Víkurfréttir - 07.11.1991, Qupperneq 8
8
grín - gagnrýni m
■ vangaveltur ■
umsjón: emil páll*
Presturinn í
kapphlaupi...
Undaríegt kapphlaup
átti sér stað hér á Suð-
umesjum á mánudag í
síðustu viku. Var kapp-
hlaupið milli prests og
samviskulausra Ijósvaka-
fjölmiðla. Snérist málið
um það hvort aðstand-
endur Suðurnesjamann-
anna tveggja á skóla-
skipinu Mími sem fórst
við Hornafjörð, fengju
fregnir af málinu frá
presti eða útvarpi. Því
miður loru leikar svo að
presturinn varð að láta í
minni pokann, þar sem
alltof stór hluti nánustu
ættingja fékk fregnir úr
Ijósvakatjölmiðlunum,
eða frá söguburði aðila
sem hlustuðu á við-
komandi fjölmiðla. Slíkt
er með öllu óþolandi.
...viö sam-
viskulausa fjöl-
miöla...
Ríkisútvarpið og Rík-
issjónvarpið vöru þó þeir
fjölmiðlar sem sýndu
skilning á aðstæðum og
sendu ekkert út fyrr en
vissa -var fyrir að tjöl-
skyldur mannanna hefðu
fengið að vita af málinu.
Þetta mættu hinir fjöl-
miðlarnir taka sér til fyr-
irmyndar, því samvisku-
lausum fréttaflutningi
eins og jrarna átti sér stað
verður að linna. Hefur
Slysavarnafélag Islands
sent út bréf til fjölmiðla
vegna þessa þar sem hinni
hörðu gangrýni al-
mennings á fréttaflutn-
inginn er komið á fram-
færi og undir þá gagnrýni
tökum við heilshugar.
... og sér í lagi
STÖÐ-2...
Þáttur Stöðvar 2 í mál-
inu er nteð slíkum ein-
dæmum að erfitt er að
sætta sig við. A það bæði
við viðtöl við óharðnaða
unglinga sem voru nánast
grátandi eftir óhugnalega
reynslu eða skýringar í
máli og myndum af slys-
stað, aðeins örfáum mín-
útum eftir að sumir að-
standenda fengu að vita
hvað gerðist og jafnvel
áður en sumir vissu hvað
gerðist.
... eins varöandi
Njarövíkurmáliö
Sama má segja urn hinn
reyfarakennda frétta-
flutning STÖÐVAR 2 frá
húsi einu í Njarðvík þar
sem áætlað var að maður
hefði látist að ytri á-
verkum. Það að mynda
hús sem margir búa í og
margir eiga ættingja bú-
andi í og fylgja síðan
myndavélinni upp stiga
og að innsiglaðri hurð,
bendir til samskonar vit-
leysu og gerist í Banda-
ríkjunum þegar voðaverk
eru þar framin, en hefur
engan fréttalegan tilgang
hér í okkar fámenni. Þetta
hvortveggja ættu þeir
Stöðvarmenn að taka til
alvarlegrar skoðunar, en
ekki hugsa eingöngu um
það að vera fyrstir með
fréttina.
Mikil efn-
issöfnun
Síðustu vikurnar hefur
ótrúlega mikið af efni
safnast upp á ritstjóm
blaðsins og því höfum við
ítekað þurft að fresta birt-
ingu viðtala og annars
efni eða skera það niður.
Sumt af efninu hefur því
beðið í allt að fjórar vikur
án þess að það næði birt-
ingu. Verðum við því að
ganga enn harðar fram í
að lengd aðsends efnis og
önnur skilyrði s.s. að það
sé ekki sent öðrum fjöl-
miðlum til birtingar, séu
haldin. Eftir sem áður
verður tímabundið efni
látið ganga fyrir berist
það ritstjórninni innan til-
skilins skilatíma. Vegna
þessa biðjum við aðra þá
er vænta birtingar efnis
sem er hjá okkur að sýna
þolinmæði. þetta leysist
vonandi bráðlega.
Enn einn Suö-
urnesjafulltrúinn
Hann hefur vart stopp-
að hjá okkur síminn eftir
að við hófum að telja upp
þá Suðurnesjamenn sem
bæst hafa í þann hóp seni
fram kentur í sjón-
varpsauglýsingum. Enn
bætist í hópinn, nú er það
Sólveig Lilja Jóhanns-
dóttir. 10 ára Keflavíkur-
mær, sem kentur fram í
auglýsingu fyrir Rás 1 hjá
Útvarpinu.
Skrokkum 13 frí-
stundabœnda
stolið
Þulur eins ljósvaka-
miðlanna ruglaðist nokk-
uð í ríminu á sunnu-
dagskvöldið, er hann
greindi frá þjófnaði á 125
kjötskrokkum úr gámi í
Grindavík. Skokkarnir
höfðu verið gerðir upp-
tækir við meinta ólöglega
slátrun hjá frístunda-
bændum á dögunum.
Sagðist honum svo frá
„Skrokkum 13-frístunda-
bænda var stolið úr gámi
í Grindavík....“
Viö hvaö eru
þau hrœdd?
Víkurfréttir óskuðu eft-
ir því í upphafi bæjar-
stjórnarfundar í Keflavík
á þriðjudag að fá að nota
segulband á fundinum.
Forseti bæjarstjórnar bar
þetta undir bæjarfulltrúa,
sem tóku illa í málið og
því var jxtð ekki sam-
þykkt. Þetta leiðir hugann
af því hvað bæjarfulltrúar
hafi að fela þar sem, þar
sem víða annars staðar er
útvarpað eða sjónvarpað
frá slíkum fundum. Óttast
þeir kannski að þeir segi
eitthvað sem þeir geti
ekki staðið við?
Verður hasar á
Flug Hóteli í
kvöld?
í kvöld boðar Neyt-
endafélag Suðurnesja til
fundar á Flug Hóteli í
kvöld þar sem neyt-
endamál og verðkannanir
verða til umræðu. Frum-
mælendur verða Drífa
Sigfúsdóttir formaður
Neytendafélag Suður-
nesja og Jóhannes Gunn-
arsson formaður Neyt-
endasamtakanna, fund-
arstjóri verður auglýs-
ingastjóri okkar, Páll Ket-
ilsson. Spurningin er
hvort hasar verði um
verðkannanir þær sem
NFS hefur framkvæmt í
verslunum hér syðra?
Viltu fylgjast
meö þjófnaöi?
Við hér á Víkurfréttum
fengum símhringingu fyr-
ir rúmri viku síðan þar
sem okkur var greint frá
því að hinum frægu kjöt-
skrokkum sem mikið hef-
ur verið rætt um í Grinda-
vík yrðu að öllum
líkindum stolið um á-
kveðna helgi. Síðan hefur
komið í ljós að þessar
upplýsingar hafa reynst
réttar, hvað dagsetningu
varðar. Er því nokkuð
ljóst að verknaður þessi
var löngu ákveðinn.
J5? ffff
Kaldar kveöjur
Sjá þessa sn jókullu!
Svo segja jreir að kaldastríðinu sé lokið.
Vikurfréttir
7. nóv. 1991
Heilsumiöstöö
undir hóteliö...
Það er ekki hægt að
segja annað en |>eir feðgar,
Jón og Steinjíór. á Hótel
Keflavík séu fram-
takssamir þessa dagana.
Nýverið llutti Jón fyrir-
tæki sitt, Ofnasmiðju Suð-
umesja, í nýtt húsnæði og
þessa dagana eru |reir
feðgar að láta innrétta
heilsumiðstöð undir hót-
elinu við Vatnsnesveg.
Sólbaðsstofan Sólhúsið
muti flytja þangað, auk
þess sem fjölbreytt önnur
heilsuþjónusta verður til
staðar.
...og Blóa lóniö
flytur
I nýju heilsumið-
stöðinni verður m.a. gufu-
bað og heitan pott í Bláa
lóns stíl. Hugmyndir eru
nefnilega uppi um það að
dæla vatni úr Bláa lóninu
í Svartsengi í heita pottinn,
hver svo setn framtíðin
verður.
Ekki skrýtiö aö
verkafólk lóti í
sér heyra
Við greindum frá mik-
illi jeppaeign Suður-
nesjamanna í síðustu Mol-
um og sú frásögn vakti
töluverða athygli, enda urn
mikla fjánnuni að ræða. I
umræðum manna á milli
hefur m.a. heyrst að það sé
ekkert skrýtið að verka-
fólk á lægstu töxtum láti í
sér heyra þegar það sér
jeppana spretta upp eins
og gorkúlur allt í kringum
sig.
NYTTI KEFLAVIK
Leigjum út bíla á vegum
BUDGET RENTACAR.
Hœgt er að leigja bíla
með ótakmörkuðum
akstri. Einnig getum við
útvegað bílaleigubíla í
yfir 140 löndum á
hagstœðu verði.
=Budget=
rentacar **
GULLFOSS
C*A*R R*E*N*I*H
Bifreiðaeigendur athugið!
I Réttingar........ bindandi tilboð
I Heilsprautanir... bindandi tilboð
I Blettanir........ bindandi tilboð
ALLAR ALMENNAR VIÐGERÐIR
• Vetrarskoðanir • Ljósastillingar
• Varahlutaþjónusta fyrir alla bíla
UPPHERSLUR Á ÖLLUM
BÍLUM
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
STEINARS hf.
SMIÐUVÖLLUM 6 - SÍMI 15499 - 230 KEFLAVÍK