Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.11.1991, Síða 6

Víkurfréttir - 07.11.1991, Síða 6
6 YÍkurfréttii Þessar ungu stúlkur efndu til hlutaveltu til st.vrktar Björgunarsveit Sigurvonar og varð ágóðinn kr. 2.180. Þær heita Ingveldur Sig- uröardóttir, Guðrún Jóna Jónsdóttir og Sæunn Sigríður Guð- jónsdóttir. Bíleigendur athugið! Tökum aö okkur bón, þvott og djúp- hreinsun á teppum og sætum. Vél- arþvottur og vélarlakk. Getum tekið allar stærðir bíla, einnig vörubíla. Tímapantanir í síma 985-35519 Bón- og þvottastöðin Holtsgötu 49 - Njarðvík Sími 985-35519 Sævar Sverrisson VERKAMENN íslenska Saltfélagið hf. óskar að ráða nokkra verkamenn til starfa í salt- verksmiðjuna á Reykjanesi. Um er að ræða vaktavinnu fyrst og fresmt við Isekkjun salts þegar framleiðsla hefst að nýju í febrúar, en fram að þeim tíma ýmis tilfallandi störf í tengslum við endurbyggingu verksmiðjunnar. Upplýsingar veita Ingólfur Kristjánsson og Gunnar Hásler í síma 92-16955. íslenska Saltfélagið hf. Reykjanesi, Höfnum /•/s/sss/s/s//Yss/Y/Y/v/'//YS//Yss/y/y/r/y/r/Y/Y/YSf/r/Y/v/r/y/Y/r/Y/r/r/Y/r/r/Yss/Yss/Ysss/s/s/s/ss | ÁRSFUNDUR j Knattspyrnudeildar Keflavíkur í í 8 verður haldinn í íþróttavallar- húsinu við Hringbraut, sunnu- daginn I7. nóv. nk. kl. I4.00. Stjórn Knattspyrnu- deildar Keflavíkur HEIMABYGGÐIN Hvaða áhrit' helur það á af- komu okkar og atvinnu að leggja spariféð inn í heima- byggðinni og kaupa alla þjón- ustu í okkar heimabyggð? Til að einfalda þetta má hugsa sér, að Suðurnesin séu sjálf- stætt ríki. Ef við förum með peningana okkar út af Suð- umesjum er það nákvæmlega sama og þegar við flytjum peningana okkar til útlanda og verslum fyrir þá þar. Við heyrum talað um neikvæðan vöruskiptajöfnuð, sífellt hærri erlendar lántökur og sumir tala um að sjálfstæði okkar sé hætta búin vegna erlendra skulda. Þetta þýðir að ut- anaðkomandi aðilar tá sífellt meiri ítök hjá okkur og áður en við vitum af verður okkur fjarstýrt annars staðttr frá, því vald peninganna er mikið í nútímaþjóðfélagi. Þetta þýðir líka, að aðrir en við njótum þeirra tekna sem við flytjum burtu frá okkur. Við erum því að grafa undan okkar eigin velferð í framtíðinni með því að flytja fjármuni okkar burtu af svæðinu. Við gerum þær kröfur til þetta sem veita okkur þjón- ustu á Suðurnesjum. að þeir geri vel og veiti góða þjón- ustu. En við erum alltaf til- búin að hlaupa á Stór- Reykjavíkursvæðið og fá santanburð og tilboð þaðan. Við reiknum þó sjaldnast með aukakostnaði vegna þessa svo sem bíla- og símakostnaði og tíma þeim sem í snattið fer. Við gerum einnig þær kröfur að hlutirnir séu ódýrari á Suðurnesjum en í Reykja- víkinni, vextimir séu hærri hér á Suðurnesjum en í Reykjavíkinni o.s.frv. Við ættum að snúa þessu við og byggja upp samkennd hjá okkur og hugsa okkur lengi um AÐUR en við eyðunr fjánnunum okkar annars staðar en á Suðumesjum. EIIi Jóh. ELIAS JOHANNSSON: FJARMAL A FIMMTUDEGI ATHUGASEMD frá Sigurjóni R. Vikarssyni v/bréfs Arndísar R. Magnúsdóttur í Suðurnesjafréttum Vegna skrifa Arndísar R. Magnúsdóttur í síðasta tölu- blaði Suðurnesjafrétta vil ég undirritaður taka eftirfarandi fram: Starfskrafturinn sem réði sig í vinnu í Grágás, og auglýst var eftir í Víkurfréttum, hóf störf hjá okkur á fimmtudegi og vann einnig föstudaginn. Eftir helg- ina mætti umrædd kona ekki og þá var það hið fyrsta sem mér kom í hug, að einhver veikindi hefðu komið upp hjá henni eða fjölskyldu hennar. Þegar ekkert heyrðist svo frá henni alla þá viku, fór óneitanlega að læðast að mér sá grunur að ekki væri allt með felldu. Þá kom það fyrir í vikunni þar á eftir að hingað var hringt í tvígang og spurt eftir um- ræddri konu. Okkar svör voru á þann veg að hún væri ekki hér stödd, en þá urðu þeir sem hringdu nokkuð hissa, því þeir sögðust hafa hringt heim til hennar en fengið þau svör að hún væri í vinnunni! Þetta kom mér nokkuð spánskt fyrir sjónir, þar sem ég taldi að hún ætti að vera hér í vinnu, en ekki einhvers staðar annars staðar. Þess vegna datt mér í hug að auglýsa eftir henni og þegar ég sá bréf Arndísar í Suðurnesjafréttum sá ég að skrifar Sigurjóni Vikarssyni lorstjóra Grágásar jandi sendi ég ljósrn ur ttumfrá 17.októbersl.. , prentsmiöjan Grágás í smáauglýstngadálki • Úrklippa úr Suðurnesja- fréttum í síðustu viku. auglýsingin hafði borið ár- angur. Það er í meira lagi hæpið að ekki haft náðst í mig í þrjá daga til að tilkynna forföll, þar sem ég er hér á staðnum nær und- antekningarlaust. Þar að auki vinna hér ellefu manns. þannig að auðvelt hefði verið að skilja eftir skilaboð, þó svo að ég hefði brugðið mér frá um stundarsakir. Þá má geta þess að frá því að starfskrafturinn hvarf og þar til auglýsingin birtist liðu 13 dag- ar! Frá mínum bæjardyrum sé finnst mér það tímabil í lengra lagi án þess að láta vita af sér. Það má vera að Amdísi finnist það ekki, en engir tveir eru eins. Þá langar mig að segja frá því að bréfritarinn Arndís hafði samband við einn af blaða- mönnum Víkurfrétta út af þess- ari auglýsingu og þá sagði hún allt annað en það sem fram kom í bréfinu til mín í Suðumesja- fréttum. Kveðja, Sigurjón R. Vikarssón Ný Ijóðabók: Kristinn Reyr með Glaðbeittar línur Kristinn Reyr hefur sent frá sér nýja ljóðabók er heitir Glaðbeittar línur og er |retla tólfta Ijóðabók höfundar. Fyrsta Ijóöakver höfundar leit dagsins ljós 1942 og þótti þá mörgum sem þar birtust strax þau séreinkenni hans sem hafa fylgt honum síðan; Þýður léttleiki og lýrik. en þó einatt djúp alvara undirniðri, svo vitnað sé í umsögn um Kristinn Reyr. Fjölbreytnin er mikil í nýju Ijóðabókinni. Glaðbeittum linum, sem hefur að geyma 48 Ijóð, sem ekki hafa birst áður og |iví splunkuný sem slík. Vitna þau glöggt um listsköpun Kristins Reyrs, sem er í tölu eldri og virðulegri skálda. Það var höfundur sem hannaði bókina, en ísafoldarprentsmiðja sá um prentverk. Kristinn Reyr

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.