Morgunblaðið - 08.12.2015, Síða 14

Morgunblaðið - 08.12.2015, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2015 Rafstöðvar og dekkjavélar öflugaroghagkvæmar fráZipper - fjölmargar gerðir Umfelgunarvél ZI-RMM94 Hæð á felgum10-22” Breidd á felgum 3-16” Mestahæðádekki1100mm Verð frá 328.000 með vsk Jafnvægisstillingarvél ZI-RWM99 Hæð á felgum 10-24” Breidd á felgum 1,5-20” Verð frá 250.000 með vsk Rafstöð 1,36kw-STE3000 Verð 97.456 með vsk Rafstöð 7,5kw-STE8000 Verð 237.305 með vsk Rafstöð 1,3kw-STE2000 Verð 141.721 með vsk Eigum einnig fyrirliggjandi fleiri tegundir rafstöðva IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is Þorsteinn Ásgrímsson thorsteinn@mbl.is Aðalmeðferð Chesterfield-málsins hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Saksóknari telur lánveitingar Kaupþingsmanna vera umboðssvik en vörn Kaupþingsmanna byggist á því að lánin hafi verið veitt í þeirri trú að því hefði ekki fylgt nein áhætta fyrir bankann. Í yfirheyrslum yfir Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra, og Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Kaupþings, hefur oft komið fram að þeir hafi talið stöðu bankans mjög góða, sér- staklega í ljósi þess óróa sem var á markaði, alveg þangað til íslenska ríkið tók Glitni yfir í lok september 2008 og neyðarlögin voru sett á í byrjun október sama ár. Miðað við þá stöðu hafi ekki verið slæm viðskiptaleg ákvörðun að lána fjórum aflandsfélögum tugi millj- arða til kaupa á lánshæfistengdum skuldabréfum sem tengd voru skuldatryggingarálagi Kaupþings af Deutsche Bank. Bæði telja yfirmenn bankans að þetta hefði getað bætt skuldatryggingarálag bankans sem og ef allt gengi vel bætt stöðu stórra viðskiptavina sem voru í erfiðri stöðu og þar með styrkt útlán Kaup- þings. Saksóknari telur aftur á móti að með þessum lánagjörningi hafi fé bankans verið stefnt í verulega hættu og að það hafi allt tapast með falli Kaupþings. Í dag halda yfirheyrslur áfram og í framhaldinu vitnaleiðslur. Á fimmtudag er svo gert ráð fyrir að málflutningur verjenda hefjist, en málið ætti að klárast öðrum hvorum megin við helgina. Ítarleg umfjöllun er um málið á mbl.is. Fyrir dóm í þriðja sinn Sigurður bað um að fá að ávarpa dóminn í gær. Hann sagði að nú væri hann mættur í héraðsdóm í þriðja skipti, en áður var hann dæmdur í Al-Thani málinu og stóra markaðsmisnotkunarmáli Kaup- þings. Í markaðsmisnotkunarmálinu sagði hann að dómurunum hefði tek- ist að dæma hann fyrir umboðssvik fyrir að taka ákvörðun í lánanefnd bankans um lán sem hafði verið greitt út áður, en þegar ákvörðunin var tekin hafði lánið þegar verið að fullu endurgreitt. Sagði hann þetta furðulegt, þar sem veruleg hætta á fjártjóni þyrfti að vera fyrir hendi til að dæma fyrir umboðssvik. Gagnrýndi hann Björn Þorvalds- son saksóknara ítrekað í ræðu sinni, meðal annars vegna handtökuskip- unar til Interpol og sagði hann ítrekað hafa logið upp á sig. „Ég á ekki von á öðru en að Björn Þor- valdsson haldi áfram að vefa lygavef sinn hér,“ sagði Sigurður. Hann tók fram að hann hefði ekki tekið neina ákvörðun í því máli sem er nú fyrir dómi og sagði engin sím- töl, vitnisburð eða annað vísa til sín. Honum hefði sem stjórnarmanni verið bannað að taka ákvarðanir um einstaka lánveitingar innan bankans og spurði því: „Hvað er verið að ákæra fyrir hér?“ Versta aðgerð íslenska ríkisins Ákvörðun Seðlabanka Íslands að lána Glitni 600 milljónir evra og fá á móti stóran eignahluta í bankanum í lok september 2008 var versta að- gerð sem íslenska ríkið hefur gert. Þetta var meðal þess sem kom fram í yfirheyrslu yfir Hreiðari Má í gær. Meðal annars spilaði saksóknari símtal milli Hreiðars Más og Guð- mundar Þórðar Guðmundssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra fjár- stýringar bankans, sem tekið var upp eftir að yfirheyrslur fóru fram yfir þeim árið 2010. Spurði saksókn- ari um ummæli í símtalinu þar sem Hreiðar Már talar um að lausafjár- staðan hafi verið „djöfulleg“. Svar- aði Hreiðar því til að þarna ætti hann við það þegar Seðlabankinn hefði fengið bréf í Glitni með 600 milljóna lánveitingu. Sagði Hreiðar Már að hann hefði eytt heilum dögum í ráðherrabú- staðnum með ríkisstjórninni í kring- um fall bankanna, en eftir tíma- bundna björgun Glitnis hefði lánshæfi ríkisins fallið mikið. Hann hóf ávarp sitt á að segja að í gegnum síðustu sjö ár af ásökunum frá saksóknara og í gegnum fjöl- miðla þá hefði það sært hann mest að vera sagður hafa ætlað að valda Kaupþingi skaða. Rakti hann ástæð- ur þess að farið hefði verið í þau við- skipti sem ákært er fyrir og að ákvarðanir hefðu verið teknar eftir ráðgjöf yfirmanna Deutsche Bank um endurkaup á skuldabréfum bankans og að kaupa skuldabréf tengd skuldatryggingum bankans. Sagði hann að m.a. hefði verið tekin ákvörðun um þau viðskipti í ljósi þess að innlánasöfnun bankans er- lendis hefði gengið vel og stjórn- endur talið bankann njóta trausts. Tekist á um lánveitingarnar  Aðalmeðferð Chesterfield-málsins hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær  Sakborningar fóru hörðum orðum um ákæruvaldið og framkomu þess í sinn garð  Yfirheyrslur halda áfram í dag Morgunblaðið/Golli Héraðsdómur Reykjavíkur F.v.: Hreiðar Már Sigurðsson, Almar Þór Möller, hdl. og aðstoðarmaður verjanda, og Sigurður Einarsson við réttarhöldin vegna Chesterfield-málsins svonefnda í gær. Yfirheyrslur halda áfram í dag. Umfang þeirra viðskipta sem sérstakur saksóknari ákærir fyrir í Chester- field-málinu svokallaða nemur 510 milljónum evra eða um 72 milljörðum króna á gengi dagsins í dag og 67-69 milljörðum á gengi þess tíma sem viðskiptin áttu sér stað. Þetta er svipuð upphæð og neyðarlán Seðla- bankans til Kaupþings sem veitt var 6. október 2008 en það nam 500 milljónum evra. Í málinu eru þeir Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, og Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, ákærðir fyrir stórfelld umboðssvik og fyrir að hafa valdið Kaup- þingi gríðarlegu og fáheyrðu fjártjóni, eins og segir í ákæru, með lánveit- ingum til sex eignarhaldsfélaga skráðra á Bresku Jómfrúaeyjum. Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, er einnig ákærður í málinu fyrir hlutdeild í umboðssvikunum. Gríðarlegt og fáheyrt fjártjón ÁKÆRA Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Landhelgisgæslan og lögreglan eru þær stofnanir samfélagsins sem al- menningur treystir best. Þetta kemur fram í könnun sem MMR gerði á dögunum um traust til helstu stofnana á sviði réttarfars og dómsmála. Alls 961 svaraði könn- uninni. Traust til hæstaréttar, ríkis- saksóknara og gæslunnar eykst töluvert frá mælingu í nóvember á síðasta ári. Á sama tíma dvínar traust til lögreglunnar aðeins; er nú 75,5% en var 80,5% í fyrra. En þrátt fyrir að þróun mála varðandi traust til lögreglunnar sé sem að framan greinir er það „meira en til allra annarra stofnana á sviði réttarfars og dómsmála, að Landhelgisgæsl- unni undanskilinni“, segir MMR. Fleiri treysta Hæstarétti Alls 76,2% svarenda í könnuninni sögðust bera frekar eða mjög mikið traust til Landhelgisgæslunnar og raunar hafa viðhorfin verið á þá lund alveg frá því MMR gerði sína fyrstu könnun um þetta efni árið 2009. Um 45,3% þeirra sem tóku af- stöðu báru almennt frekar lítið traust til Útlendingastofnunar en 17,9% sögðust treysta stofnuninni. Ekki er tilgreint hvað veldur þess- ari frekar neikvæðu afstöðu al- mennings, en ætla má þó að mjög skiptar skoðanir og jafnvel deilur um afgreiðslu umsókna þeirra sem leita hælis á Íslandi, af ýmsum ástæðum, hafi hér nokkur áhrif. Þeim sem sögðust treysta Hæsta- rétti frekar eða mjög mikið fjölgaði úr 34,3% í 40,8% milli ára. Álíka margir treysta ríkissaksóknara og hæstarétti. Landhelgisgæslu og lögreglu best treyst  Fæstir stóla á Útlendingastofnun Morgunblaðið/Sigurður Bogi Varðskip Þjóðin stólar á Landhelg- isgæsluna, bæði á legi og í lofti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.