Morgunblaðið - 08.12.2015, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.12.2015, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2015                                    !" !" #!$$ %! % $! %!" ## $ &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5  !" !"# ##$ %% % $  ! %$ !$ $% $ !"%# !# ###! %!% % #%  %"% # # $! ! !$  Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Icelandair Group flutti í nóvember tæplega 193 þúsund farþega í milli- landaflugi, samkvæmt flutningatölum sem félagið sendi til Kauphallar. Voru farþegar 20% fleiri en í nóvember á síð- asta ári. Sætanýting var 78,4%, sam- anborið við 77,0% á sama tíma í fyrra, og hefur hún aldrei verið hærri í nóv- ember. Farþegar í innanlandsflugi og Græn- landsflugi voru um 22 þúsund í nóv- ember og fjölgaði um 5% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 7% frá því á síðasta ári. Framboð á hótelum félags- ins jókst um 6% á milli ára í nóvember og herbergjanýtingin var 70,6%. 20% fjölgun millilanda- farþega hjá Icelandair ● Í gær hófst hlutafjárútboð Nýherja en þar verða allt að 40 milljón nýir hlut- ir á nafnverði boðnir til sölu. Það svarar til 9,76% af heildarhlutafé fyrirtæk- isins. Heildarvirði Nýherja í lok dags í gær nam tæpum 6,3 milljörðum króna. Fagfjárfestar geta skilað inn fleiri en einu tilboði og útgefandi getur sam- þykkt fleiri en eitt tilboð frá hverjum til- boðsgjafa. Kvika annast útboðið og því lýkur á föstudag í þessari viku. Hlutafjárúboð Nýherja fyrir fagfjárfesta hafið STUTTAR FRÉTTIR ... Við eigum hins vegar eftir að ákveða hvernig þessu verður hátt- að.“ Hefðu viljað fá hærra verð Stork starfar einkum á sviði olíu- og gasiðnaðar. Fyrirtækið hefur af þeim sökum ekki farið varhluta af þróun heimsmarkaðsverðs á því sviði. „Við hefðum gjarnan viljað fá hærra verð fyrir þetta félag. Hins vegar tekur endanlegt verð mið af stöðunni á mörkuðum. Söluferlið er langt og strangt. Það var okkar mat og meðfjárfesta okkar að þetta væri, þrátt fyrir allt, rétti tíminn til að selja. Það fylgir því líka áhætta að halda áfram í verkefni af þessu tagi. Auk þess var það okkar mat að það væri kominn tími til að huga að öðrum verkefnum en þessu,“ segir Örn. Eyrir selur allan hlut sinn í Stork eftir langt söluferli AFP Sala Peter Oosterveer, framkvæmdastjóri Fluor, og Arnold Steenbakker, forstjóri Stork, kynntu söluna í gær. Hvað er Stork » Leiðandi þjónustuaðili fyrir fyrirtæki í olíu- og gasiðnaði, efnaiðnaði og orkuiðnaði. » Fyrirtækið starfar meðal annn- ars í Norðursjó, á meginlandi Evr- ópu, Ameríku, Afríku, Mið- Austurlöndum og Ástralíu. » Hjá Stork starfa um 15.000 manns og velta fyrirtækisins nam 1,5 milljörðum evra árið 2014.  Hluta fjármunanna varið til nýfjárfestinga  Verðið markast af stöðu olíumarkaða BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Eyrir Invest hefur, ásamt meðfjár- festum, selt alla hluti sína í Stork til bandarísku iðnaðarsamsteypunnar Fluor Corporation sem er í 136. sæti á lista yfir stærstu fyrirtæki heims. Kaupverðið nemur 695 millj- ónum evra, sem jafngildir tæpum 98 milljörðum íslenskra króna. Eyr- ir Invest á 17% hlut í fyrirtækinu í gegnum dótturfélag sitt, London Acquisition Luxco. Örn Valdimarsson, framkvæmda- stjóri Eyris Invest, segir söluna marka lok verkefnis sem staðið hef- ur frá árinu 2007 þegar fyrirtækið keypti, ásamt öðrum, hollensku iðn- aðarsamsteypuna Stork B.V. sem meðal annars rak Fokker Technolo- gies, Stork Technical Services og Stork Food Systems. Kaup Marels á því síðastnefnda voru megin- ástæða fyrir aðkomu Eyris Invest að verkefninu en Eyrir á tæplega 30% hlutafjár í Marel. „Með þessu erum við að breyta nokkuð stórri eign í okkar efna- hagsreikningi úr því að vera bundin í þessum tveimur félögum og yfir í lausafé,“ segir Örn. Hann bendir á að söluverðið þurfi að skoðast í ljósi þess að það vísar til heildarvirðis hlutarins. „Þetta er heildarvirði félagsins og Eyrir á 17% hlutdeild í því. Um- talsverður partur kaupverðsins er greiddur með yfirtöku eða upp- greiðslu á skuldum þannig að það er langur vegur frá að við séum að fá 17% af 695 milljónum evra. Hið sama á við um söluna á Fokker fyrr á árinu. Núna þegar bæði félögin hafa verið seld þá fer fram heildar- uppgjör á þessu stóra verkefni og þá verður hlutur okkar í því eigin fé sem eftir stendur greiddur til okk- ar. Við erum ekki komin með ná- kvæma upphæð á það, en það eru umtalsverðir fjármunir á okkar mælikvarða,“ segir Örn. Greiða upp skuldir og fjárfesta Aðspurður segir Örn að næsta verkefni Eyris Invest sé að meta hver næstu skref verði hjá félaginu. „Við erum ekki búin að leggja niður fyrir okkur í smáatriðum hvað við gerum við þá fjármuni sem þarna losnar um, en eðli málsins samkvæmt þá verður eitthvað af þeim nýtt til að greiða niður skuldir og annað verður sett í ný verkefni. Samkvæmt Salek-samkomulaginu þyrfti atvinnuleysistryggingasjóður að vera sjálfstæður og ekki hluti af almennum rekstri ríkissjóðs, enda er í samkomulaginu fjallað um nauðsyn sameiginlegs skilnings á milli stjórnvalda og aðila vinnu- markaðarins um stöðu, stjórnun og fjármögnun lykilstofnana vinnu- markaðarins, og þar með atvinnu- leysistryggingasjóðs. Um þetta er fjallað í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans. Atvinnuleysistryggingasjóður fellur nú undir A-hluta ríkissjóðs og tekjur hans og gjöld eru þar með hluti ríkisfjármálanna. Landsbank- inn bendir á að í fjárlögum þessa árs voru framlög til sjóðsins um 13 milljarðar króna en ætla má að um 10,8 milljarðar verði greiddir út í atvinnuleysisbætur í ár. Í fjárlaga- frumvarpi næsta árs sé gert ráð fyrir 13,9 milljarða króna framlagi til sjóðsins en búast megi við að minna muni fara í atvinnuleysisbæt- ur. Í þjóðhagsspá hagfræðideildar Landsbankans er því spáð að skráð atvinnuleysi verði 2,9% á þessu ári, 2,8% á því næsta og 2,7% á árunum 2017 og 2018. Landsbankinn bendir á að þótt atvinnuleysi hafi minnkað hratt, sýni tölur um vinnumarkaðinn síð- ustu sex mánuðina að hægt hafi verulega á minnkun atvinnuleysis. Ljóst sé að þróun hagkerfisins muni valda vaxandi eftirspurn eftir vinnuafli á næstu árum og nú þegar hafi henni verið mætt að einhverju leyti með auknum innflutningi er- lends vinnuafls. Líklegt sé að svo muni verða áfram. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Vinna Landsbankinn spáir því að það hægi á minnkun atvinnuleysis. Atvinnuleysistrygg- ingar undan ríkinu  Landsbankinn segir Salek kalla á aukið sjálfstæði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.