Morgunblaðið - 08.12.2015, Síða 2

Morgunblaðið - 08.12.2015, Síða 2
Farsímasendar á Höfðabrekku og Kirkjubæjarklaustri duttu út í gær- kvöldi vegna rafmagnsleysis. Far- símasendar á Hryggjum, Jökuls- árlóni, Öndverðarnesi og Vaðöldu voru úti vegna línubilana. Farsímasendar á Þórólfsfelli, Selmýri, Vík, Hraunhóli, Skógum, Rauðuskriðu og Svínadal keyrðu á varaafli. Í talsímakerfinu keyrðu stöðvar á varaafli, það er Braut- arholt á Skeiðum, Árnes, Goðaland og Vík. Bæði var um að ræða bil- anir og rafmagnsleysi, að sögn al- mannavarnadeildar Ríkislög- reglustjóra. gudni@mbl.is Truflanir á síma  Rafmagnsleysi eða keyrt á varaafli Guðni Einarsson gudni@mbl.is Óveðrið olli víða rafmagnstruflunum í gærkvöldi. Meginflutningskerfið var rekið í nokkrum minni eining- um, svokölluðum eyjarekstri, til að tryggja sem mestan stöðugleika. Rafmagn fór af í Úlfarsárdal í Reykjavík á níunda tímanum. Sig- öldulína 4 og Prestbakkalína 1, milli Sigöldu og Hóla við Hornafjörð, leysti út rétt upp úr klukkan átta. Það olli rafmagnsleysi út frá Prest- bakka í Vestur-Skaftafellssýslu, m.a. á Kirkjubæjarklaustri. Eftir að Prestbakkalína 1 var rofin var hægt að spennusetja Sigöldulínu 4 frá Sigöldu og var unnt að afhenda raf- magn í Vestur-Skaftafellssýslu. Kerskáli álvers Alcoa var tengdur frá byggðalínunni til að minnka áhættu vegna hugsanlegra truflana í flutningskerfinu. Díselvélar voru ræstar í Vík í Mýrdal til að sjá íbúum þorpsins fyrir rafmagni þar til viðgerð hefði farið fram á Víkurlínu. Í fyrstu önn- uðu díselvélarnar aðeins helmingi íbúðarhúsa í Vík en RARIK tók raf- magn af húsum sem ekki voru í notkun til að tryggja rafmagn fyrir íbúðarhúsin. Þá varð rafmagnslaust í Fljótshlíð, undir Eyjafjöllum og í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Einnig varð rafmagnslaust á Höfn í Horna- firði og í nærsveitum um stund. Rétt fyrir kl. 21.30 leysti Vatnshamralína 1 út og fóru þá Norður- og Austurland í eyjarekst- ur. Vatnshamralína kom aftur inn en svo varð rafmagnslaust á Austur- landi kl. 22.15. Breiðadalslína 1 var tekin úr rekstri til að auka afhendingarör- yggi rafmagns á norðanverðum Vestfjörðum. Þeir fengu rafmagn frá vararafstöð í Bolungarvík. Mjólkárlína 1 var einnig tekin úr rekstri til að auka afhendingarör- yggi rafmagns á sunnanverðum Vestfjörðum sem fengu rafmagn frá Mjólkárvirkjun. Viðgerðar- og viðbragðshópar frá Landsneti voru í startholunum á Geithálsi, Brennimel, Kolviðarhóli, Sultartanga og víðar á Suðurlandi, í Fljótsdal og víðar á Austurlandi og í Varmahlíð í Skagafirði. Þá var fylgst grannt með gangi mála í stjórnstöð Landsnets í Reykjavík og einnig var maður frá Landsneti í upplýsingamiðstöð Almannavarna í Skógarhlíð. Rafmagnið datt víða út og inn í óveðrinu í gær  Mikill viðbúnaður hjá Landsneti Ljósmynd/ÁÞJ Stjórnstöð Landsnets Vel var fylgst með ástandi raforkukerfisins. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Mjög lítil umferð var á götum höf- uðborgarsvæðisins í gærkvöldi. Varðstjóri í umferðardeild lögregl- unnar sagði að umferðin í gær- kvöldi minnti á miðja nótt í miðri viku, „sem betur fer“ bætti hann við. Þá var farið að bæta í veðrið í borginni og það orðið hálf- ískyggilegt á köflum. Lítil umferð var einnig á vegum til og frá höfuðborginni undir kvöld í gær eins og myndin ber með sér. Enginn bíll var sjáanlegur hvorki á leið til né frá borginni. Þó voru sumar leiðir þá enn opnar. Vegum út frá höfuðborginni var síðan lokað vegna óveðursins, bæði Reykjanesbraut, veginum austur fyrir fjall og eins leiðinni upp á Kjalarnes. gudni@mbl.is Eins og um miðja nótt í miðri viku Morgunblaðið/RAX Óveður í aðsigi Mjög lítil umferð var í Reykjavík í gærkvöldi og enginn bíll á leið til eða frá borginni þegar myndin var tekin. Sigurður Bogi Sævarsson Anna Marsibil Clausen „Hér er mikið hvassviðri. Austanátt- in er óskaplega þung og það er ljóst nú þegar að hér hafa orðið miklar skemmdir. Staðan virðist verst hér efst í bænum,“ sagði Elliði Vignis- son, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, við Morgunblaðið í gærkvöldi. Óveðrið skall á Vestmannaeyjar um klukkan 18.30 og vindhraði á Stórhöfða mældist mestur 49 m/s þótt staðan væri ögn skárri niðri í bænum. Ríkislögreglustjóri lýsti yfir hættustigi í Vestmannaeyjum vegna óveðursins í gærkvöldi. Þá var hús við Smáragötu fokið, rúður í húsum að brotna og rusl og brak fauk til og frá. Einnig losnuðu þakplötur af fiskimjölsverksmiðju Ísfélagsins. Tugir tilkynninga höfðu borist lög- reglu og björgunarsveitum. Jóhann Georgsson, íbúi við Smáragötu, segir hús nágranna síns hafa hreinlega liðast í sundur og þak þess lent á sinni lóð. „Þakið er hérna á blettinum hjá mér. Það eru einir 10 björgunarsveitarmenn ofan á því til að reyna að bjarga því, svo það haldi ekki áfram eitthvað.“ Á Hvolsvelli var ofsarok í gær- kvöldi og íbúar þar voru í tilkynn- ingu hvattir til að halda sig hlémegin í húsum sínum. „Hér hafa þakplötur losnað, bílar fokið saman, fellihýsi losnað og fleira,“ sagði Jón Her- mannsson björgunarsveitarmaður á Hvolsvelli. Á ellefta tímanum stóð til að fara á brynvörðum bíl austur undir Eyja- fjöll vegna manns sem talinn var vera í sjálfheldu en hann var aftur- kallaður þegar í ljós kom að ekkert amaði að manninum. Hljóp með vasaljós „Þessa stundina hefst ég við á kló- settinu í kjallaranum og bíð þess sem verða vill,“ sagði Þorsteinn Birgis- son á bænum Hlíð undir Eyjafjöllum í samtali við Morgunblaðið seint í gærkvöldi. „Fyrst brotnaði ein rúða og þá virðist sem undirþrýsingur hafi myndast í húsinu því fjórar rúður fóru strax á eftir. Þetta er alveg hrikalegt. Ég skaust héðan úr kjall- aranum og upp áðan til að kanna stöðuna. Í rafmagnsleysinu hljóp ég upp með vasaljós og sá að skemmd- irnar voru miklar,“ segir Þorsteinn. „Það er ofsaveður“ Það var á ellefta tímanum í gær- kvöldi sem tilkynningar um fok- skemmdir á höfuðborgarsvæðinu fóru að berast til Neyðarlínu. Blaða- gámar og skúrar losnuðu, skjólvegg- ir gáfu sig og rúður brotnuðu. Þá fuku gluggar upp og bátar við Reykjavíkurhöfn losnuðu. Vindhraði á Hólmsheiði, Norðlingaholti í Reykjavík og á Völlunum í Hafnar- firði var um 28 m/sek. „Það er ofsa- veður samkvæmt skilgreiningu,“ sagði Elín Björk Jónsdóttir veður- fræðingur. Morgunblaðið/Eggert Garðabær Björgunarlið og slökkviliðsmenn festu vegg, sem var farinn að riða til, við Sjálandsskóla. Bátar losna, bílar fjúka og hús í sundur  Bóndi undir Eyjafjöllum beið í kjallara í gluggalausum bæ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.