Morgunblaðið - 08.12.2015, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2015
lÍs en ku
ALPARNIR
s
alparnir.is
FAXAFENI 8, REYKJAVÍK, SÍMI 534 2727
P
P
Góð gæði
Betra verð
Góðar jólagjafir
lÍs en ku
ALPARNIR
s
Svigskíði • Fjallaskíði • Gönguskíði • Snjóbretti
Pakkatilboð
25% afsláttur
Pakkatilboð
25% afsláttur
Pakkatilboð
25% afsláttur
Pakkatilboð
25% afsláttur
Tökum notaðan skíða- og brettabúnað upp í nýjan
25% afsláttur
af snjóbrettapökkum
Verð frá kr. 57.000
Hanskar,
verð frá
kr. 3.995
Fjölbreytt
úrval af
bakpokum
frá SALOMON,
LOWE ALPINE
og PINGUIN
Mikið úrval af
svefnpokum
frá PINGUIN
og ROBENS
Léttar dúnúlpur
fyrir dömur
og herra
Verð
39.995
Mikið
úrval
af fatnaði
100% merino
ullarfatnaður
á alla fjölskylduna, verð frá kr. 4.995
Mikið úrval af sokkum
og vetlingum
Hinir vinsælu
MICROspikes keðjubroddar
Verð kr. 9.995 með poka.
20%
jólatilboð
20%
jólatilboð
Hanskar,
verð frá kr. 4.995
1.995 2.195
2.595
Vetrarskór með göddum
fyrir dömur og herra
Tilboð
26.995
Einungis mældust um 295 þúsund
tonn af kynþroska loðnu eða um
14,4 milljarðar fiska, sem gert er
ráð fyrir að hrygni næsta vor, í
loðnuleiðangri í lok nóvember. Það
er mun minna en mældist í fyrri
haustmælingum 16. september til 4.
október þegar um 550 þúsund tonn
mældust. Í ljósi þessa sem og þess
að veður og hafís hamlaði rann-
sókninni leggur Hafrannsókna-
stofnun ekki til breytingar á áður
útgefinni ráðgjöf um aflamark.
Stofnunin mun mæla veiðistofn
loðnu að nýju í janúar/febrúar 2016
og mun endurskoða tillögur um
heildaraflamark gefi niðurstöður
þeirra mælinga tilefni til þess.
Rannsóknasvæðið nú var í Græn-
landssundi og með landgrunns-
brúninni út af Vestfjörðum og
Norðurlandi frá 29°30 V í Græn-
landssundi að 17° V austan Kol-
beinseyjarhryggjar. Aðstæður til
rannsókna voru enn erfiðari en í
fyrri mælingunni, en rekís í Græn-
landssundi útilokaði mælingu á
mikilvægum svæðum auk þess sem
vindar og tilheyrandi sjólag tor-
velduðu og stöðvuðu ítrekað berg-
málsmælingu og sýnatöku.
Lítið fannst
af loðnu, ráð-
gjöf óbreytt
Loðna Mikil óvissa er um vertíðina,
sem yfirleitt hefst upp úr áramótum.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Bensínverð hefur ekki verið lægra
síðan í janúarbyrjun árið 2010 og
verð á dísilolíu ekki verið lægra síð-
an í október 2009. Runólfur Ólafs-
son, framkvæmdastjóri FÍB, segir að
ekkert bendi til þess að heimsmark-
aðsverð skýri þá lækkun sem varð á
dísilolíu í gær og á bensíni 2.-3. des-
ember.
Skýringu á lægra verði telur hann
vera nýlega skýrslu samkeppnis-
eftirlitsins sem sýnir að íslenskir
neytendur greiddu of mikið fyrir
eldsneyti í smásölu í fyrra, eða sem
nemur fjórum til fjórum og hálfum
milljarði króna með virðisauka-
skatti.
Lægst hjá Orkunni
Verð á bensíni var í gær lægst á
þremur bensínstöðvum Orkunnar,
eða 188,5 krónur á bensíni og 179,5 á
díselolíu. Hér ber að athuga að Ork-
an ákvað að ekki þyrfti að framvísa
afsláttarkorti til að fá þetta verð eins
og verið hefur. Kann það að skýra
þetta lága verð. Á öðrum stöðvum
var verðið oftast 195,5 krónur á
bensíni og 186,6 á dísil þegar ekki er
miðað við vildarafslátt. „Verð var
186,5 kr. á bensíni hinn fjórða janúar
2010. Í október 2009 var lægsta verð
á dísilolíu 179,1 kr.“ segir Runólfur.
Aðspurður segir hann mestar líkur á
að skýrsla samkeppniseftirlitsins
skýri lækkunina. „Svo virðist sem
menn séu að stilla sig af og umræðan
í samfélaginu hafi haft þessi áhrif til
lækkunar,“ segir Runólfur.
Verð ekki lægra í um sex ár
Morgunblaðið/Golli
Verðlækkun Bensín- og olíuverð hefur ekki verið lægra í um sex ár.
Bensínverð ekki lægra frá því í janúar árið 2010
Í tilefni af 200 ára
afmæli Hins ís-
lenska biblíu-
félags verður
haldið málþing í
Háteigskirkju í
dag, þriðjudaginn
8. desember, kl.
16, undir yfir-
skriftinni „Bibl-
ían okkar og
framtíðin“.
Á málþinginu verða flutt þrjú er-
indi. Egill Jóhannsson útgefandi
flytur erindið „Biblíuútgáfur og
framtíðin“, Stefán Einar Stefánsson,
guðfræðingur og blaðamaður, flytur
erindið „Til allra þjóða“ og Karl Sig-
urbjörnsson, fyrrverandi biskup,
flytur erindið „Til hvers Biblían? Til
hvers Biblíufélag?“
Málstofustjóri verður sr. Valgeir
Ástráðsson.
Boðið verður upp á kaffisopa.
Málþingið er öllum opið.
Málþing um
biblíuna og
framtíðina
Karl
Sigurbjörnsson