Morgunblaðið - 08.12.2015, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 08.12.2015, Qupperneq 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2015 HEILSA OG LÍFSTÍLL SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, föstudaginn 18. desember NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Morgunblaðið gefur út sérblað um heilsu og lífstíl laugardaginn 2. janúar. Í blaðinu verður kynnt fullt af þeim möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak og lífstílsbreytingu Um þessar mundir er unnið að gerð nýs „búvörusamnings“ til 10 ára. Með búvöru- samningum er mótuð stefna um þróun fram- leiðsluhátta landbún- aðarins, samkeppn- ishæfni, starfsskilyrði og kjör bænda. Í leið- inni er mörkuð stefna um útgjöld skattgreið- enda og neytenda til byggðanna. Það er því um eins konar „byggðasamn- ing“ að ræða, sem útfæra þarf nánar. Bæta þarf lífskjör í landinu veru- lega til að þau jafnist á við lífskjör í nágrannalöndunum. Til að ná lífs- kjörum í Danmörku, Svíþjóð og Nor- egi á næsta áratug þurfum við að auka landsframleiðslu á mann um meira 45% þegar tekið er tillit til óhagkvæmni þess að vera fá á stórri norðlægri eyju. Bæta þarf meðal- framlegð atvinnurekstrar um 20% til að h laun og auk þess lækka mat- arútgjöld og vaxtagjöld heimila nið- ur í það sem fólk í þessum löndum býr við. Á sama tíma munu viðmið- unarlöndin bæta sinn hag og því þurfum við að hífa upp um okkur buxurnar til að ná þeim. Landbúnaðurinn nýtur árlega um 14 milljarða króna beins stuðnings frá skattgreiðendum og kostar neyt- endur um 10 milljarða króna í formi tollverndar, samtals um 24 millj- arðar króna. Þessi upphæð nægir, sem dæmi, til að byggja nýjan Land- spítala á 4 ára fresti. Landbúnaðurinn er mjög meng- andi, losar um ¾ af þeim gróður- húsalofttegundum sem landið losar ef þurrkun votlendis er meðtalin. Landbúnaðurinn bætir ekki bara ásýnd landsins. Ofbeit heldur sum- staðar viðkvæmum gróðri niðri, óþarfa skurðir víða um land og þó víða sé vel búið eru mörg dæmi um óþarfan, úr sér genginn húsakost. Það þarf víða að taka til hendinni. Í markaðshagkerfi keppir vara og þjónusta á frjálsum markaði, einnig við innflutning. Þessi skipan mála tryggir neytendum góða, fjölbreytta vöru á góðu verði ef allt er með felldu. Í Evrópu keppir landbúnaður á 550 milljóna manna markaði og styrkir eru að meðaltali aðeins 1/3 af því sem hér er. Evr- ópa flytur einnig árlega inn landbúnaðarafurðir fyrir um 10 þúsund milljarða króna frá þró- unarlöndum og að- stoðar þarlenda við framleiðsluna. Þegar samið er um mikilvæga hagsmuni til langs tíma þarf að horfa á heildarmyndina, nýta bestu þekk- ingu og beita vinnubrögðum stefnu- mótunar. Skilgreina og afmarka þarf hlutverk landbúnaðarins betur, setja háleit markmið og velja heppilegar leiðir að markmiðunum. Eftirfarandi kemur til álita í því sambandi. Hlutverk landbúnaðar Hlutverk landbúnaðar er að fram- leiða holl, góð og fjölbreytt matvæli á samkeppnishæfu verði. Bændur vilja afkomutryggingu í formi nægilegs söluverðs, niður- greiðslna, verndar eða styrkja og rökstyðja það með því að halda þurfi landinu í byggð og tryggja matvæla- öryggi. En kostnaður neytenda og skattgreiðenda, sem margir hverjir eru ekki aflögufærir, er of mikill. Þegar neyðin er stærst og fólk hefur lifað að mestu á núðlum árum saman skiptir ekki miklu hvort bóndabæir eru færri eða fleiri. Færa þarf kröfur til landbúnaðarins nær því sem ger- ist í öðrum atvinnugreinum og sam- anburðarlöndunum. Metnaðarfull markmið Lækka þarf matarútgjöld heim- ilanna niður í opið markaðsverð. Í framhaldinu þarf að lækka bein- an kostnað skattgreiðenda af land- búnaði um helming. Bæta þarf ásýnd landsins til ynd- isauka fyrir landsmenn og ferða- menn. Hætta lausagöngu búfjár og, hætta að beita hálendið. Bæta um- gengni og auka skógrækt. Draga þarf úr losun gróðurhúsa- lofttegunda og mengun með end- urheimt votlendis, nýtingu metan- gass og minni útblæstri. Leiðir að markmiðum Opna þarf á innflutning matvæla án tolla- og innflutningshindrana, í áföngum á næstu 10 árum. Í staðinn opnast íslenskum bændum 550 millj- óna manna markaður Evrópu. Styðja þarf landbúnaðinn til að tak- ast á við breytingar, meðal annars vegna aukinnar samkeppni. Stuðningur við mjólkurfram- leiðslu þarf að færast yfir í stuðning við heppilega landnotkun. Styrkja til dæmis mjólkurframleiðslu á völdum svæðum á Suðurlandi, Vesturlandi og í Eyjafirði, í nágrenni þéttbýlis- svæðanna, en minna eða ekkert utan þeirra svæða. Þetta stuðlar að sam- þjöppun og flutningskostnaður minnkar. Snyrtilegt vel gróið og fagurt land eykur ánægju landsmanna og styður við vöxt ferðaþjónustu, sem er vax- andi atvinnugrein og á eftir að blómstra víða um land. Ekki ætti að styðja bú sem láta búfé sitt ganga laust í byggð eða á hálendi. Styrkja mætti ræktun og landfegrun. Draga þarf úr mengun og endur- heimta votlendi til að binda gróð- urhúsalofttegundir. Styrkja til- teknar aðgerðir af þessu tagi. Skipulag Gerð búvörusamninga hefur gengið þannig fyrir sig að samn- inganefnd bænda stendur fyrir um- ræðum meðal bænda og semur svo við landbúnaðarráðherra sem skrif- ar undir við bændur, ásamt fjár- málaráðherra. Ráðherrarnir eiga væntanlega að gæta hagsmuna neyt- enda og skattgreiðenda en þar stendur hnífurinn í kúnni. Hér skortir á gagnsæi og fagleg vinnubrögð. Það þarf að standa bet- ur að stefnumótuninni og samning- unum og meðal annars fá til verka sérfræðinga í stefnumótun, landbún- aði, umhverfisvernd, ferðaþjónustu, fjármálum auk fulltrúa bænda, neyt- enda og skattgreiðenda. Áhugavert er að Byggðastofnun taki við gerð „byggðasamninga“ og haldi utan um stefnumótun byggð- anna og stuðning við þær. Sumum byggðum hentar landbúnaður, öðr- um ferðaþjónusta o.s.frv. Byggða- stofnun ætti líklega að heyra undir forsætisráðherra, því stuðningur við byggðir er þverfaglegt viðfangsefni. Með ofangreindu batna lífskjör í landinu um meira en 10% að með- altali og enn meira hjá þeim fátæku. Landið verður fegurra og dregur úr mengun. Bændum fækkar, sú þróun er í gangi hvort sem er, en afkoma þeirra batnar. Breytingarnar munu vissulega taka á en þær má auðvelda með stuðningi skattgreiðenda. Allir hagnast þegar frá líður. Gagnsæir, faglegir byggðasamningar Eftir Guðjón Sigurbjartsson » Skilgreina þarf hlut- verk landbúnaðarins betur, setja háleit mark- mið og velja heppilegar leiðir að markmiðunum, og beita til þess verk- færum stefnumótunar. Guðjón Sigurbjartsson Höfundur er viðskiptafræðingur og bóndasonur. 1. Verð á fiski er til dæmis 16% lægra á Íslandi en annars staðar á meðan verð á kjúklingi er 42% hærra. Heimildir: Samráðsvettvangur um aukna hagsæld á Íslandi, Hagstofa Íslands, Numbeo, Viðskiptaráð Íslands. Nú um stundir er rætt um hve við Íslendingar séum bláeygir gagn- vart hryðjuverkaógn frá innflytj- endum. En höfum við enn grátið á lík- vökunni um hreinræktaða norræna kynstofninn hvíta, sem við lögðum upp með í sjálfstæðisbaráttunni á síðustu öld? Lítið heyrist nú orðið frá þeim sem harma minnkandi líkamlega sérstöðu Íslendinga! Um þetta yrki ég (mannfræðing- urinn), í ljóði mínu Lýðveldið 1944, í nýrri ljóðabók minni, Sjálfstæðis- ljóðum, og segi þar m.a. þetta: … Og Ísland dreymir drauma Engilsaxa um slátrun atvinnuleysis, um frelsun trygginga- og mennta- kerfis er munu lyfta upp torfbæjarfólkinu og gera alla jafna og félagslynda, gæta hins hreinræktaða germanska kynstofns, og lifa sælir um alla séða framtíð sem hjartahreinir víkingar af guðs náð, hvítir og stoltir með sínar smáfríðu konur. Tryggvi V. Líndal. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Um kynstofninn hreina Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.