Morgunblaðið - 08.12.2015, Side 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2015
Sameinar það besta í rafsuðu
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
150 ung pör voru gefin saman í fjöldabrúð-
kaupi í borginni Surat í indverska ríkinu Guj-
arat í fyrradag. Fjöldabrúðkaupið fór fram
fyrir tilstilli indversks auðkýfings, Mahesh
Savani, sem hefur greitt fyrir brúðkaup
ungra, fátækra og föðurlausra kvenna í borg-
inni í sjö ár. Savani byrjaði að gegna hlutverki
„fósturföður“ föðurlausra kvenna árið 2008
þegar einn starfsmanna hans dó nokkrum
dögum áður en tvær dætur hans gengu í
hjónaband. Síðan hefur hann staðið fyrir slík-
um fjöldabrúðkaupum árlega, greitt fyrir
brúðkaupsveislurnar, gefið brúðunum skart-
gripi, fatnað og ýmis búsáhöld til að stofna
heimili.
Brúðkaup eru yfirleitt mjög dýr á Indlandi
og venja er að fjölskylda brúðarinnar leggi til
heimanmund og greiði fyrir veisluhöld sem
standa oft í þrjá daga. Veislurnar og gjafirnar
til brúðhjónanna 150 kostuðu jafnvirði tæpra
100 milljóna króna. „Ég lít á þetta sem heilaga
athöfn, þannig að það er ekkert til sparað og
ég sé ekki eftir peningunum,“ segir Savani
sem auðgaðist á demantasölu.
AFP
150 föðurlausar konur giftar
Indverskur auðkýfingur tekur að sér hlutverk „fósturföður“
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, boð-
aði ekki neinar umtalsverðar breytingar á
stefnu sinni í baráttunni gegn hryðjuverka-
starfsemi í ávarpi sem var sjónvarpað beint á
besta útsendingartíma í fyrrakvöld. Þetta er
aðeins í þriðja skipti sem Obama hefur flutt
ávarp til þjóðarinnar frá skrifstofu sinni.
Haft var eftir hátt settum embættismanni
í Hvíta húsinu að markmiðið með ræðunni
hefði verið að sýna hversu alvarlegum aug-
um forsetinn liti skotárásina í borginni San
Bernardino í Kaliforníu fyrir viku þegar hjón
urðu fjórtán manns að bana og létu síðan líf-
ið í skotbardaga við lögreglumenn. Hjónin
voru múslímar og fregnir herma að þau hafi
stutt Ríki íslams, samtök íslamista sem hafa
stofnað kalífadæmi á yfirráðasvæðum sínum
í Sýrlandi og Írak.
Í ræðunni hét forsetinn því að Bandaríkja-
her myndi sigra samtök íslamistanna og
„elta uppi hryðjuverkamenn þeirra í öllum
löndum þar sem það er nauðynlegt“. Hann
hvatti einnig múslíma í Bandaríkjunum og
öðrum löndum til að „hafna afdráttarlaust
haturskenningum hópa eins og ISIL
[skammstöfun Ríkis íslams á ensku] og al-
Qaeda“. „Frelsið er öflugra en óttinn,“ sagði
hann og hvatti til þjóðareiningar í baráttunni
gegn hryðjuverkastarfsemi. „Við megum
ekki snúast hver gegn öðrum með því að
leyfa mönnum að skilgreina baráttuna sem
stríð milli Bandaríkjanna og íslams. Liðs-
menn ISIL eru ekki málsvarar íslams. Þeir
eru óþokkar og morðingjar,“ sagði hann. „Til
að við getum sigrað hryðjuverkasamtökin
þurfum við að fá múslímasamfélög til liðs við
okkur sem mikilvæga bandamenn frekar en
að ýta þeim frá okkur með tortryggni og
hatri.“
Fréttaskýrandi The Washington Post seg-
ir að Obama hafi ekki boðað neinar umtals-
verðar breytingar í baráttunni gegn hryðju-
verkasamtökunum eða nýjar aðgerðir til að
koma í veg fyrir frekari hryðjuverk í Banda-
ríkjunum. Þess í stað hafi forsetinn lagt
áherslu á að sefa ótta Bandaríkjamanna, sem
hafi vaxandi áhyggjur af hættunni á fleiri
hryðjuverkum og einnig vísbendingum um að
íslamistarnir láti engan bilbug á sér finna
þrátt fyrir loftárásir Bandaríkjahers á yfir-
ráðasvæði þeirra í Sýrlandi og Írak í rúmt
ár.
Meirihluti styður landhernað
Nýleg könnun CNN-sjónvarpsins og rann-
sóknafyrirtækisins Orc International bendir
til þess að 68% Bandaríkjamanna telji að
Bandaríkin hafi ekki gripið til nógu harðra
hernaðaraðgerða gegn Ríki íslams og um
60% séu óánægð með framgöngu Obama í
baráttunni gegn hryðjuverkasamtökunum.
Könnunin bendir einnig til þess að meirihluti
Bandaríkjamanna, eða 53%, sé nú hlynntur
því að bandarískir hermenn verði sendir til
Sýrlands og Íraks til að berjast gegn Ríki
íslams. Stuðningurinn við landhernað er
mestur meðal kjósenda sem styðja repúblik-
ana. Um 69% þeirra vilja landhernað gegn
Ríki íslams en aðeins 38% kjósenda sem
styðja demókrata, að sögn CNN.
Bandaríkjaher herti loftárásir sínar á yfir-
ráðasvæði Ríkis íslams eftir hryðjuverkin í
París 13. nóvember og hefur sent fámennt lið
sérsveitarmanna til Sýrlands og Íraks.
Frambjóðendur í forkosningum repúblikana
hafa sakað Obama um ráðaleysi í baráttunni
gegn íslamistunum. Forsetinn hefur einnig
sætt gagnrýni meðal demókrata, þeirra á
meðal Hillary Clinton, fyrir að hafa ekki
brugðist nógu skjótt og hart við hættunni
sem stafar af hryðjuverkasamtökunum.
„Frelsið er öfl-
ugra en óttinn“
Obama lofar sigri á Ríki íslams Aukin
óánægja með framgöngu forsetans í baráttunni
AFP
Sætir gagnrýni Barack Obama forseti ávarp-
ar bandarísku þjóðina á skrifstofu sinni.
Yfirvöld í Peking hafa í fyrsta skipti
lýst yfir hæsta viðvörunarstigi
vegna loftmengunar í borginni. Það
þýðir að í dag verður helmingur
einkabíla í borginni kyrrsettur og
mengandi verksmiðjur þurfa að
stöðva starfsemi sína tímabundið.
Flugeldar og grillveislur eru einnig
bannaðar.
Spáð var gríðarlegri loftmengun í
borginni í dag og heilbrigðisyfirvöld
gripu því til þess ráðs að lýsa yfir
hæsta viðvörunarstigi. Skólar verða
lokaðir og byggingarverkamönnum
verður bannað að vinna utandyra.
Auk einkabílanna verða 30% bif-
reiða hins opinbera kyrrsett.
Íbúum borgarinnar er ráðlagt að
vera sem minnst úti við og hafa
grímu fyrir vitunum eða grípa til
annarra varúðarráðstafana ef þeir
þurfa að vera utandyra.
Talið er að loftmengun valdi
hundruðum þúsunda dauðsfalla í
Kína á hverju ári. Stór hluti meng-
unarinnar er af völdum bruna á kol-
um en hann er mestur á veturna
þegar þörfin á húshitun eykst.
KÍNA
Loftmengun Vegfarandi með
grímu fyrir vitunum í Peking.
Hæsta viðvörunar-
stig vegna meng-
unar í Peking
Stjórnarandstaðan í Venesúela fékk meirihluta á þingi
landsins í fyrsta skipti í sextán ár í kosningum sem fram
fóru á sunnudag. Nicolas Maduro, forseti landsins,
viðurkenndi ósigur sósíalista í kosningunum. Úrslitin
eru mikið áfall fyrir forystumenn sósíalista sem hafa
framfylgt stefnu Hugos Chavez sem var við völd frá
árinu 1999 og þar til hann dó 2013.
Mið- og hægriflokkurinn MUD fékk 99 af 167 sætum á
þinginu, samkvæmt opinberum kjörtölum í gær. Óljóst
er þó hvort flokkurinn geti notað þingmeirihluta sinn til
að knýja fram stefnubreytingu eða koma Maduro úr forsetaembættinu.
Forsetinn kvaðst ætla að halda áfram að „byggja upp nýtt þjóðfélag“ í
Venesúela í samræmi við stefnuskrá sósíalistaflokksins. Ósigur hans er
einkum rakin til mikillar efnahagskreppu í landinu.
VENESÚELA
Stjórnarandstaðan fékk meirihluta á þingi