Morgunblaðið - 08.12.2015, Síða 35
tímabilið vorum við í minnihluta, en
svo fengum við sjálfstæðismenn
meirihluta í Mosfellsbæ í frægum
kosningum árið 2002 þegar Ragn-
heiður Ríkharðsdóttir leiddi listann.
Við tók krefjandi en skemmtilegt
tímabil þar sem við tókum rækilega
til í fjármálum sveitarfélagsins og
byggðum síðan markvisst upp inn-
viði samfélagsins, en íbúafjöldinn
tvöfaldaðist í bæjarfélaginu á þeim
tíma sem ég sat í bæjarstjórn. Þetta
var góður skóli og dýrmæt reynsla.“
Upp úr síðustu aldamótum fór
Herdís að starfa á sviði hamfara-
mála og fann þar sína syllu í lífinu.
„Lífinu má líkja við bók sem við
skrifum sjálf, þó aðrir hafi þar mikil
áhrif. Þegar mér bauðst starf hjá
VSÓ Ráðgjöf árið 2009 var ég nýbú-
in að ljúka við meistaranámið og
byrjuð í doktorsnámi. Í rúm sex ár
hef ég sinnt ráðgjafastörfum á sviði
neyðarstjórnunar og öryggismála,
ásamt því að sinna doktorsnámi og
ýmsum rannsóknaverkefnum, bæði
hér á landi og erlendis. Á nýju ári
mun ég setja punktinn aftan við
VSÓ-kaflann og hefja nýjan og
spennandi kafla sem mun alveg
örugglega einnig innifela hamfara-
mál og opinbera stjórnsýslu.“
Fjölskylda
Eiginmaður Herdísar er Erlendur
Örn Fjeldsted, f. 30.10. 1965, bygg-
ingatæknifræðingur hjá Eflu.
Foreldrar Erlendar eru Birna
Lárusdóttir, f. 2.7. 1947, fisksali í
Mosfellsbæ, og Sturla Fjeldsted, f.
15.6. 1946, verslunarmaður í Rifi á
Snæfellsnesi.
Börn Herdísar og Erlendar eru
Ásdís Magnea Erlendsdóttir Fjeld-
sted, f. 31.10. 1992, háskólanemi og
starfsmaður á leikskóla en sambýlis-
maður hennar er Hjörtur Benjamín
Halldórsson laganemi; Sturla Sær
Erlendsson Fjeldsted, f. 12.3. 1995,
starfsmaður hjá Levi‘s og hönnuður,
búsettur í Mosfellsbæ, og Sædís
Erla Erlendsdóttir, f. 2.10. 2003,
nemi í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ.
Systkini Herdísar eru Kristín
Sigurjónsdóttir, f. 7.2. 1958, hótel-
starfsmaður og ljósmyndari á Siglu-
firði; Jóhann Sigurjónsson, f. 5.12.
1960, forstjóri Rapp Marine í Seattle
í Bandaríkjunum, og Sigurjón Sigur-
jónsson, f. 23.1. 1973, d. 26.1. sama
ár.
Foreldrar Herdísar: Ásdís Magn-
ea Gunnlaugsdóttir, f. 18.3. 1939,
húsfreyja á Siglufirði, og Sigurjón
Jóhannsson, f. 8.9. 1928, d. 22.12.
2010, skipstjóri á Siglufirði.
Úr frændgarði Herdísar Sigurjónsdóttur
Herdís
Sigurjónsdóttir
Jón Jónsson
b. í Efra-Lýtingsstaðakoti
Björg Pétursdóttir
húsfr. í Efra-Lýtingsstaðakoti í Skagafirði
Jóhann Pétur Jónsson
kaupmaður, Vík og á Siglufirði
Herdís Þorsteinsdóttir
húsfr. í Vík í Haganesvík og sýslu-
skrifari á Akureyri og á Siglufirði
Sigurjón Jóhannsson
skipstjóri á Siglufirði
Eiríkur Þorsteinn Þorsteinsson
hreppstj. og sýslunefndarm. í Vík
Guðlaug Baldvindsdóttir
húsfr. í Vík í Haganesvík í Fljótum
Sigurður Magnússon kennari, löggæslufulltr.
Lögreglunnar í Rvík og blaðafulltrúi Flugleiða
Þórður Áskell Magnús-
son kennari í Rvík
Þorleifur
Sigurðsson b. í
Syðra-Skógarnesi
á Snæfellsnesi
Ásgeir Þorsteinsson
skipstj. í Rvík
Sigurjón Þ. Jónsson alþm. og bankastjóri
á Ísafirði og síðar á Seltjarnarnesi
Erla Þórðardóttir
skrifstofum. í Ólafsvík
Kristín Guðríður
Þorleifsdóttir
húsfr. á Þverá í
Hnappadalssýslu
Herdís Ásgeirsdóttir
húsfr. í Rvík
Anna
Árnadóttir
húsfr. í Rvík
Ólafur Adolfsson
lyfsali og odd-
viti sjálfstæðis-
manna á
Akranesi
Ásgeir Gunnar
Jónsson
húsasmíðam. í
Stykkishólmi
Herdís
Tryggvadóttir
húsfr. í Rvík
Herdís
Þorgeirsdóttir
lögm. í Rvík
Erla Ósk Ásgeirsd.
forstöðum. hjá
Icelandair hótelum
í Rvík og fyrrv. vþm.
Þórólfur Árnason
fyrrv. borgarstj.
Árni Páll Árnason alþm.
og fyrrv. ráðherra
Jón Kristinn Kristinsson
útvegsb. og kennari í Ystabæ og á Siglufirði
Hallfríður Þórðardóttir
húsfr. í Ystabæ í Hrísey
og á Siglufirði
Gunnlaugur Jónsson
vélstj. hjá SR í Rvík, á Sólbakka,
Raufarhöfn, Siglufirði og Akureyri
Kristín Magnúsdóttir
húsfr. í Rvík, á Sólbakka í Önundar-
firði, á Raufarhöfn og Siglufirði
Ásdís Magnea Gunnlaugsdóttir
húsfreyja á Siglufirði
Magnús Sigurðsson
oddviti í Miklaholti
Ásdís Magnea Sigurðardóttir
ljósm. í Miklaholti í
Miklaholtshreppi
Árni Pálsson
fyrrv. sóknarpr.
í Kópavogi
Árni Waag kennari
í Kópavogi
Katrín W.
Hjálmarsdóttir
húsfr. í Rvík
Hjálmar Árnason framkv-
stj. Keilis og fyrrv. alþm.
Hjálmar W.
Hannesson
sendiherra
Hannes Birgir
Hjálmarsson
kennari og
tónlistarm.
Kristín Árna-
dóttir húsfr.
í Klakksvík
og í Rvík
Anna María
Elísabet
Sigurðardóttir
húsfr. á
Stóra-Hrauni
á Snæfellsnesi
(kona sr. Árna
Þórarinssonar)
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2015
Pétur fæddist í Reykjavík 8.12.1906, sonur BenediktsSveinssonar, alþm. og rit-
stjóra, og k.h. Guðrúnar Péturs-
dóttur kvenréttindafrömuðar.
Meðal systkina Péturs voru
Bjarni forsætisráðherra, faðir
Björns, fyrrv. alþm. og ráðherra, og
Valgerðar alþm.; Sveinn fram-
kvæmdastjóri, afi Bjarna Benedikts-
sonar, fjármálaráðherra og for-
manns Sjálfstæðisflokkins, og
Kristjana, móðir Halldórs Blöndal,
fyrrv. ráðherra og forseta Alþingis.
Fyrri kona Péturs var Guðrún
Eggertsdóttir Briem en dóttir
þeirra: Ragnhildur, lengst af hús-
freyja í Osló.
Seinni kona Péturs var Marta,
dóttir Ólafs Thors forsætisráðherra,
og k.h., Ingibjargar Indriðadóttur
Thors. Dætur Péturs og Mörtu: Ólöf
dómstjóri sem lést 2008, og Guðrún,
forstöðumaður við HÍ.
Pétur lauk stúdentsprófi frá MR
1925, lögfræðiprófi frá HÍ 1930 og
stundaði framhaldsnám í Grenoble
og Toulouse í Frakklandi 1936-37.
Pétur var ritari í utanríkisráðu-
neyti Dana í Kaupmannahöfn 1930-
36, sendiráðsritari við sendiráð Dana
á Spáni 1936-39 og í Bretlandi 1939-
40, sendifulltrúi Íslands í Bretlandi
1940 og hjá norsku ríkisstjórninni í
Lundúnum, sendiherra í Bretlandi
1941-44, sendiherra í Sovétríkjunum
1944, jafnframt sendiherra í Frakk-
landi, Póllandi, Belgíu og Tékkóslóv-
akíu 1946, á Ítalíu 1947, í Sviss,
Spáni og Portúgal 1949 og á Írlandi
1951 en fékk lausn að eigin ósk 1956.
Pétur var fulltrúi Íslands í OEEC
frá upphafi 1948-56, fulltrúi á ráð-
herrafundum NATO og fundum
Evrópuráðsins til 1956, bankastjóri
Landsbanka Íslands frá 1956 og til
æviloka, átti sæti í bankaráði Al-
þjóðabankans í Washington 1956-65,
var formaður Samtaka um vestræna
samvinnu frá stofnun til 1965, for-
maður Stúdentafélags Reykjavíkur,
formaður Hins íslenska fornrita-
félags, sat í fiskmatsráði, í fríversl-
unarnefnd, í stjórn SÍF frá 1962 til
æviloka og var alþm. Reyknesinga
fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1967-69.
Pétur lést 29.6. 1969.
Merkir Íslendingar
Pétur Bene-
diktsson
90 ára
Sigrún Jónsdóttir
85 ára
Ástríður Eyjólfsdóttir
Guðríður Stefánsdóttir
Inga Dóra Hertervig
Ragnar Þorvaldsson
80 ára
Dóra Ágústsdóttir
Gyða Ásbjarnardóttir
Halldóra Ármannsdóttir
Matthías Matthíasson
Sigríður Reimarsdóttir
Unnur Tessnow
75 ára
Birgir Hermannsson
Hulda P. Jósefsdóttir
Ragnar Guðmundsson
Símon Magnússon
Sveinn Gunnarsson
Viggó Sigfinnsson
Zoila Gloria Guerrero
70 ára
Grétar Már Kristjánsson
Helgi Einarsson
Kristín Bergsdóttir
Pálína G. Óskarsdóttir
Páll Skúlason
Þóra Árnadóttir
60 ára
Banyat Unarak
Björg Rafnsdóttir
Guðmundur Finnbogason
Guðrún Ásgerður
Sölvadóttir
Gunnar Rafn Einarsson
Jón Hallfreður Hall-
dórsson
Lára Hafdís
Gunnbjörnsdóttir
Pétur Kristinn Krist-
jánsson
Sigríður Garðarsdóttir
Snorri Kristjánsson
Svava Sigurðardóttir
Sveinbjörg
Steingrímsdóttir
Sveinn Harðarson
50 ára
Brynja Gunnarsdóttir
Guðni Guðjónsson
Héléne Liette Lauzon
Ingiríður Ásta Karlsdóttir
Ingveldur Guðjónsdóttir
Kristín Hrönn Einarsdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir
40 ára
Anna Björnsdóttir
Berglind Guðrún Chu
Einar Örn Jónsson
Florentina Fundateanu
Friðný Jónsdóttir
Gemma Rachel Catherine
King
Gitutis Valungevicius
Jóna Valdís Reynisdóttir
Jóngeir Jóelsson
Rakel Ýr Jónsdóttir
Salvör Sigríður Jónsdóttir
Sigurbjörn Daði
Dagbjartsson
Sreten Ævar Karimanovic
Þórey Linda Elíasdóttir
30 ára
Agnes Ósk Þorgrímsdóttir
Atli Örn Gunnarsson
Ellert Ingvi Guðmundsson
Eva Lind Ingvarsdóttir
Gunnlaugur Arnar Elías-
son
Hákon Viðar Erlingsson
Kristrún Elíasdóttir
Na Yang
Ólafur Örn Karlsson
Sandra Kristín Jónsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Theódór ólst upp
á Höfn í Hornafirði en býr
í Mosfellsbæ og er flutn-
ingabílstjóri hjá flutninga-
fyrirtækinu Örmum í
Hafnarfirði.
Maki: Ólöf Sæmunds-
dóttir, f. 1985, lyfjatæknir
hjá Garðsapóteki.
Fósturdóttir: Ragnheið-
ur Bjarnadóttir, f. 2010.
Foreldrar: Konný Sóley
Guðmundsdóttir, f. 1960,
og Heimir Örn Heið-
arsson, f. 1959.
Theódór Heiðar
Heimisson
30 ára Sigrún Edda ólst
upp í Kópavogi, býr í
Reykjavík, er hestafræð-
ingur frá LBHÍ og sér um
fóðursölu hjá Sláturfélagi
Suðurlands.
Maki: Sigurður Þór
Magnússon, f. 1987, vél-
fræðingur hjá Kælivirkni.
Foreldrar: Hjördís Ólafs-
dóttir, f. 1953, starfsm.
hjá Félagsstofnun stúd-
enta, og Halldór Ingvars-
son, f. 1948, starfsm. hjá
Mílu.
Sigrún Edda
Halldórsdóttir
30 ára Hólmfríður ólst
upp á Eyrarbakka en er
búsett í Tjarnarbyggð í
Árborg og er nú heima-
vinnandi húsfreyja sem
stendur.
Maki: Arnar Elí Ágústs-
son, f. 1986, sölustjóri hjá
Netpörtum í Árborg.
Börn: Haraldur Elí, f.
2007; Andrea Eir, f. 2009,
og Ingibjörg Elín, f. 2014.
Foreldrar: Inga Björk Em-
ilsdóttir, f. 1965, og Har-
aldur Ólafsson, f. 1961.
Hólmfríður Lilja
Haraldsdóttir
Rafsuðuvélar
og aukahlutir
Hágæða rafsuðuvélar og
aukahlutir framleiddar
í Austurríki
Mjög notendavænar og þægilegar
Dalshrauni 14 • 220 Hafnarfjörður • Sími 555 2035 • jak.is