 milljóna króna
íbúð í jólapakkanum?
Mikið tjón varð í Vestmannaeyjum
vegna óveðursins í gær. Einnig varð
tjón undir Eyjafjöllum, á Hvolsvelli,
á höfuðborgarsvæðinu og víðar.
Veðrið skall á í Vestmannaeyjum
með miklum látum um kl. 18.30.
Fjöldi tilkynninga um foktjón barst
lögreglu og Björgunarfélagi Vest-
mannaeyja. Þak fauk af íbúðarhúsi
við Smáragötu. Liðsmenn í Björgun-
arfélagi Vestmannaeyja reyndu að
forða frá frekara tjóni með því að
fergja niður það sem þeir gátu. Adolf
Þórsson, formaður Björgunarfélags
Vestmannaeyja, sagði að ekki hefði
verið stætt þar sem húsið stendur
efst í bænum, vegna veðurofsans.
Kona sem var í húsinu slapp ómeidd.
Í gærkvöldi voru þakplötur að
losna af fiskimjölsverksmiðju við
höfnina. Klæðning sem lá í búntum
inni á Eiði og var búið að fergja fór af
stað og fauk.
„Það hefur þónokkuð af rúðum
brotnað og þakköntum losnað víða
um bæinn,“ sagði Adolf. Hann vissi
ekki til þess að slys hefðu orðið á
fólki fyrir utan það að björgunar-
sveitarmaður meiddist á fingri.
Um 28-30 félagar í Björgunar-
félagi Vestmannaeyja sinntu óveð-
ursútköllunum í gærkvöldi. Þeir
voru enn að störfum um miðnættið.
Miklar truflanir urðu á dreifingu
rafmagns víða um land. Þegar blaðið
var að fara í prentun var t.d. raf-
magnslaust á Akureyri og víðar á
Eyjafjarðarsvæðinu, á norðanverð-
um Vestfjörðum, á Austfjörðum og
Austurlandi, á Suðausturlandi að
Kirkjubæjarklaustri og í Vest-
mannaeyjum. Farsímasendar duttu
víða út vegna rafmagnsleysis eða
keyrðu á varaafli.
Ofsaveður gerði usla
Mikið tjón varð í Vestmannaeyjum, undir Eyjafjöllum, á Hvolsvelli og víðar
Miklar truflanir urðu á dreifingu rafmagns og símasambandi víða um land
MÓveðursfréttir »2, 4 og 6
Morgunblaðið/Eggert
Reykjavík Mikið gekk á í gömlu höfninni í gærkvöldi. Flotbryggja og bátar ólmuðust í öldurótinu og bátur slitnaði frá og rak upp að grjótgarði.
Morgunblaðið/Eggert
Rok Þakklæðning fauk af húsi efst í Grafarholti um miðnættið.
Þ R I Ð J U D A G U R 8. D E S E M B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 288. tölublað 103. árgangur
16
GLUGGAR TIL JÓLA
JÓLASÍLDIN ÚR
SÍÐASTA FARM-
INUM Á ÞÓRSHÖFN
ANDRI OG
JANET Í
HÖRPU
REYNSLU-
AKSTUR OG
RAFBÍLAR
KÚNSTPÁSA 38 BÍLARTÁRAFLÓÐ 11
Ofsaveður var enn um allt land á
miðnætti í nótt og lægðin sem geng-
ur yfir landið var þá enn í fullum
styrk. Víða var hvasst og mælir á
Hallormsstaðahálsi eystra sýndi 51
m/s vindhraða í snarpri hviðu. Á
Stórhöfða í Vestmannaeyjum
mældist mesti vindhraði 47 m/s og
fór í 52 m/s í hviðum.
Veðrið fer að ganga niður þegar
líður á daginn í dag. Hin djúpa lægð
verður þá gengin yfir landið til
vesturs út af Breiðafirði og fjarar
þar út. Í kvöld verður víðast komið
skaplegt veður, en mikil snjóflóða-
hætta er nyrst á Vestfjörðum,
Tröllaskaga og Austfjörðum.
Björgunarsveitir sinntu fjölda út-
kalla í óveðrinu í gær og mikill við-
búnaður var um allt land. Þjóðvegir
landsins voru að stórum hluta lok-
aðir í varúðarskyni. Lögregla og
Vegagerðin hafa ekki áður gripið
til jafnvíðtækra ráðstafana af þeim
toga og nú. sbs@mbl.is
Snjóflóðahætta en
lægðin fjarar út
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Lokað Við Reynisfjall í Vík í Mýrdal í gær.